Fréttablaðið - 29.03.2007, Blaðsíða 33
Nærri hvert tískuhús hefur á
sínum snærum í það minnsta
eina stjörnu. Þessi manneskja er
andlit tískuhússins út á við í aug-
lýsingum, sendiherra lífsstíls og
fágunar. Áður voru þetta nærri
eingöngu kvikmyndastjörnur á
síðum glanstímarita en sá tími
er liðinn. Nú leita sífellt fleiri
fjöldaframleiðslufyrirtæki til
popp- eða kvikmyndastjarna eða
jafnvel íþróttamanna til að sitja
fyrir og leika í auglýsingum. Hér
í landi er það nú kallað people-
à-porter (fólk til að vera í) sem
kemur frá prêt-à-porter-fatn-
aði (tilbúið til að vera í). Ástæð-
an er sú að fyrirtækin vilja gefa
vörum sínum aukið
gildi, meiri glam-
úr, sem aftur hækkar
verðið.
Wentworth Mill-
er (Prison Break) er
andlit Gap í herratísk-
unni og ekki er langt
síðan Sarah Jessica
Parker (Sex and the
City), sem nú er sjálf
að setja á markað sína
eigin tískulínu, kynnti
kvenlínu Gap. Eva
Longoria (Desperate
Housewives) auglýs-
ir Morgan og reyndar
líka L´Oreal. Ef vel er að gáð sést
hversu miklu ljóshærðari Eva
var í byrjun 3. þáttaraðarinnar
en áður, einmitt eftir að hún fór
að auglýsa L´Oreal hárlit!
Á fimmtudag kom í búðir ný
tískulína H&M, hönnuð af Mad-
onnu. Undanfarin þrjú haust
hefur H&M fengið heimsfræga
hönnuði til liðs við sig. Fyrst Karl
Lagerfeld, svo Stellu McCartn-
ey og nú síðast Viktor og Rolf. Í
hvert skipti voru vörurnar rifnar
út úr búðunum og því áttu marg-
ir von á því að vorlína Madonnu
fengi sömu viðtökur, sérstaklega
í ljósi auglýsingaherferðarinnar
sem var í gangi áður en flíkurn-
ar komu í búðir, en auglýsinga-
myndin var líkt og SM-ádeila á
Djöfullinn klæðist Prada. En allt
kom fyrir ekki. Tískulína Mad-
onnu fór hægt af stað, án allr-
ar hysteríu. Sumir hafa skýrt
það þannig að fötin séu einfald-
lega allt of klassísk og einföld og
minni lítið á áberandi stíl Mad-
onnu, sem hefur sýnt ýmsar ansi
skrautlegar hliðar á sér í gegn-
um tíðina. Skemmst að minnast
síðustu tónleikaferðar hennar
með búningum Jean-Paul Gault-
ier. Eru reyndar uppstéttarlund-
únaleg eins og Madonna sjálf
um þessar mundir. Almenning-
ur hefur ekki trú á Madonnu sem
hönnuði enda má spyrja hvað
hún sé að vilja upp á dekk, henni
dugi ekki að semja tónlist, skrifa
bækur og leika í myndum held-
ur vilji hún vera tískuhönnuður í
ofanálag. Kannski að 96 milljóna
dollara árslaun eins og hún hafði
2006 nægi henni ekki til fram-
færslu?
Stjörnurnar hafa sömuleiðis
tekið til sín stóran skerf af ilm-
vatnsmarkaðnum (J-Lo, Céline
Dion, Sarah Jessica Parker og
fl.), ilmvatnsframleiðendunum
til ama. Því til hvers að kaupa
Chanel Nr. 5 sem kostar sex sinn-
um meira en ilmvatn frá uppá-
haldsstjörnunni á innan við 2.000
kr.?
Fyrirsæta í myndaþætti Vogue
notar stærð 42, sem þykir til
tíðinda.
Sífellt fleiri innan tískuiðnaðarins
vinna nú markvisst að því að úti-
loka fyrirsætur undir kjörþyngd.
Ameríska Vogue hefur bæst í
hópinn með því að hafa 12 síðna
myndaþátt með fyrirsætunni
Crystal Renn. Hún notar stærð 42.
Hún er tvítug og hóf ferilinn
fjórtán ára. Renn átti um tíma
við ýmis heilsufarsleg vandamál
að stríða, sem mátti rekja til þess
að hún var langt undir kjörþyngd.
Hún tók sér hlé frá störfum til að
huga að heilsunni og sneri aftur í
tískuheiminn eftir að hafa bætt á
sig og notar nú stærð 42. Þess má
geta að stærð 42 hentar vel venju-
legum konum en telst yfirstærð í
fyrirsætubransanum.
Fyrirsæta í
yfirstærð
Stærðir
38-46
verð
5.990,-
Kjólar við buxur - ný sending