Fréttablaðið - 29.03.2007, Blaðsíða 68
Það var margt um mann-
inn á útgáfutónleikum
GusGus á Nasa síðastliðið
laugardagskvöld. Sveit-
in ýtti þar nýjustu plötu
sinni, Forever, úr vör við
góðar undirtektir tónleika-
gesta. Eins og myndirnar
sýna var stemningin með
ólíkindum og greinilegt
að aðdáendur þríeykisins
hafa beðið plötunnar með
eftirvæntingu.
Fátt þykir breskum og banda-
rískum blöðum skemmtilegra en
að velta fyrir sér ástarlífi Britn-
ey Spears. Breska blaðið Daily
Star birti í gær frétt þess efnis að
Spears og Federline væru á leið-
inni í frí saman sem kynti undir
þeim sögusögnum að hjónakorn-
in væru að íhuga að taka saman
aftur. Spears er sögð hafa skipu-
lagt ferðina eftir að vinir henn-
ar ráðlögðu söngkonunni að fara
í burtu í smá tíma ásamt sonum
sínum tveim og Kevin. „Britney
vildi að fjölskyldan sameinaðist
á ný og ættu góðar stundir saman
eftir allt sem á undan er geng-
ið,“ sagði náin vinur söngkonunn-
ar. Ekki er langt síðan að fjölmiðl-
ar þar vestra greindu frá því að
Spears og Federline hefðu komist
að samkomulagi um forræðið yfir
strákunum sínum en ef marka má
frétt Daily Star virðist smá neisti
hafa kviknað að nýju.
Britney er óðum að ná sér eftir
að hafa glímt við áfengis- og fíkni-
efnaneyslu. Hún sótti messu í Bel
air um helgina en eitthvað voru
aðrir safnaðarmeðlimir uggandi
yfir því að hún skyldi vera mynd-
uð og brá einn á það ráð að beina
byssu að tveimur ljósmyndurum.
Eftir að messuhaldi lauk fór hún
og snæddi hádegisverð í Beverly
Hills. Af Kevin er það hins vegar
að frétta að hann sást á skemmti-
stað í Santa Monica og hélt síðan
upp á 29 ára afmæli sitt í Las
Vegas. Án Britney.
Flókið ástarlíf Britney Spears
Donatella
Versace
hefur stað-
fest að dótt-
ir hennar, Al-
legra Ver-
sace, þjáist
af anorex-
íu. Allegra er
tvítugur fata-
hönnunar-
nemi og mun
erfa Versace-
ættarveldið
sem metið
er á nokkra
milljarða. Hún gengst nú undir
meðferð á spítala. „Hún hefur
þjáðst í mörg ár,“ segir í yfirlýs-
ingu frá Donatellu og fyrrum eig-
inmanni hennar, Paul Beck. „Við
foreldrarnir reynum okkar besta
til að vernda dóttur okkar.“
Versace með
anórexíu
vaxtaauki!
10%
VINSTRI GRÆN Á FERÐ UM LANDIÐ
Auður Lilja Erlingsdóttir, Álfheiður Ingadóttir og Paul Nikolov spjalla við kjósendur í ASÍ - húsinu Grensásvegi 16, kl. 20:30.