Fréttablaðið - 29.03.2007, Blaðsíða 78

Fréttablaðið - 29.03.2007, Blaðsíða 78
1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 „Ég fæ mér alltaf Weetabix með banönum og espresso kaffi úr æðislegri kaffivél sem ég fékk í jólagjöf frá mömmu og pabba.“ „Já, þetta er flott blað. Það fór vel á með okkur – spjölluðum heillengi saman uppi á skrifstofunni hjá Einari [Bárðarsyni] í Soho,“ segir Garðar Thor Cortes í samtali við Fréttablaðið. Vegur Garðars fer nú mjög vaxandi en á mánu- dag sat hann fyrir svör- um hjá stórblað- inu Newsweek. Vel þekktur blaðamað- ur, Gianne Brow- nell, spurði Garð- ar spjörunum úr en fyrirhugað er að birta viðtalið í tölu- blaði sem kemur út um miðjan næsta mánuð. Verður þetta ítarleg úttekt á Garðari en rætt er jafnframt við samstarfsmenn hans og fleiri sem honum tengjast. Einar Bárðarson segir þetta skipta miklu máli sé horft til vegs og virðingar tenórsöngvarans snjalla. „Viðtalið skiptir miklu máli, sérstaklega af því að þetta er ekki einskorð- að við Bandaríkin heldur fer um allan heim sem mun hjálpa okkur að brjótast inn á ný svæði,“ segir Einar. Garðar segir Gianne hafa spurt sig um bakgrunn sinn, hvaðan hann komi, um vænt- ingar, tónlistina, fjölskylduna og lífið. Garðar segir þetta hafa gengið vel og segir engan mun á að svara spurningum blaðamanns frá Newsweek en íslenskra blaða- manna. „Hún kom mjög vel undirbúin, var búin að lesa sig heilmikið til sem var mjög skemmtilegt.“ Mikið stendur til hjá Garðari. Ný plata með honum kemur út 16. apríl í Bretlandi og fjöldi við- tala tengist plötunni: Í Daily Tele- graph, Sunday Mail og fleiri fjöl- miðlum. „Svo er ég að fara að syngja annað kvöld [í kvöld] fyrir BBC 2, í útvarpsþátt sem heitir Friday Night is Music Night – voðalega fínn og vinsæll þáttur í Bretlandi. Hefur gengið í 50 ár og gaman að syngja þá með BBC Consert Orchestra. Já, sem er fín hljóm- sveit.“ Garðar Thor Cortes í Newsweek „Já, nei, nei, ég læt ekkert eftir mér hafa um þetta mál. Það er verið að blása þetta upp sem ein- hverja vitleysu. Ég er ekki í nein- um málaferlum. Ég segi það eitt að ég segi ekki neitt,“ segir Kristján Hreinsson Skerjafjarðarskáld. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins leita þeir leiða til sátta Kristján, sem samdi íslenskan texta við lag Sveins Rúnars Sig- urðssonar „Ég les í lófa þínum“ - Evrovision-framlag Íslands – en keppnin fer fram 10. til 12. maí í Helsinki. Kristján stendur í þeirri trú að fastmælum hafi verið bund- ið að hann setti saman enskan texta við lagið færi það til Finn- lands. Var það svo að þegar sigur- inn var í höfn og lagið flutt aftur söng Eiríkur Hauksson hendingu úr enskum texta Kristjáns, reynd- ar með skáldaleyfi, og kom fram í fjölmiðlum eftir keppni að þann texta ætti eftir að vinna betur áður en „Ég les í lófa þínum“ yrði sung- ið inn aftur og þá á ensku. Hins vegar varð ofan á að Sveinn Rúnar valdi texta eftir Englend- inginn Peter Fenner en Sveini mun ekki hafa hugnast framlag Kristjáns – textinn „To be or not to be“. Áhöld eru um hvort ein- hver gildur samningur þessa efnis sé milli Sveins og Kristjáns og um það stendur styrinn. Samkvæmt heimildum blaðsins bauð Sveinn Kristjáni borgun til að loka mál- inu eða hundrað tíma greidda fyrir hans vinnu. Kristján mun hins vegar hafa viljað fá svokallaða punkta eða höfundarrétt – greiðsl- ur sem miðast við STEF-gjöld sem verða til í tengslum við hversu mikið lagið er leikið í sjón- og út- varpi. Á það féllst Sveinn ekki en samningafundur með milligöngu STEF-s og Eiríks Tómassonar lög- manns þar á bæ mun verða hald- inn á næstu dögum. Sveinn Rúnar vill, ekki frekar en Kristján, láta hafa neitt eftir sér að svo stöddu en segir yfir- lýsingar að vænta frá sér á næstu dögum. Þegar á daginn kom að lag Sveins Rúnars við texta Kristjáns sigr- aði í forkeppninni hér heima bár- ust Sveini Rúnari níu textar víðs vegar að úr heiminum. Svo er að textahöfundar margir setja saman enska texta sem þeir senda svo á lagahöfunda með það fyrir augum að koma þeim og sér á framfæri. Þannig mun það vera með Peter Fenner sem sendi Sveini Rúnari textann að fyrra bragði. Þannig fékk Sveinn Rúnar einnig send- an texta frá íslenskum lækni sem búsettur er í Boston og þannig má áfram telja. Tíu erlendum blaðamönnum hefur verður boðið á tónlistar- hátíðina Aldrei fór ég suður, sem verður haldin á Ísafirði um páskana. Koma níu þeirra frá bresku blöðunum Times, Guardi- an, Mojo, Clash Magazine og Fly og frá þýsku blöðunum Focus og Music Woche. „Þetta er mjög öflugur hópur. Þarna verður meðal annars rit- stjórinn af popp-rokkdeildinni á Times,“ segir Anna Hildur Hildi- brandsdóttir hjá ÚTÓN, Útflutn- ingsskrifstofu íslenskrar tón- listar, sem stendur fyrir komu blaðamannanna í samráði við Ísa- fjarðarbæ. ÚTÓN hefur ákveðið að vera í samstarfi við Aldrei fór ég suður, sem liður í því mark- miði að koma íslenskri tónlist á framfæri erlendis, og er koma blaðamannanna hluti af því. Þá mun Jan Sneum frá danska ríkisútvarpinu koma á hátíðina en hann hefur um þrjátíu ára skeið verið öflugur stuðningsmaður ís- lenskrar tónlistar og unnið ötul- lega að því að koma henni á fram- færi. ÚTÓN hyggst heiðra Jan fyrir fórnfús störf í þágu íslenskrar tónlistar í tilefni af komu hans. Vestfirsk hátíð vekur athygli ytraGnoðavogi 44, s. 588 8686. Opið alla laugardaga 11-14 STÓR HUMAR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.