Tíminn - 08.12.1979, Page 9

Tíminn - 08.12.1979, Page 9
Laugardagur 8. desember 1979 9 [ BÓKAFREGNIR: I Söguskýring- ar á Skopöld Út er komin bókin Söguskýr- ingar á Skopöld sem hefur aö geyma úrval af teikningum Sig- mund. Meðalannars eruíbókinni flestar mynda hans úr land- helgisstrföum Islendinga. Myndir Sigmunds skipa hon- um i flokk meö frægum skop- teiknurum eins og Herblock, Low og Storm P. Og þar sem heilsiðugreinar duga ekki til aö lýsa tilfinningu og viöhorfum á sviði stjórnmála og menningar, þarf Sigmund ekki nema nokkur strik til aö taka af skarið um þaö sem menn vildu sagt hafa. Slík eldsnögg viðbrögö hugar og handar eru náðargáfa. Still hans er ákaflega per- sónulegur og sérstæður, og til- fyndnin meö eindæmum. Þaö er þvi mikill fengur aö þeirri bók, sem nú kemur fyrir almanna- sjónir með ýmislegt af þvi besta sem Sigmund hefur teiknaö. Hin margvislegu efnahagsundur og þrautatimar möppudýra veröa ekki eins yfirþyrmandi eftir aö Sigmund hefur sýnt hin fjöl- þættu fyrirbæri daglegs lifs i skopljósi. Honum er, eins og meisturum þessarar greinar háölistar, gefið aö sjá á snöggu andartaki niöur á fertugt dýpi hégóma og úrræðaleysis. Hugurinn er skýr og höndin er viss og verk hans eru hin sviö- andi svipa. Nelson Fyrir nokkrum árum hóf Bókaútgáfan örn og örlygur út- gáfu bókaflokks um frömuöi sögunnar. Viö allar þessar bækur er sömu aöferö beitt: ákveðnir þættir og ákveöiö timabil sögunnar kynnt út frá einhverjum einstaklingi sem öörum fremur hefur breytt gangi hennar. Nú er komið út sjötta bindi þessa bókaflokks og jallar þaö um NELSON, flotaforingjann mikla. Höfundur þess er Roy Hattersley, sem kunnastur er ér á landi fyrir afskipti sin af siö- asta þorskastriöi. Hér kynn- umst viö nýrri hlið á Roy Hattersley, rithöfundin og sagn- fræöingnum, en hann hefur lagt stund á stjórnmálafræöi og sögu, og viröast tök hans á þeim efnum betur heppnuö en afskipti hans af landhelgisdeilum. Þýö- andi bókarinnar er Jón A Gissurarson. Það er sammerkt meö bóka- flokki þessum aö höfundar rit- anna eru i senn vel ritfærir og ráða yfir staögóöri þekkingu á þvi efni sem um er fjallaö. Mikil vinna hefur einnig veriö sýni- lega lögö i myndaval, þar sem bæöi eru samtimamyndir og seinni tima ljósmyndir ásamt greinargóöum kortum, enda er árangurinn jafnan afar glæsi- legur. Umsjón meö islensku útgáf- unni hefur örnólfur Thorlacius. Bókin um Nelson er filmusett og umbrotin i prentstofu G. Benediktssonar en prentuö I Englandi. Kökur og Kjúklingar A sl. ári hóf Bókaútgáfan örn og örlygur útgáfu bókaflokks um matreiöslu sem ber sam- heitiö Litlu matreiöslubækurn- ar. Höfundur þeirra er Lotte Haveman en þýðandi Ib Wess- man. Bækurnar eru aö þvi leyti til sérstæöar aö hver þeirra fjallar um afmarkaö sviö matargeröar og eru þar af leiö- andi mjög andhægar i allri notk- un. Nú hafa bætst viö tvær nýjar bækur I þennan flokk, fjallar önnur þeirra um KÖKUR en hin um KJÚKLINGA. Aður voru komnar út fjórar bækur. Abætisréttir, Pottréttir, Kartöflur og Otigrill og glóðar- steikur. Hver réttur fær eina opnu i Litlu matreiöslubókunum og er þar aö finna auk uppskrifta og leiðbeininga stóra litmynd af viðkomandi rétti Kvenlýsíng- ar í Reykja- vlkurskáid- sögum OT er komin bókin Kvenlýsing- ar i sex Reykjavikurskáldsög- um eftir seinni heimsstyrjöld. Höfundur er Geröur Steinþórs- dóttir cand. mag. og er hér um aö ræöa ritgerö hennar til' kandldatsprófs i islenskum bók- menntum frá Háskóla Islands haustiö 1978. Bókin er gefin út af Hinu islenska bókmenntafélagi I samvinnu viö Rannsóknastofn- un I bókmenntafræöi viö Há- skólann. Er hún fjóröa bókin I flokki fræöirita stofnunarinnar. Skáldsögurnar sex sem fjall- að er um eru þessar: Atómstöö- in eftir Halldór Laxness, Dlsa Mjöli eftir Þórunni Elfu Magn- úsdóttur, Sóleyjarsaga eftir Elias Mar, Sjötiu og niu af stöö- innieftir Indriöa G. Þorsteins- son, Dyr standa opnar eftir Jökul Jakobsson og Dægurvlsa eftir Jakoblnu Siguröardóttir. — Kvenlýsingar I þessum sögum eru kannaöar út frá hugmynda- fræöi kvenfrelsishreyfingarinn- ar. Skiptist bókin I tvo megin- hluta: 1 hinum fyrri er fjallaö um karlveldisþjóöfélagiö og drepiö á nokkrar hugmyndir sem mótaö hafa viöhorf til kvenna I vestrænni' menningu. Þá er lýst kvenfrelsisstefnu I bókmenntarannsóknum og greiningaraðferðum feminlskra fræöimanna. 1 seinni hluta eru sögurnar kannaöar' hver fyrir sig, staða kvenna þar og sú hug- myndafræöi sem aö baki býr. Bókin Kvenlýsingar I sex Reykjavikurskáldsögumer I tlu köflum, auk þess ritaskrá og efnisútdráttur á ensku. 1 for- mála gerir höfundur grein fyrir aðdraganda þess aö ritgeröin var samin og segir þar meöal annars: „Þessi fræöi sem einu nafni má nefna kvennasögu hafa veriö ósýnileg I mennta- kerfi okkar, en hlutverk þeirra er einmitt aö kenna okkur aö greina og skilja sögu kvenna og mynd þeirra i lifi og listum. Endanlegt markmiö sögunnar af þessari gerö er pólitiskt, kvenfrelsi”. Bókin er liölega 220 bls. Oddi prentaöi. Næstsíðasti dagur ársins Mál og menning hefur sent frá sér skáldsöguna NÆSTSIÐASTI DAGUR ARSINS eftir Normu E. Samúelsdóttur. Undirtitill er Dagbók húsmóöur I Breiöholti. I forlagskynningu er bókinni lýst á eftirfarandi hátt: „Beta, húsmóöir i Breiöholti, situr viö dagbókarskriftir sem hún gripur I hvenær sem tóm gefst. Þessi dagbók er sjálfs- staöfesting hennar, þar leitast hún viö aö gera upp llf sitt I for- tið og nútlö, hispurslaust og af einlægni. Fjölskyldullf og kjör, og ekki siður þaö nöturlega um- hverfi sem hún hrærist I, birtist ljóslifandi og er samofið allri frásögninni. Upp af slitróttum dagbókar- blöðum, þar sem renna saman endurminningar, svipmyndir daglegs lifs og hvers konar utanaökomandi áreiti, ris smám saman heilsteypt pers- ónulýsing, skýr og trúveröug mynd af hlutskipti láglauna- fólks, húsmæöra fyrst og fremst, i svefnhverfum Stór- Reykjavikur. Þvl nærtæka viö- fangsefni hafa ekki fyrr veriö gerð skil I Islenskri skáldsögu. Næstsiöasti dagur ársins er fyrsta bók Normu E. Samúels- dóttur og var meöal þeirra handrita sem bárust I skáld- sagnasamkeppni Máls og menningar I fyrra. Bókin er 155 blaösiöur, prentuö I Prentstofu G. Benediktssonar. Lokabindi „Sögu frá Skagfirð- ingum” Út er komiö á vegum IÐ- UNNAR fjóröa og slöasta bindi af Sögu frá Skagfiröingum eftir Jón Espóiin og Einar Bjarna- son. Þaö er heimildarrit I ár- bókarformi um tlöindi, menn og aldarhátt I Skagafiröi 1685-1847, en jafnframt nær frásögnin I og meö til annarra héraöa, einkum á Noröurlandi. Jón Espólín sýslumaöur er höfundur verks- ins allt fram til ársins 1835, en siöan Einar Bjarnason fræöi- maöur á Mælifelli og gerist frá- sögnin þvi fyllri og fjölbreyttari þvi nær sem dregur I tlma. Fjóröa og síöasta bindiö tekur yfir árin 1842-47. Aftan viö text- ann eru athugasemdir og skýr- ingar sem Kristmundur Bjarna- son hefur tekiö saman, svo og grein eftir Hannes Péturssonþar sem leidd eru rök aö þvl aö Framhald á bls. 23. NÝ S/GUNGALEID BÆTT tUÓNUSTA Viö höfum hafió reglubundnar siglingar á nýrri flutningaleió, 14 daga fastaferóir allan ársins hring milli Larvikur, Gautaborgar, Kaup- mannahafnar og íslands. Flutt verður stykkjavara, gámar, kæli- og frystivara. Umboósmenn okkar á hinni nýju siglingaleið eru: Larvik: P.A. Johannessens Eftf. Storgaten 50 3251 LARVIK Cable: ■'SHIPSN" Telex: 21522 Phone: (034) 85 667 Gautaborg: Borlind, Bersén & Co. P.O. Box 12113 Kaj 51 S-402 42 Göteborg 12 Cable: Borlinds Telex 2341 Kaupmannahöfn: Allfreight Ltd. 35, Amaliegade DK-1256 Copenhagen K. Cable: Alfragt Telex: 19901 b Alckh Phone:(01) 111214 Phone: 031/24 3422 Að sjálfsögðu bjóóum vió áfram reglubundnar ferðir frá eftirtöldum stöðum: Helsinki, Svendborg, Hamborg, Rotterdam, Antwerpen og Goole auk Halifax i Kanada og Gloucester í Bandaríkjunum. Komió. hringið, skrifið — viö veitum allar nánari upplýsingar fljótt og örugglega. SKIPADEILD SAMBANDSINS SAMBANDSHÚSINU REYKJAVÍK SÍMI 28200

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.