Fréttablaðið - 11.05.2007, Síða 2
Um 40 hross í Rangár-
þingi ytra, sem verið hafa til
umfjöllunar vegna meintrar van-
fóðrunar í vetur, eru sum hver
mögur en þó komin í bata, enda
komin græn nál í hagann.
Blaðamenn Fréttablaðsins
fundu umrædd hross í gær þar
sem þeir voru á yfirreið fyrir
austan fjall í gær. Það duldist ekki
að þau hafa átt harðan vetur, sem
komið hefur mishart niður á þeim.
Þau verst settu eru enn grindhor-
uð, þegar tekið er á síðum þeirra.
Þau eru úfin í hárum, komin
með svokallað slöður; dældir sem
myndast í lend, bak og makka
þegar gengur á fituvefina í skepn-
unni og upplit þeirra var dauflegt.
Svo var ástatt um jarpt hross og
annað brúnskjótt. Þá vakti athygli
fíngerð brún hryssa, í fyrstu fyrir
digra flókadröngla sem héngu
niður úr faxi og tagli. Bágt holda-
farslegt ástand hennar skýrðist
svo þegar rummungstryppi tók að
sjúga hana. Svipaða flókadröngla
mátti sjá í faxi og tagli fleiri
hrossa þarna.
Flest hinna hrossanna voru í
greinilegum bata, enda vorið fyrir
austan mánuði fyrr á ferðinni
heldur en venjulega, að sögn fólks
á þeim slóðum. Haginn er því far-
inn að taka við sér.
„Ég starfa samkvæmt búfjár-
lögum,“ segir Óðinn Örn Jóhanns-
son búfjáreftirlitsmaður á Suður-
landi, sem kvaðst ekki tjá sig um
málið í fjölmiðlum.
Katrín Andrésdóttir, héraðs-
dýralæknir á Suðurlandi, kvaðst
fyrst hafa fengið tilkynningu um
þetta mál fyrir nokkrum dögum
frá Dýraverndarsambandi
Íslands, eftir að umfjöllun um
það hafi hafist á heimasíðu sam-
bandsins.
Jón Atli, höfðuð þið ekki efni á
ferfættum hundi?
Jose Ramos-Horta er nýkjörinn
forseti Austur-Tímor eftir stórsigur á keppinaut
sínum og leiðtoga stjórnarflokks landsins, Francisco
„Lu-Olo“ Tuterres, í úrslitaumferð forsetakosning-
anna í gær. Horta var með 73 prósent atkvæða þegar
90 prósent höfðu verið talin. Talið var að kjörsókn
hefði verið um 80 prósent.
Horta er handhafi friðarverðlauna Nóbels og
hefur verið forsætisráðherra landsins undanfarið ár.
Hann hét því að standa við kosningaloforðin og
vinna með alþjóðasamfélaginu að bjartri framtíð
Austur-Tímor.
Eftirlitsmenn kosninganna sögðu atkvæðagreiðsl-
ur hafa farið friðsamlega fram og án ógnana, ólíkt
fyrstu umferð kosninganna í síðasta mánuði þegar
til átaka kom milli andstæðra fylkinga.
Vonast er til að kjör Horta þýði nýja tíma friðar
og stöðugleika hjá þessari yngstu þjóð Asíu. Ár er
síðan mannskæð ofbeldisalda felldi ríkisstjórnina og
leiddi til þess að meira en 155 þúsund manns flúðu
frá heimilum sínum.
Árið 1999 fékk Austur-Tímor sjálfstæði frá
Indónesíu. Þrátt fyrir talsverðar olíu- og gasauðlind-
ir er nánast helmingur vinnuafls á Austur-Tímor án
atvinnu. Um 60 prósent barna undir fimm ára eru
vannærð og tugir þúsunda manna hafa flúið af
heimilum sínum og þora ekki að snúa heim og halda
til í tjaldbúðum.
Hross braggast eftir
vanhirðu og svelti
Hross í Rangárþingi ytra, sem fjallað hefur verið um í fjölmiðlum vegna van-
fóðrunar, eru sum hver mjög mögur eftir veturinn. Fréttablaðið skoðaði hrossin
í gær. Flest þeirra eru á batavegi enda vorið fyrr á ferð en vanalega.
Fulltrúar netfyrirtækisins
Yahoo eru staddir hér á landi til
þess að kanna möguleika á að reisa
netþjónabú á Íslandi. Fulltrúarnir
funduðu með Geir H. Haarde for-
sætisráðherra og Guðlaugi Þór
Þórðarsyni, stjórnarformanni
Orkuveitunnar, í gær.
„Þetta er afar spennandi hug-
mynd og það er jákvætt að Íslandi
skuli vera sýndur þessi áhugi.
Fulltrúar Yahoo hafa komist að
því að hér er vinsamlegt umhverfi
fyrir atvinnurekstur af þessu
tagi,“ segir Geir.
Yahoo rekur nú þegar um 20
netþjónabú víða um heim en net-
þjónabú eru eins konar gagna-
stöðvar þar sem netþjónar eða
gögn eru hýst. Talsverða orku þarf
fyrir slíka starfsemi og því þykir
Ísland fýsilegur kostur.
„Ísland er þekkt fyrir að vera
umhverfisvænt og hér er ódýr
orka í boði. Við erum mjög ánægð-
ir með það sem við höfum séð hér
og íslenskir fjárfestar sýna hug-
myndinni áhuga,“ segir Kevin
Timmons, varaforseti aðgerða-
deildar Yahoo. Hann segir að við-
ræður séu enn á frumstigi.
Verði Ísland fyrir valinu gæti
netþjónabúið tekið til starfa innan
þriggja ára. Nýr sæstrengur er
forsenda þess að netþjónabú geti
tekið til starfa. Samkvæmt upp-
lýsingum frá samgönguráðuneyt-
inu er stefnt að því að leggja
sæstreng á næsta ári sem unnt
verður að taka í notkun haustið
2008.
Íslenskir fjárfestar sýna áhuga
Fjárfestingafélag
Ingunnar Wernersdóttur, Inn
fjárfesting,
hefur keypt
svokallað
Alliance-hús af
Reykjavíkur-
borg fyrir 925
milljónir króna.
Það er sama
upphæð og
borgin greiddi
Herði Einars-
syni, fyrrver-
andi eiganda
DV, fyrir húsið í síðustu viku.
Ytra byrði hússins mun verða
verndað. Innan dyra verður
starfsemi tengd menningu og
listum. Alliance-húsið er á
Grandagarði 2. Í dag rekur
Penninn þar húsgagnaverslunina
Saltfélagið.
Leigusamningur Saltfélagsins í
húsinu verður ekki endurnýjaður
þegar hann rennur út. Ingunn
Wernersdóttir og bræður hennar
losuðu nýlega gríðarlega fjár-
muni með sölu á hlut sínum í
Glitni.
Ingunn kaupir
á 925 milljónir
Jónas Garðarsson,
fyrrverandi
formaður Sjómanna-
félags Reykjavíkur,
var í gær dæmdur í
þriggja ára óskil-
orðsbundið fangelsi
fyrir manndráp af
gáleysi. Þetta er
þyngsti dómur sem
fallið hefur hér á
landi fyrir brot sem fellur undir
þess háttar lögbrot.
Jónas var dæmdur fyrir að hafa
stýrt skemmtibátnum Hörpu undir
áhrifum áfengis er hann steytti á
Skarfaskeri aðfaranótt 10.
september 2005. Friðrik Á.
Hermannsson og Matthildur V.
Harðardóttir létust í slysinu, auk
þess sem eiginkona Jónasar
slasaðist alvarlega.
„Dómarinn dæmir, ekki ég,“ var
það eina sem Kristján Stefánsson,
lögmaður Jónasar, sagði eftir að
dómurinn var kveðinn upp. Jónas
var ekki viðstaddur.
Hlaut þriggja
ára fangelsisdóm
Novator, félag Björgólfs
Thors Björgólfssonar, ætlar á
næstu dögum að leggja fram
yfirtökutilboð í Actavis. Tilboðið
mun hljóða upp á 85,23 krónur á
hlut. Miðað við það verð yrði
kaupverðið um 176 milljarðar
króna.
Björgólfur Thor segir markmið
yfirtökunnar að formbreyta
félaginu og stytta og einfalda ferli
ákvarðana. Verði af henni verður
Actavis skráð af markaði.
Hlutabréf í Actavis hækkuðu
um hátt í tólf prósent í Kauphöll
Íslands í gær. Lokagengi félagsins
var 87,50 krónur á hlut og því
hærra en tilboð Novator.
Tilboð upp á
176 milljarða
Þrír sautján og átján ára
piltar hafa verið dæmdir í þriggja
ára skilorðsbundið fangelsi fyrir
þjófnað, hylmingu og brot á
lögreglulögum í september og
desember í fyrra.
Piltarnir brutust saman inn í
verslun á Akureyri og stálu þaðan
skíðabúnaði, meðal annars 79
húfum, 30 pörum af hönskum, 30
snjóbrettum, hundrað skíðagler-
augum og 65 dósum af skíðaáburði,
samtals að verðmæti rúmlega tvær
milljónir króna. Þá greip einn
þeirra aftan í lögreglumann við
skyldustörf og tafði hann. Dómur-
inn var kveðinn upp í Héraðsdómi
Norðurlands eystra.
Stálu býsn af
skíðavörum