Fréttablaðið - 11.05.2007, Blaðsíða 4
Að fenginni reynslu er
yfirkjörstjórn Suðurkjördæmis
með þrjár varaáætlanir tilbúnar
ef veður hamlar hefðbundnum
flutningi kjörgagna frá Vest-
mannaeyjum til Selfoss þar sem
atkvæði í kjördæminu verða talin.
Áætlað er að fljúga með
atkvæðin og lenda á Selfossflug-
velli. Hamli veður flugi flugvéla
verður þyrla Landhelgisgæslunn-
ar fengin til verksins. Sé
óflugfært með öllu verða atkvæð-
in flutt með björgunarbátnum Þór.
Ef öldurótið er þeim mun meira
verður notast við varðskip.
Spáin er ágæt og bendir flest til
að flugleiðin verði fær.
Þrjár varaleiðir
ef flugið bregst
Stefán Jón Hafstein,
fyrrverandi formaður mennta-
ráðs Reykjavíkurborgar, segir
ummæli Júlíusar Vífils Ingvars-
sonar, formanns menntaráðs, í
Fréttablaðinu í
fyrradag um að
hann hefði nýtt
sér aðgang að
netföngum
starfsmanna
borgarinnar,
tilhæfulaus.
Júlíus Vífill
sagði tölvupóst
Stefáns Jóns,
þar sem meðal
annars var rætt
um kosninga-
mál, til kennara og skólastjórn-
enda í Reykjavík hafa mælst illa
fyrir hjá stórum hópi. Stefán Jón
segir að um fréttabréf hafi verið
að ræða sem hafi farið fyrir
vangá á tvo aðra hópa í póst-
fangaskrá sinni.
Sendi póst óvart
á tvo aðra hópa
0,00
2,00
4,00
6,00
8,00
10,00
12,00
14,00
16,00
2003 2004 2005 2006 2007
Stýrivextir
Seðlabankans
STÝRIVEXTIR Á YFIRSTANDANDI KJÖRTÍMABILI
ER ÞETTA
EFNAHAGSLEGUR
STÖÐUGLEIKI???
ALLT ANNAÐ LÍF!
– með vinstri grænum
Mikil stemning ríkti
í húsakynnum Verkamanna-
flokksins í bænum Sedgefield,
kjördæmi Tonys Blair á norðaust-
anverðu Englandi, þegar hann
lýsti því yfir að þann 27. júní
næstkomandi myndi hann
afhenda Elísabetu Bretadrottn-
ingu afsagnarbréf sitt.
Hann viðurkenndi að hafa gert
mistök og ekki náð fram öllu því
sem að var stefnt þegar hann tók
við embættinu fyrir tíu árum, en
stærði sig engu að síður af árangri
ríkisstjórnarinnar þau tíu ár sem
hann hefur verið við völd:
„Frá árinu 1945 hefur aðeins
ein ríkisstjórn verið við völd sem
getur sagt allt þetta: Fleiri störf,
færri atvinnulausir, betri árang-
ur í heilbrigðismálum og mennta-
málum, færri glæpir og efna-
hagsvöxtur á öllum sviðum,“
sagði Blair í hópi dyggustu stuðn-
ingsmanna sinna í gær í Sedgefi-
eld þar sem stjórnmálaferill hann
hófst árið 1983 þegar hann var
fyrst kosinn á þing.
Í ræðu sinni lagði Blair áherslu
á að hann hefði ávallt gert það
sem hann taldi vera rétt hverju
sinni, jafnvel þótt margir hefðu
verið ósammála. Þar vísaði hann
meðal annars í ákvörðun sína um
að taka þátt í hernaði í Írak með
Bandaríkjamönnum.
„Ég kann að hafa haft rangt
fyrir mér, en það er undir ykkur
komið,“ sagði hann og lagði verk
sín undir dóm áheyrenda.
Gordon Brown fjármálaráð-
herra þykir nokkuð öruggur um
að verða fyrir valinu þegar Verka-
mannaflokkurinn kýs arftaka
Blairs í leiðtogaembætti flokks-
ins.
Í gær skýrði John Prescott,
sem er bæði varaformaður Verka-
mannaflokksins og aðstoðarfor-
sætisráðherra, frá því að hann
myndi einnig segja af sér.
Blair hefur ekki gefið neitt
annað í skyn en að hann ætli sér
að sitja áfram á þingi þótt hann
hætti sem forsætisráðherra. Að
minnsta kosti fram að næstu
kosningum, sem líklega verða
árið 2009 eða í síðasta lagi árið
2010.
Komið hefur til tals að hann
snúi sér að málefnum Afríku og
fái eins konar ráðgjafarhlutverk
til að draga úr fátækt þeirrar
heimsálfu. Eins þykir koma til
greina að hann taki sér fyrir
hendur að vinna að friðarmálum í
Mið-Austurlöndum og einbeita
sér þá einkum að deilum Ísraela
og Palestínumanna.
Meiri líkur þykja þó til þess að
hann vilji koma á fót nýrri
alþjóðastofnun sem hefði það
hlutverk að efla samskipti og
skilning milli ólíkra trúarbragða,
ekki síst milli kristinna manna og
múslima.
Segist hafa þjónað
besta landi í heimi
Tony Blair lætur af embætti forsætisráðherra Bretlands 27. júní. Næstu vikurn-
ar velur Verkamannaflokkurinn sér nýjan leiðtoga. Sigurstranglegastur þykir
Gordon Brown fjármálaráðherra. Óvíst hvað Blair tekur sér fyrir hendur.
Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra
hefur farið fram á að Kastljós leiðrétti umfjöllun sína
um veitingu ríkisborgararéttar til kærustu sonar
hennar og biðjist afsökunar „á hneykslanlegri og
fráleitri umfjöllun sinni“. Krafa þess efnis var send
útvarpsstjóra, Páli Magnússyni, í gærmorgun.
Í bréfi fer Jónína hörðum orðum um vinnubrögð
Kastljóssins; hún segir umfjöllunina hafa verið
hroðvirknislega og hlutdræga, auk þess sem stað-
reyndir hafi verið falsaðar.
Jónína segir Kastljós hafa brugðist skyldum sínum
og að vinnubrögðin brjóti í bága við lög um Ríkisút-
varpið ohf. og siðareglur Blaðamannafélagsins.
Jónína segir enn fremur að umfjölluninni hafi
augljóslega verið ætlað að koma höggi á hana og
Framsóknarflokkinn örfáum dögum fyrir kosningar
og valda henni og flokknum álitshnekki. „Og þar með
hvorki meira né minna en að hafa áhrif á niðurstöðu
kosninganna 12. maí.“ Verði ekki orðið við kröfum um
leiðréttingu og afsökunarbeiðni ætlar Jónína að kæra
umfjöllun þáttarins til siðanefndar Blaðamannafé-
lagsins.
Bréf Jónínu hafði ekki borist Páli Magnússyni í
gær. Áður hefur Þórhallur Gunnarsson, ritstjóri
Kastljóss, sagt þáttinn standa við umfjöllun sína.
Íslenskir fisk-
markaðir seldu fisk fyrir 6.956
milljónir króna fyrstu fjóra
mánuði ársins. Árið 2006 var selt
fyrir 5.152 milljónir. Þetta er
langmesta verðmæti á þessu
tímabili frá upphafi. Næstmesta
verðmætið fyrstu fjóra mánuði
árs var 2001 eða 6.097 milljónir.
Þessar upplýsingar koma fram
á vef Reiknistofu fiskmarkaða.
Meðalverðið þessa fjóra mánuði
var 170,26 krónur á kíló sem er
það næsthæsta á þessu tímabil.
Hæsta meðalverðið var árið 2002
eða 176,24 krónur.
Fyrstu fjóra mánuði þessa árs
voru seld 40.857 tonn, en í fyrra
voru seld 41.191 tonn.
Enn eitt sölu-
metið sett
Tomislav Nikolic, nýr
forseti serbneska þjóðþingsins, er
þeirrar skoðunar að Serbía ætti
að hætta að leita eftir nánari
tengslum við Vesturlönd og snúa
sér þess í stað að Rússlandi.
„Rússland mun finna leið til að
tengja saman ríki sem vilja
standa upp gegn alvaldi Banda-
ríkjanna og Evrópusambandsins,“
sagði Nikolic, sem er leiðtogi
Róttæka flokksins, flokks
þjóðernissinnaðra Serba.
Hvorki hefur gengið né rekið í
stjórnarmyndunarviðræðum í
Serbíu frá því kosningar voru
haldnar þar í janúar.
Nikolic vill leita
til Rússlands