Fréttablaðið - 11.05.2007, Page 9
www.xf.is Skeifan 7 | Reykjavík | sími 553 6061
Íslendingar!
Frjálslyndi flokkurinn er ungt stjórnmála-
afl og leggur nú fram stefnu sína í
alþingiskosningum í þriðja sinn á átta
árum. Við erum stolt af okkar stefnufestu
í Frjálslynda flokknum, um að tryggja
þjóðareign á hafinu, auðlindum okkar
og að verja atvinnufrelsi einstaklinga. Í sjávarútvegi viljum við útúr afar
óréttlátu kvótakerfi, sem færir sjávarauðlindir á fárra manna hendur, ef
núverandi ríkisstjórn fer áfram með völd.
Kosningarnar nú snúast um það hvort festa eigi í sessi það óréttlæti
að auðlindir þjóðarinnar, til lands og sjávar, orkan og fiskistofnarnir, eigi
í framtíðinni að tilheyra fáum auðmönnum eða vera þjóðareign. Jafna
þarf stöðu landsbyggðar og höfuðborgarsvæðis með betri samgöngum
og minni flutningskostnaði. Það er megin forsenda þess að hægt sé
að halda landinu í byggð og geta þannig í framtíðinni sýnt vaxandi fjölda
ferðamanna hvernig fólkið lifir í landinu og nýtir náttúrugæðin til sjávar
og sveita.
Við viljum tryggja afkomu eldri borgara og sjá til þess að fólkið, sem
skilaði okkur því nútíma Íslandi sem við lifum í, fái notið sín, sinna verka
og lifað efri árin með reisn.
Við viljum að þjóðfélag okkar geti stjórnað þeim fjölda fólks sem hingað
kemur og þannig tryggt að það njóti sambærilegra kjara og við hin.
Við líðum ekki undirboð á vinnumarkaði og munum verja þau kjör sem
tók verkalýðshreyfinguna áratugi að byggja upp.
Frjálslyndi flokkurinn mun hér eftir sem hingað til fylgja stefnumálum
sínum fast eftir, því geta kjósendur treyst.
Með kveðju,