Fréttablaðið - 11.05.2007, Page 10

Fréttablaðið - 11.05.2007, Page 10
 Undir þrýstingi jafnvel frá bandamönnum sínum sættust fulltrúar Íransstjórnar á þriðjudag loks á málamiðlunar- samkomulag um dagskrártextann fyrir ráðstefnu í Vínarborg um kjarnorkumál með fulltrúum 130 ríkja. Þar með gat sjálf ráðstefnan loks hafist eftir að pattstaða í sex daga stefndi í að láta samkomuna fara út um þúfur áður en hún gat í raun hafist. Ákvörðun ráðamanna í Teheran um að láta ráðstefnuna ekki stranda á andstöðu þeirra við slíkt formsatriði bægði frá þeirri ásök- un að þeir vildu frekar sjá hana fara út um þúfur en að hætta á að á henni yrði ályktað um tregðu Írana til að fara að kröfum örygg- isráðs Sameinuðu þjóðanna um að stöðva auðgun úrans. Aðalviðfangsefni ráðstefnunn- ar er að leita leiða til að efla alþjóðasáttmálann gegn útbreiðslu kjarnorkuvopna. Atriðið sem stefndi í að láta hana fara út um þúfur var orðalag í dagskrártext- anum, þar sem kveðið var á um „þörfina á að [öll aðildarríki sátt- málans] uppfylltu að fullu ákvæði“ hans. Í stað þessa orðalags var samþykkt suður-afrísk málamiðl- unartillaga, þar sem kveðið er á um að „öll ákvæði“ sáttmálans beri að virða. Íranar féllust á málamiðlun Á fundi í heilbrigð- isráðuneytinu í febrúar var bæj- aryfirvöldum í Vestmannaeyjum kynnt hugmynd um róttækar breytingar á sjúkraflugi. Hug- myndin er að þyrlur Landhelgis- gæslu Íslands (Lhg) sinni sjúkra- flutningum í bráðatilfellum og öðrum tilfellum með flugvél sem staðsett yrði á Norðurlandi. Bæj- arstjóri hafnar hugmyndinni og yfirlæknir lýsir yfir þungum áhyggjum. Gildandi samningur um sjúkraflug rennur út 30. júní. Ráðuneytisstjóri segir ýmsa möguleika hafa verið rædda og ákvörðun verði ekki tekin nema í samráði við heimamenn. Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segir að á fundi í heilbrigðisráðuneytinu í febrúar hafi honum verið kynntar hug- myndir um róttækar breytingar á fyrirkomulagi sjúkraflugsins. „Ein felst í því að þyrlur Land- helgisgæslunnar sinni flugi við Eyjar í bráðatilfellum en við- bragðsstigi tvö og þrjú með sér- hæfðri vél frá Akureyri. Ég lýsti því á fundinum að skoðanir okkar heimamanna væru óbreyttar hvað varðar kröfuna um að hér sé öllum stundum staðsett sjúkraflugvél og henni var vel tekið.“ Í opnu bréfi á vefnum Eyjar.net, þar sem Hjörtur Kristjánsson, yfirlæknir Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja, er annar bréfrit- ara, segir að ef sjúkraflugvél verði ekki staðsett í Vestmannaeyjum muni öryggi íbúa vera stefnt í hættu, því „sá tími sem líður frá því að útkall berst þar til sjúkling- ur er kominn á sjúkrahús í Reykja- vík þrefaldast þegar best lætur“. Dagmar Sigurðardóttir, upplýs- ingafulltrúi Lhg, þekkir til hug- mynda um aðkomu Landhelgis- gæslunnar að sjúkraflugi til Vestmannaeyja. Dagmar segir þær jákvæðar og að um verkefni sé að ræða sem Lhg geti leyst. Það sé hins vegar stjórnvalda að ákveða hvernig sjúkrafluginu verði hagað í framtíðinni. Davíð Gunnarsson, ráðuneytis- stjóri heilbrigðisráðuneytisins, segir engar ákvarðanir hafi verið teknar um hvernig staðið verði að sjúkraflugi við Vestmannaeyjar eftir að samningurinn rennur út. „Hins vegar höfum við velt fyrir okkur ýmsum lausnum og ákvörð- un verður ekki tekin nema í sam- ráði við heimamenn.“ Davíð segir engan einn kost vera meira í umræðunni frekar en annan, en fundur sé skipulagður með bæjar- stjóra Vestmannaeyja eftir miðjan maí þar sem framtíð sjúkraflugs- ins verður rædd. Eyjamenn óttast að missa sjúkraflugvél Heilbrigðisráðuneytið hefur kynnt bæjaryfirvöldum í Vestmannaeyjum hug- mynd um færslu sjúkraflugs frá bænum. Bæjarstjóri segir það útilokað. Ekkert ákveðið, segir ráðuneytisstjóri. Yfirlæknir segir öryggi bæjarbúa ógnað. Sá tími sem líður frá því að útkall berst þar til sjúklingur er kominn á sjúkrahús í Reykjavík þrefaldast þegar best lætur. FYRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR www.visir.is Meðal dagskráratriða í dag, 11. maí: Afmælisdagur Kópavogs! Gjábakki kl. 12–16. Brú milli kynslóða – Ungir og aldnir fagna afmæli bæjarins og Gjábakka. Smáralind kl. 16. Barnakórar í Kópavogi sameinast í söng í Vetrargarðinum. Salurinn kl. 17–18. Hátíðardagskrá – veiting listamannastyrkja og heiðurslistamaður Kópavogs 2007 tilnefndur. Legómeistarar • leikbrúðusýning • opin hús. Kynnið ykkur dagskrána nánar á kopavogur.is afsláttur GÆÐI Á LÆGRA VERÐI*Gildir ekki með öðrum tilboðum!
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.