Fréttablaðið - 11.05.2007, Side 12
Ferðaskrifstofa
Leyfishafi
Ferðamálastofu
Íslendingar hjálp-
uðu sígaununum sem höfðu dval-
ist hér á landi síðustu vikur og
mánuði til Noregs með því að
greiða flugfarið fyrir þá sem ekki
áttu fyrir því. Ekki hafði verið
tekið saman í gær fyrir hversu
marga flugfar hefði verið keypt,
hversu mikill kostnaðurinn hefði
verið og nákvæmlega á hvern
hann félli.
Á vef Icelandair mátti í gær sjá
að flug aðra leiðina til Noregs sem
keypt er með dags fyrirvara kost-
aði 76.580 krónur. Ef miðað er við
að lögreglan hafi keypt far á því
verði fyrir níu af ríflega þrjátíu
sígaunum nemur kostnaðurinn
rúmum 772 þúsundum króna. Ef
níu miðar voru keyptir fram og til
baka á 32 þúsund nemur hann
tæpum 300 þúsund krónum.
Hörður Jóhannesson, aðstoðar-
lögreglustjóri á höfuðborgarsvæð-
inu, segir að sígaunarnir hafi fund-
ist sofandi á víðavangi um síðustu
helgi og fengið að gista og borða
hjá lögreglunni. Þeir hafi síðan
verið „aðstoðaðir“ til Noregs. Ekki
var um brottvísun að ræða. Ríkis-
sjóður og lögreglan á höfuðborg-
arsvæðinu borgi væntanlega brús-
ann.
„Sumir voru með miða, sumir
voru með einhvern pening og
sumir voru ekki með neitt,“ segir
Hörður.
Jóhann Karl Þórisson aðalvarð-
stjóri tekur undir þetta. Sígaun-
arnir hafi sofið úti því þeir hafi
ekki fengið inni á hótelum. Sumir
þeirra hafi hvorki átt í sig né á.
Lögreglustjórinn á höfuðborgar-
svæðinu, Stefán Eiríksson, hafi
tekið ákvörðun um að kaupa flug-
miða fyrir þá og þeir hafi fengið
að velja hvert þeir færu. Þeir hafi
valið Noreg.
Jóhann Karl segir að sígaunarn-
ir hafi verið tæplega fjörutíu tals-
ins. Lögreglan á Akureyri hafi
keypt flug undir átta þeirra alla
leið út og lögreglan í Reykjavík
hafi hjálpað hinum. Reynt verði að
fá kostnaðinn greiddan úr Máls-
kostnaðarsjóði.
Í Leiðbeiningum um málskostn-
að í opinberum málum segir að
útlendingur sem færður er úr
landi samkvæmt lögunum skuli
greiða sjálfur kostnað af brottför
sinni. Fáist hann ekki greiddur
greiðist kostnaðurinn úr ríkis-
sjóði.
Jóhann Karl segir að útlending-
ar séu látnir skrifa undir skulda-
viðurkenningu við brottvísun.
Sígaunarnir hafi skrifað undir
skuldaviðurkenningu því að þeim
hafi ekki verið vísað brott.
Ríkið borgar flugið
Lögreglan hjálpaði Rúmenunum til Noregs með því að borga fyrir þá flugfarið.
Kostnaður er talinn nema hundruðum þúsunda króna.
Enginn hefur verið
yfirheyrður vegna eldsvoðans við
Lundargötu á Akureyri á sunnu-
dagsmorgun. Lögregla telur víst að
kveikt hafi verið í.
„Rannsókn er enn í gangi og við
erum að hnýta ýmsa lausa enda.
Við höfum rætt við marga en
enginn hefur verið yfirheyrður
formlega,“ segir Ólafur Ásgeirs-
son, aðstoðaryfirlögregluþjónn á
Akureyri. Hann segir að flest bendi
til þess að um íkveikju sé að ræða.
Þegar Slökkviliði Akureyrar
barst tilkynning um eldinn á
Lundargötu höfðu slökkviliðsmenn
barist í nokkra stund við elda sem
kveiktir voru á fjórum stöðum í
miðbænum í ruslagámum og á
ferðasalerni. Ólafur segir líklegt að
allir brunarnir tengist.
Enginn verið
yfirheyrður