Fréttablaðið - 11.05.2007, Síða 16
www.xf.is
KJÓSUM SANNGIRNI, VELFERÐ OG ATVINNUÖRYGGI
Sigurjón Þórðarson
Norðausturkjördæmi
Grétar Mar Jónsson
Suðurkjördæmi
Guðjón A. Kristjánsson
Norðvesturkjördæmi
Kolbrún Stefánsdóttir
Suðvesturkjördæmi
Jón Magnússon
Reykjavík Suður
Magnús þór Hafsteinsson
Reykjavík Norður
Kjartan Eggertsson
Reykjavík Suður
Kristinn H. Gunnarsson
Norðvesturkjördæmi
Óskar Þór Karlsson
Suðurkjördæmi
Valdimar Leo Friðriksson
Suðvesturkjördæmi
Ásgerður Jóna Flosadóttir
Reykjavík Norður
Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir
Norðausturkjördæmi
Tryggjum að Frjálslyndi flokkurinn
verði áfram STERK RÖDD Á ALÞINGI
Erlendum starfs-
mönnum hefur fjölgað gríðarlega
í ferðaþjónustu hér á landi und-
anfarin ár og eru þeir sums stað-
ar um fjörutíu prósent starfs-
manna. Hildur Jónsdóttir, eigandi
ferðaþjónustufyrirtækisins Far-
vegur, segir að svo erfiðlega hafi
gengið að manna sumarstörfin í
sumar að heyrst hafi að forsvars-
menn stærstu hótelkeðja hafi
áhyggjur.
Þórður B. Sigurðsson, aðstoðar-
framkvæmdastjóri Fosshótela,
segist geta að nokkru leyti tekið
undir að fólk vanti til starfa.
„Þetta hefur gengið sífellt verr
síðustu þrjú árin,“ segir hann og
kveðst hafa þá tilfinningu að fleiri
útlendingar hafi verið ráðnir til
starfa nú en í fyrra.
Hildur segir að í sumum tilfell-
um tali enginn íslensku. „Þetta er
náttúrulega af því að við eigum
ekki fólk til að manna þessi störf,“
segir hún. „Nú er algengt að nem-
endur vinni bara í sex vikur á
sumrin og það nýtist hótelunum
ekki nógu vel því að þau þurfa
fólk til lengri tíma. Þarna finnum
við fyrir breytingu og þetta þurf-
um við að skoða.“
Sævar Skaptason, fram-
kvæmdastjóri Ferðaþjónustu
bænda, segir að mönnunin sé auð-
vitað „hálfgert vandamál“ í
bændagistingunni, margir bænd-
ur leysi starfsmannamálin með
fjölskyldu og sveitungum en aðrir
leysi það með erlendu starfsfólki.
„Það er allur gangur á þessu. Það
er viðvarandi vandamál að fá
kokka til starfa yfir hásumarið.
Mikið af skólafólki kemur til
vinnu á þessum stöðum en svo
hefur færst í vöxt að erlendir
starfsmenn komi til vinnu úti á
landi,“ segir hann.
„Það er erfiðara og erfiðara að
reka þessa staði með skólafólki í
sumarvinnu því að skólafríin eru
alltaf að styttast og fólk þarf að
hætta vinnu eftir viku til tíu daga
af ágúst. Það er ákveðið vandamál
í rekstri þessara fyrirtækja á
sumrin,“ segir hann.
Ingólfur Einarsson, aðstoðarhót-
elstjóri á Grand hótel, segir að
ástandið í sumar sé gott en til fram-
tíðar litið sé útlitið skelfilegt. Skól-
arnir útskrifi ekki nægilega margt
fólk og því vanti fagfólk í ferða-
þjónustu. Skiptingin sé nú sextíu-
fjörutíu prósent milli Íslendinga og
útlendinga þar sem hann þekki til.
Ríflega 400 þúsund erlendir
ferðamenn komu til Íslands í
fyrra. Búist er við aukningu í ár.
Mannekla í ferða-
þjónustu í sumar
Erfiðlega hefur gengið að manna ferðaþjónustuna í sumar, sérstaklega í bænda-
gistingu þar sem mönnun er vandamál, að sögn Ferðaþjónustu bænda. Styttra
sumarfrí skólafólks kemur niður á mannahaldi í ferðamannaiðnaðinum.
Samhliða alþingiskosn-
ingunum á
morgun
verður gerð
skoðanakönn-
un meðal
kjósenda
Höfðahrepps
þar sem hugur
þeirra til að breyta nafni sveitar-
félagsins í Skagaströnd verður
kannaður.
Hreppsnefnd ákvað þetta í gær
en áhugi nefndarinnar byggist á
að sveitarfélagið beri sama nafn
og þorp þess. Hefur núverandi
nafn oft valdið misskilningi, að
því er segir í tilkynningu
hreppsnefndar.
534 búa í Höfðahreppi og eru
ríflega 400 á kjörskrá.
Skagaströnd
komi í stað
Höfðahrepps
Þrír karlar og ein
kona voru handtekin í Bretlandi á
þriðjudag vegna gruns um tengsl
við hryðjuverkin í London fyrir
tveimur árum. Þá létust 52 lestar-
og strætisvagnafarþegar í fjórum
sprengingum.
Í mars síðastliðnum voru þrír
handteknir vegna gruns um
tengsl við sprengingarnar.
Lögregla segir að enn sé verið að
greina og rannsaka umfangsmik-
ið magn upplýsinga. „Við þurfum
að vita hverjir aðrir, fyrir utan
sprengjumennina, vissu af
áætlununum. Hvatti þá einhver?
Fengu þeir fjárhagslega aðstoð
eða húsnæðisaðstoð?“
Fjórir í viðbót
handteknir