Fréttablaðið - 11.05.2007, Síða 17
Landssamband eldri borgara
telur að stjórnmálamenn reyni að fegra
myndina og segi því ekki allan sannleikann
þegar rætt er um hag eldri borgara og ekki
síst nú rétt fyrir kosningar. Þetta eigi til
dæmis við um fjármálaráðuneytið.
Ólafur Ólafsson landlæknir segir að
margoft hafi verið bent á að ekki sé satt að
skattbyrði láglaunafólks hafi minnkað, þar á
meðal skattbyrði eldri borgara. Hið sanna sé
að skattbyrðin hafi aðeins lækkað síðasta
árið.
Sagt sé að kaupmáttur ráðstöfunartekna
hafi aukist jafnt og þétt og hafi hækkað um
sextíu til sjötíu prósent. „Við höfum margoft
bent á að nær helmingur ellilífeyrisþega nær
varla tuttugu prósentum. Ekki er minnst á
þetta,“ segir Ólafur.
Í samanburði á ráðstöf-
unartekjum á Norðurlönd-
unum virðast einhleypir
eldri borgarar á Íslandi
hafa hærri ráðstöfunar-
tekjur en einhleypir á
vinnualdri en eldri borgar-
ar telja þennan samanburð
ósamanburðarhæfan þar
sem skilgreining á fjöl-
skyldu sé allt önnur hér en
á hinum Norðurlöndunum.
Því sé verið að bera saman
epli og appelsínur.
„Þeir segja alveg blákalt að ellilífeyris-
greiðslur séu hæstar á Íslandi af Norðurlönd-
unum. Amen,“ heldur Ólafur áfram, „þetta er
kolrangt. Ástæðan er sú að mismunandi
aðferðum er beitt hér og á hinum Norður-
löndunum. Það er ekki hægt að bera þetta
saman.“
Fyrstu myndirnar af
hálfs mánaðar gamalli dóttur
danska krónprinsparsins voru
birtar í vikunni. Óhætt er að segja
að þær hafi heillað þegnana, enda
skortir sannarlega ekkert á
fríðleika stúlkubarnsins unga.
Nýja prinsessan verður skírð í
kirkju Fredensborg-hallar, þar
sem fjölskyldan býr, 1. júlí
næstkomandi. Samkvæmt hefð
verður nafn stúlkunnar ekki gert
opinbert fyrr en við skírnarat-
höfnina sjálfa. Ekki kæmi þó á
óvart yrði hún skírð í höfuðið á
ömmu sinni, Margréti Þórhildi
drottningu.
Myndir birtar
af prinsessunni
Hreppsnefnd
Grímsnes- og Grafningshrepps
hafnaði í síðustu viku beiðni
Guðmundar
Jónssonar,
fyrrverandi
forstöðumanns
Byrgisins, um að
fá að stofna
lögbýli á lóðum
sínum í hreppnum.
Þetta kom fram í
fréttum Stöðvar 2.
Óskað var eftir því að svæðið
yrði gert að tveimur nýjum
lögbýlum en því var hafnað. Hefði
svæðið verið gert að lögbýli hefði
það þýtt að byggja hefði mátt fleiri
hús á landareigninni og íbúarnir
fengið skólaakstur og aðra
þjónustu frá sveitarfélaginu.
Neitað um að
stofna lögbýli
Sjómennirnir
pólsku, sem hafa dvalist verk-
lausir í báti við Grandabryggju
síðan í janúar, fara heim á
morgun, að sögn Níels Ársælsson-
ar útgerðarmanns.
Níels var að ganga frá greiðsl-
unni og flugmiðum mannanna
þegar Fréttablaðið náði af honum
tali. Hann sagði hljóðið í Pólverj-
unum gott, en hann hefur séð
þeim fyrir vistum.
Sjómannasambandið hafði
milligöngu í málinu og samdi
fyrir hönd mannanna í síðasta
mánuði. Síðan tafðist lúkning
málsins „í kerfinu“, en sér nú loks
fyrir endann á því.
Fljúga heim á
leið á morgun
KATRÍN
JAKOBSDÓTTIR
1. SÆTI REYKJAVÍKURKJÖRDÆMI NORÐUR
ALLT ANNAÐ LÍF! - með vinstri grænum
KJÓSUM NÝJA TÍMA