Fréttablaðið - 11.05.2007, Blaðsíða 33
Hvað er hyggilegt að hafa á borðum þegar Júró-
visjón og kosningar ber upp á sama kvöldið?
Tónlistarmaðurinn Felix Bergsson og stjórnmála-
fræðingurinn Baldur Þórhallsson gefa hér góð
ráð.
„Fyrir nokkrum árum vorum við í París á Júróvisjón-
kvöldi og þar var boðið til veislu. Gestir voru um
fjörutíu, eiginlega af sitthverju þjóðerninu. Veit-
ingarnar voru með frönskum hætti og við höfum oft
borið þær saman síðan við það sem við eigum að venj-
ast hér á Íslandi. Það voru engar pitsur, ekkert gos
og ekkert snakk. Bara drukkið kampavín og ávext-
ir og litlir tapas-réttir bornir inn eftir því sem keppn-
inni vatt fram, þannig að máltíðin teygðist yfir allt
kvöldið. Í lokin kom lítil ískúla handa hverjum og
einum. Allt voða nett,“ rifjar Baldur upp.
„Já, þetta var lærdómsríkt og fyrst við erum spurðir
álits á hvernig kosninga- og Júróvisjónmatseðill eigi
að líta út þá mælum við með þeim franska. Smá-
réttum, ávöxtum, berjum og ískúlu. Ég sé fyrir mér
kjúkling í satay-sósu á teini með hrísgrjónum, sem
einn af réttunum. Svo er hægt að búa eitthvað til upp
úr bókinni hennar Yesmine Olsson sem er algerlega
frábær,“ segir Felix og bætir við svolítið stríðnislega:
„En meðan Baldur er að útbúa alla þessa smárétti þá
verð ég að spila Júróvisjóntónlist fyrir þjóðina, milli
eitt og fjögur á laugardag.“
Báðir hlakka greinilega til kvöldsins. Þegar Baldur
er spurður hvort hann búist ekki við að verða á skjám
landsmanna að ráða í úrslit kosninganna svarar hann
hlæjandi: „Það vona ég ekki. Ég er svo gamaldags
að ég vil helst sitja heima í næði fyrir framan sjón-
varpið og skrifa niður tölurnar í kosningahandbók úr
blöðunum.“
Upp á franska vísu