Fréttablaðið - 11.05.2007, Qupperneq 38
BLS. 2 | sirkus | 11. MAÍ 2007
VINSÆLL Í BOLT-
ANUM Garðar
Thor virðist höfða
til þeirra sem sjá
um skemmti-
atriðin á
knattspyrnu-
leikjum.
J ú, það er rétt. Það er búið að bóka Garðar Thor á Wembley-leikvanginn 28. maí næstkomandi. Ég held að þetta sé
einhvers konar úrslitaleikur um að komast
upp í úrvalsdeildina. Ég er nú ekki alveg
með þetta á hreinu en þetta verður
stórleikur. Alveg pottþétt mesti áhorfenda-
fjöldi sem Garðar hefur sungið fyrir,“
segir Einar Bárðarson, umboðsmaður
Garðars Thors Cortes, í samtali við
Sirkus.
Til að skýra málið mun Garðar Thor
syngja fyrir úrslitaleikinn um sæti í
ensku úrvalsdeildinni að ári. Fjögur lið,
Derby, Southampton, West Brom og
Wolves, berjast um þetta sæti og munu
tvö þessara liða spila á Wembley eftir
að Garðar Thor hefur þanið raddbönd-
in. Mikið er í húfi enda gefur sæti í
úrvalsdeildinni tekjur upp á tæpa fjóra
milljarða. Hinn nýi Wembley tekur rétt
rúmlega níutíu þúsund áhorfendur og má
búast við troðfullum velli
og rafmagnaðri
stemningu.
Garðar Thor er ekki
óvanur að koma fram á
knattspyrnuleikjum því
hann söng eins og engill
fyrir leik Íslendingaliðs-
ins West Ham og Chelsea
á Upton Park í ensku
úrvalsdeildinni fyrir
skömmu. Þar söng
hann Nessun
Dorma
og einkennislag West Ham, Forever Blowing Bubbles.
Fréttir bárust af misjöfnum undirtektum við söng Garðars
Thors en Einar blæs á það og segir hann hafa staðið sig
stórkostlega.
„Eggert [Magnússon, stjórnarformaður West Ham] var
himinlifandi sem og allir sem ég talaði við. Það var
einhver einn fúll bloggari sem fílaði þetta ekki og einhvern
veginn tókst Morgunblaðinu að grafa hann upp. Blaðið
ætti eiginlega að fá verðlaun fyrir það því hann var sá eini
sem hreifst ekki af íslenska tenórnum,“ segir Einar og
hlær. oskar@frettabladid.is
Heyrst hefur
É g hef það alveg rosalega gott og meðgangan gengur vel,“ segir
Freyja Sigurðardóttir, ein fremsta
fitness-kona landsins, en Freyja er
komin átján vikur á leið að sínu öðru
barni. Freyja og kærastinn hennar,
Haraldur Freyr, búa í Noregi en fyrir á
Freyja soninn Jökul Mána. „Við
ætlum að fá að vita kynið þegar við
förum næst í sónar,“ segir Freyja
spennt og bætir við að Jökull Máni
vilji fá litla systur. „Mér er hins vegar
alveg sama og er jafn spennt fyrir
báðum kynjum.“ Freyja mun taka
pásu frá allri fitness-keppni vegna
meðgöngunnar en hún er án efa ein
af fremstu fitness-konum landsins.
„Ég er samt að æfa á hverjum degi,
heilsan er góð og ég hef það mjög
gott. Vonandi verð ég jafn fljót að
jafna mig og eftir að Jökull Máni
fæddist. Hann var bara sex mánaða
þegar ég fór að keppa aftur og vann,“
segir hún hlæjandi.
Freyja segir barnið velkomið í
heiminn og að Haraldur Freyr sé
mjög spenntur. „Þetta var planað. Við
fórum að hugsa í desember hversu
gaman það væri að koma með annað
barn og í janúar var ég orðin ófrísk
svo þetta tók ekki langan tíma. Ég er
skrifuð inn 21. október en Jökull
Máni á afmæli 27. október og það
væri ekki leiðinlegt ef hann fengi litla
systur í afmælisgjöf.“
indiana@frettabladid.is
FREYJA SIGURÐARDÓTTIR FITNESS-KONA
Á VON Á SÍNU ÖÐRU BARNI Í OKTÓBER.
Sonurinn vill litla systur
GARÐAR THOR CORTES VINSÆLL SEM SKEMMTIKRAFTUR Á KNATTSPYRNULEIKJUM
Syngur fyrir 90 þús-
und manns á Wembley
STÆKKANDI FJÖLSKYLDA Haraldur, Jökull Máni og Freyja. Fjölskyldan mun stækka í
október.
STÆRSTA GIGGIÐ TIL ÞESSA Hinn
nýbyggði Wembley-leikvangur rúmar
níutíu þúsund manns.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
Haukur flytur við hliðina á
Björgólfi Thor
Það reyndist ekki
erfitt að selja
einbýlishúsið að
Lálandi 3 í
Fossvoginum.
Húsið var aðeins
tvo daga í sölu
enda fallegt hús
á frábærum og
veðursælum stað.
Ekki skemmir fyrir
að í næsta húsi,
Lálandi 1, býr
ríkasta par Íslands,
Björgólfur Thor
Björgólfsson og
Kristín Ólafsdóttir. Nýi nágranni þeirra
Björgólfs Thors og
Kristínar heitir
Haukur Oddsson
og er verkfræð-
ingur að mennt.
Hann starfar sem
forstöðumaður hjá
Glitni.