Fréttablaðið - 11.05.2007, Qupperneq 44
BLS. 8 | sirkus | 11. MAÍ 2007
É g hef haft það rosalega gott á meðgöngunni, er búin að vera heima og hef getað sinnt
börnunum áður en stelpan kemur í
heiminn,“ segir Ellý Ármanns, þula,
móðir og vinsælasti bloggari
landsins. „Ég hef verið hraust og
notið þess að vera ekki að vinna frá
níu til fimm en það er örugglega
draumur allra ófrískra kvenna að
geta slakað á fyrir fæðinguna. Þetta
eru náttúrlega bara forréttindi,“ segir
Ellý, sem er sátt við að Hér og nú,
tímaritið sem hún ritstýrði, hafi verið
selt og hún misst vinnuna í kjölfarið.
Nú fær hún útrás fyrir skrifin á
netinu og greinar hennar hafa aldrei
verið vinsælli með upp í rúmlega 90
þúsund flettingar á viku. Enginn
annar bloggari hefur náð öðrum eins
vinsældum en metið var í kringum 30
þúsund flettingar áður en bloggið
hennar Ellýjar sló í gegn.
Sársaukinn hverfur þegar
barnið kemur
Ellý og sambýlismaður hennar,
Freyr Einarsson, sjónvarpsstjóri á
Sirkus, eiga von á dóttur um miðjan
mánuðinn. Ef stelpan verður ekki
komin í heiminn fyrir 15. maí verður
hún tekin með keisara. „Ég hef bæði
upplifað keisaraskurð og fæðingu og
veit að það besta í heimi er að fá
barnið strax í fangið eftir fæðinguna.
Yngri strákurinn minn sneri við í
miðri fæðingu og læknarnir urðu
hræddir svo hann var tekinn með
keisaraskurði. Ég fékk hann svo
fullklæddan í fangið, sem var allt
önnur lífsreynsla en að fá barnið
beint á brjóstið eftir fæðingu. Ég er
pínu hrædd eftir þessa reynslu en
veit að allur sársauki hverfur þegar
ég fæ hana í fangið sama hvaða leið
hún kemur. Það þýðir ekkert að velta
sér upp úr því hvað verður. Legg mig
fram við að vera jákvæð og bjartsýn.
Óska þess að allt fari vel,“ segir Ellý
kát að venju.
Kynið skiptir ekki máli
Ellý á tvo syni. Einar Alex Jónsson
er 8 ára og Ármann Elías Jónsson 11
ára. Freyr á tvær dætur, Kassöndru
15 ára og Kríu 7 ára en hún býr hjá
þeim aðra hvora viku. „Krökkunum
kemur vel saman. Það er hreint með
ólíkindum hvað þetta gengur allt vel,“
segir Ellý og bætir við að hana hafi
alltaf langað í stelpu. „Annars skiptir
kynið engu máli,“ segir hún brosandi.
Heimilið er sælureitur
Ellý var 26 ára þegar hún eignaðist
eldri soninn og tveimur árum seinna
kom sá yngri í heiminn. Nú eru átta
ár liðin. „Ég vil eignast fleiri börn og
helst vildi ég fylla húsið af börnum.
Það er ekki að ástæðulausu að ég
valdi Frey,“ segir hún hlæjandi. „Við
erum samstiga í þessu og viljum
bæði eiga stóra samheldna fjöl-
skyldu. Gott fjölskyldulíf er
eftirsóknarvert, við eigum heimili
sem er okkar sælureitur,“ segir Ellý og
bætir við að hún sé að upplifa
meðgönguna á annan hátt en þegar
hún eignaðist synina. „Líkamlega
finn ég að ég er eldri og andlega séð
er þetta sæluvíma. Ég legg mig fram
við að hugsa vel um mig og passa
upp á mataræðið og svefninn. Svo fæ
ég líka mikinn stuðning frá krökkun-
um. Það eru fleiri sem taka þátt í
þessu núna, ekki bara ég og makinn.
Líf barnanna breytist jú líka og þau
eru virkir þátttakendur. Við erum öll
mjög spennt yfir þessu öllu saman.“
Kynlíf partur af tilverunni
Blogg Ellýjar hefur vakið mikla
athygli en síðan hennar er mest lesna
heimasíða landsins. Ellý lætur allt
flakka og frásagnirnar minna helst á
þættina Sex and the City. „Ætli
bloggið fái mig ekki til að gleyma
stað og stund. Auðvitað koma þessar
vinsældir mér á óvart að einhverju
leyti. En eftir að hafa ritstýrt blaði og
skrifað daglega á vefinn minn
spámaður.is í fimm ár hef ég ágætis
tilfinningu fyrir því hvað fólk vill lesa.
Ég er að þessu fyrst og fremst til að
hafa gaman af. Enda óþarfi að taka
lífinu of alvarlega eða velta sér upp úr
endalausum áhyggjum. Kynlíf er
náttúrulegur partur af tilverunni.
Hvers vegna má ekki tala um það?“
segir hún og hlær. „Á meðan ég hef
gaman af þessu held ég áfram að
skrifa daglegar örsögur, burtséð frá
bókaútgefendum eða fjölmiðlum.“
indiana@frettabladid.is
ELLÝ ÁRMANNS, ÞULA, MÓÐIR OG VIN-
SÆLASTI BLOGGARI LANDSINS, MUN
EIGNAST STELPU Á NÆSTU DÖGUM.
VILL FYLLA
HÚSIÐ AF
BÖRNUM
FALLEG FJÖLSKYLDA Ellý ásamt Einari Alex, Ármanni Elíasi og Kríu. „Krökkunum kemur vel saman. Það er hreint með ólíkindum
hvað þetta gengur allt vel,“ segir Ellý. MYND/AUJA.NET
ÚR BLOGGI ELLÝJAR
„Hvað ertu að spá?“ spurði ég
örvæntingarfull eftir að hún lýsti
fyrir mér að þær hafi heilsast eins
og um fund væri að ræða þar sem
hún lá í fangi mannsins sem dýrkar
hana af því að hún er einstök og
dularfull kynferðisvera.
…
„Hún var mjög kammó. Kippti sér
ekkert upp við að við værum að
leika okkur í baðinu. Hún setti á sig
varalit en þurfti síðan að rjúka af
stað út á flugvöll,“ sagði hún
afslöppuð og ekki var að sjá að hún
skammaðist sín.
…
„Ég veit það. Ég kúgast bara svo
auðveldlega,“ svaraði hún
vandræðaleg á svipinn þegar hún
viðurkenndi að hún hafði gert sér
vonir um að myndarlegi bankamað-
urinn gæti vakið ástríður hennar af
löngum dvala.
…
„Þetta var æðislegt þangað til hann
tyllti fótunum svona á sitthvora
öxlina á mér og hallaði sér aftur í
pottinum. Ég strauk á honum
kálfana því ég var alveg til í að vera
elskuð eins og gyðja í flottasta
bústað landsins,“ útskýrði þessi
samvinnuþýða stelpa sem hefur
aldrei verið fyrir ruddaskap í
samböndum. „En svo byrjaði hann
að ýta tánum í kinnina á mér. Ég
hélt náttúrlega að hann væri bara
að reyna að kitla mig þar til hann
spurði hvort ég vildi sjúga á honum
tærnar.“
www.ellyarmanns.blog.is
Ég fékk hann svo full-
klæddan í fangið, sem
var allt önnur lífsreynsla
en að fá barnið beint á
brjóstið eftir fæðingu.