Fréttablaðið - 11.05.2007, Page 50
hús&heimili
Þetta veggskraut er í raun filma sem Gulla hannaði
og er límd á vegginn.
Gulla býður gesti sína velkomna á þriðju hæð verslunarinnar, þar sem hún er með kaffihús. Barborðið
hannaði hún sjálf úr gömlum tekkhúsgögnum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Gulla segir fólk oft lenda í vandræðum með
einstaka glugga en hér hefur hún fundið sniðuga
lausn því hún festi pappadúk í gluggana og límdi
bókaplast yfir.
„Textíl er í rauninni efni eða þráður þannig að textílhönnun er
hönnun úr öllu sem búið er til úr þræði,“ segir Gulla, spurð hvað
felist í textílhönnun. „Það getur verið silki, gúmmí, vír eða
hvað sem er,“ bætir hún við. „Textíl er þess vegna voða-
lega víðtækt því efni eru notuð svo víða, til dæmis í
innanhússhönnun, fatahönnun og fleiru.“
Fyrst eftir að Gulla útskrifaðist úr Lista-
háskólanum sérhæfði hún sig dálítið í að
þrykkja. „Þá hanna ég munstur og þrykki því á
efni. Annars hef ég alltaf haft mikinn áhuga á innan-
hússhönnun svo ég hef mikið velt fyrir mér efnum
fyrir híbýli, til dæmis púðum og gardínum,“ segir Gulla
en hún hannaði til dæmis útlit veitingastaðanna Apóteksins
og Þrastalundar á mjög smekklegan hátt. „Þegar ég kem inn
á heimili fæ ég oft mynd í hugann og sé fyrir mér hvernig mér
finnst best að hafa heimilið. Mér finnst ofsalega gaman að breyta
einhverju og gera það fallegt.“
Gulla opnaði lífsstílsverslunina 3 hæðir í lok september á síð-
asta ári. „Hún er kölluð lífsstílsbúð vegna þess að hún er með mat,
föt, hluti til heimilisins, tónlist, bækur og fleira. Hugmyndin á bak
við verslunina er að allir eigi að geta fundið eitthvað við sitt hæfi,
hvort sem það er að skoða vörurnar eða bara fá sér kaffi og köku
en það er kaffihús á efstu hæð verslunarinnar,“ segir Gulla, sem
hannaði að sjálfsögðu allt útlit verslunarinnar.
„Mér finnst mjög gaman að taka gamla hluti og endurnýta
þá. Ég hef til dæmis verið að gera púða úr gömlum fötum og
það veitir mér vellíðan að taka eitthvað sem enginn lítur
við og gera eitthvað fallegt og skemmtilegt úr því,“
segir Gulla en hún hannaði sjálf barborðið á efstu
hæðinni úr gömlum tekkhúsgögnum.
Gulla segir að fyrir sumarið ætti fólk endi-
lega að taka bjarta liti inn á heimilið og nefnir
liti eins og bleikan, fjólubláan og lime-grænan.
„Í rauninni ættum við alltaf að endurskoða
heimilið tvisvar á ári, á vorin og haust-
in. Fyrir veturinn ættum við að taka inn
teppi, kerti og fleira slíkt en fyrir sumar-
ið ættu bjartari litir að ráða ríkjum, blóm
og fleira. Maður er ferskari ef heimilið er ekki allt-
af eins og það þarf ekkert að kosta neitt mikið,“ segir
hin hugmyndaríka Gulla og brosir.
sigridurh@frettabladid.is
Innanhússhönnun
í uppáhaldi
Guðlaug Halldórsdóttir, eða Gulla, útskrifaðist sem textílhönnuður frá
Listaháskóla Íslands árið 1998 og rekur nú lífsstílsverslunina 3 hæðir á
Laugavegi. Þar segir hún hugmyndina vera að öll fjölskyldan eigi að geta
komið og fundið eitthvað við sitt hæfi.
Í 3 hæðum selur Gulla ýmsa hluti frá
finnska endurvinnslufyrirtækinu Secco
en þar eru hannaðir fallegir munir úr
endurunnu efni. Þetta veski er til dæmis
úr slöngu innan úr dráttarvélardekki.
Gullu finnst
gaman að gera eitthvað
fallegt úr gömlum hlut-
um sem enginn lítur við
lengur. Hér er skemmti-
legur púði sem gerður
er úr gömlum
jakkafötum.
11. MAÍ 2007 FÖSTUDAGUR6