Fréttablaðið - 11.05.2007, Page 54
hús&heimili
Húsið var upprunalega í
eigu Þorsteins Þorsteins-
sonar skipstjóra, sem
var oftast kenndur við
Þórshamar. Hann fékk
leyfi til að byggja sér
hús á spildu úr Móakots-
lóð norðan við Lindar-
götu árið 1894. Húsið var
kallað Bakkabúð og fékk
fyrst húsnúmerið 23 og
síðan 45 þegar húsnúm-
erum við Lindargötu var
breytt árið 1941.
Bakkabúð stóð við
Lindargötu næstu 97
árin, eða fram til ársins
1991, þegar nýir eigend-
ur fengu leyfi til að láta
flytja það á Bakkastíg 3.
Húsið hafði í millitíð-
inni lent í bruna og var
illa farið. Nýju eigend-
urnir fengu samþykkt að
láta endurbyggja húsið,
leggja lagnir, setja í það
nýja glugga og svo fram-
vegis. Hvert herbergi var
síðan tekið í gegn með
kerfisbundnum hætti og
óhætt að segja að nánast
allt sé nýtt í húsinu.
Engu að síður var ut-
anvert húsið að mestu
leyti gert upp eftir sínu
upprunalega útliti og
steinhleðslan, sem var
undir því á Lindargötu,
notuð við uppbyggingu
garðsins. Norðurhliðin
er eini utanverði hlutinn
sem er talsvert breytt-
ur, þar sem aðalinngang-
ur var fluttur þangað og
stigahús byggt.
Umskiptin eru hreint
út sagt ótrúleg eins og
sést af meðfylgjandi
myndum og eftir stend-
ur 177,3 fermetra stórt
bárujárnsklætt einbýl-
ishús á tveimur hæðum
með sex herbergjum,
ásamt steyptum kjallara
og risi.
Í dag er þetta fallega
hús til sölu, þar sem eig-
endunum finnst orðið
tímabært að halda á vit
nýrra ævintýra og efast
ekki um að nýir íbúar
muni njóta þess að búa
í því.
roald@frettabladid.is
Þar sem
hjartað slær
Við Bakkastíg 3 í Vesturbæ Reykjavíkur
stendur reisulegt, yfir aldargamalt hús, sem
hefur mikla sál og á merka sögu að baki.
Umskiptin eftir endurbygginguna eru hreint út sagt ótrúleg. Þess skal
getið að húsið var að mestu leyti gert upp eftir upprunalegu útliti sínu.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Eldhúsið var tekið í gegn árið 2000. Það var málað upp á nýtt og
innrétting og eldhústæki endurnýjuð.
Stiginn er sérsmíðaður og nær alveg upp og niður í stigahúsi.
Kjálkarnir eru úr furu og þrepin úr mahoní.
Nýju eigendurnir fluttu með sér þetta billjarðborð og ákváðu
að hafa stofuna opna til að geta komið því fyrir. Allt skipulag
hússins var miðað út frá þessu herbergi en þess má geta að
eigendurnir vildu hafa sem mest af opnum svæðum í húsinu, til
að hafa rúmgott og bjart í kringum sig.
Húsmóðirin á heimilinu hefur safnað bókum frá því að hún man
eftir sér og á nú glæsilegt safn gamalla bóka, sem eru allar í
upprunalegum kápum og því safngripir.
Danskur stóll frá árinu 1884, bandarískur standlampi frá Fríðu frænku og klukka
sem er erfðagripur, en sérríflaska er ávallt geymd á botni klukkunnar.
Húsið var ekki sjón að sjá þegar það var flutt á Bakkastíg og þarfnað-
ist töluverðra endurbóta.
www.cargobilar.is
Sendibílar til leigu
Krefst ekki meiraprófs réttinda
11. MAÍ 2007 FÖSTUDAGUR10