Fréttablaðið - 11.05.2007, Side 66
BLS. 14 | sirkus | 11. MAÍ 2007
„Ég fer til Mallorca í tvær
vikur í júní, elska þessa litlu
eyju og myndi helst
vilja búa þar. Svo geri
ég eitthvað skemmti-
legt hér heima, eyði
alltaf ómældum tíma
í garðinum og
umhverfinu mínu
en ég er svo
heppin að búa í
„sveitinni“ rétt
innan
borgarmark-
anna.“
Elín Gests-
dóttir,
fram-
kvæmdastjóri
Ungfrú Ísland
„Í sumarleyfinu ætla ég að
fljúga eftir því sem ég hef
fjaðrir til.“
Hrafn Gunn-
laugsson
kvik-
mynda-
leik-
stjóri
„Við hjónin vonumst til að ná
einni viku með tærnar upp í
loft á Spáni, annars
standa til mörg
dásamleg og spenn-
andi söngferða-
lög.“
Kirstín
Erna
Blöndal
söngkona
„Ég er í fæðingarorlofi og
ætla að reyna að
ferðast um landið í
sumar með
fjölskyldunni. Við
förum örugglega í
tjaldútilegu og í
sumarbústað.“
Selma
Björns-
dóttir
söng-
kona
Uppáhalds
sundlaugin
Hvað á að gera í sumarleyfinu?
„Uppáhalds-
sundlaugin
mín er að
sjálfsögðu
sundlaugin í
Hveragerði,
svo ég tali nú
ekki um
frábæra
gufubaðið þar.
Mæli stórlega
með því.“
Hildur Magnúsdóttir HARA
„Á uppvaxtarárunum í Breiðholtinu var
það Breiðholtslaugin. Eftir viðkomu í
Norðurmýrinni, með Sundhöll Reykjavíkur
sem aðal, flutti maður í Kópavoginn og
þar er Salalaugin að
sjálfsögðu langbesta laugin í
heiminum. Það er jafn
erfitt að gera upp á milli
þessara lauga
og barnanna
sinna, allar
eru þær
sérstakar
eins og
við fólin
sem
sullum í
þeim.“
Bergsveinn Arelíusson söngvari
„Norðan heiða er það sundlaugin á
Þelamörk, þar er engu líkt að slaka á og
njóta kyrrðarinnar. Sunnan heiða er
Sundlaug Seltjarnarness
í mestu uppáhaldi
enda dásamlegt að
synda í sjóblönduðu
vatninu. Þar er líka
yndislegt
andrúmsloft og
vatnsgufubaðið og
nuddpotturinn
óborganleg.“
Björg
Þórhalls-
dóttir
söngkona
„Uppáhaldssundlaugin mín er á Seltjarnar-
nesi. Ég held það sé sjávarsaltið sem ég
hrífst af. Ég bý í Norðlingaholti og það er
óneitanlega styttra í Árbæjarlaug og sú
laug er glæsileg og sniðin að þörfum
barnanna. Mér finnst skemmtilegt að
prófa nýjar sundlaugar úti á landi og
laugin á Sólheimum í Grímsnesi gefur
mér eitthvað alveg einstakt.“
Eva Dögg Sigurgeirsdóttir
„Nú eru bara jólin. Þetta er alltaf jafn
gaman,“ segir Páll Óskar Hjálmtýs-
son, sem stendur fyrir Eurovision-
partíi á Nasa á laugardagskvöldið,
fimmta árið í röð. „Ég er kominn í
ofsalega góðan fíling enda um
einstakt partí að ræða. Eurovision er
bara einu sinni á ári og því eins gott
að njóta á meðan er,“ segir Páll Óskar,
sem byrjar að spila stundvíslega kl.
23. „Gengi íslenska lagsins skiptir
aldrei máli þegar kemur að þessu
partíi, röðin nær alltaf að Alþingis-
húsinu. Að venju verður spilað inn á
nostalgíuna og flottustu Eurovision-
lög allra tíma spiluð auk þess sem
fullt af stjörnum treður upp. Þar á
meðal Silvía Nótt og Eurovision-
drottningin sjálf, Selma Björnsdóttir,
og Friðrik Ómar. Ég upplifi Friðrik
Ómar sem Eurovision-stjörnu og tel
aðeins tímaspursmál hvenær hann
keppir fyrir okkar hönd,“ segir Páll
Óskar. Spurður um gengi Eiríks
Haukssonar viðurkennir Palli að vera
ekkert svo bjartsýnn. „Ég er með smá
hnút í maganum. Eiríkur Hauksson
er með ofsalega fallega rokkrödd frá
náttúrunnar hendi en í leiðinni alveg
laus við alla stæla. Hann er yndis-
legur maður og ég stend með honum
alla leið og óska honum alls hins
besta. Vesenið er hins vegar að öll
góðu lögin í keppninni verða flutt á
fimmtudaginn en hin lélegu og
metnaðarlausu lögin komast
sjálfkrafa áfram svo fórnarlömbin
verða mörg og ég hef áhyggjur af að
Eiríkur Hauksson verði eitt þeirra,“
segir Palli, sem telur Búlgaríu og
Úkraínu sigurstranglegustu löndin.
„Ég elska Búlgaríu og hún Verka,
dragdrottningin frá Úkraínu, kann
sko til verka.“
indiana@frettabladid.is
PÁLL ÓSKAR STENDUR FYRIR ÁRLEGU EUROVISION-PARTÍI ANNAÐ KVÖLD.
Ekki nógu bjartsýnn
PÁLL ÓSKAR Páll Óskar veðjar á
framlag Búlgaríu og Úkraínu. „Ég elska
Búlgaríu og hún Verka, dragdrottningin
frá Úkraínu, kann sko til verka.“
Útgáfufélag 365 prentmiðlar
Útgefandi Helgi Hermannsson, ábm.
Ritstjórn Óskar Hrafn Þorvaldsson
oskar@frettabladid.is,
Indíana Ása Hreinsdóttir, indiana@
frettabladid.is Útlitshönnun Kristín
Agnarsdóttir kristina@frettabladid.is,
Sirkusblaðið Skaftahlíð 24
105 Rvk, sími 550 5000
Sölustjóri Gréta Karen Grétarsdóttir
550 5864 gretakaren@frett.is
sirkus
SPURNINGAKEPPNI sirkuss
SPURNINGAKEPPNI SIRKUSS HELDUR ÁFRAM. SIGURÐUR KÁRI SIGRAÐI GERÐI
KRISTNÝJU Í SÍÐUSTU VIKU OG KEPPIR HÉR VIÐ SÓLVEIGU BERGMANN.
Rétt svör: 1.Tom Cruise. 2. Sprengjuhöllin. 3. Krónprins Dana og Spánar. 4.Nicolas Sarkozy. 5.Ölvunarakstur.
6.Red Bull. 7.Ellý Ármanns. 8. 1976.9. Gerðar Helgadóttur
Sólveig Bergmann
1. Tom Cruise.
2. Veit ekki.
3. Danmerkur og Noregs.
4. Sarkozy.
5. Að aka ölvuð.
6. Red Bull.
7. Ellý Ármanns.
8. 1983.
9. Gerðar Helgadóttur.
Sigurður Kári
1. Tom Cruise.
2. Baggalútur.
3. Danmerkur og Spánar.
4. Nicolas Sarkozy.
5. Fyrir ölvunarakstur.
6. McLaren.
7. Ellý Ármanns.
8. 1983.
9. Einars Jónssonar.
Sólveig Bergmann sigrar Sigurð Kára með sex réttum svörum gegn fimm. Sigurður
Kári skorar á Rúnar Frey leikara. Fylgist með í næstu viku.
1. Hver lék aðal-
hlutverkið í
Cocktail sem kom
út árið 1988?
2. Hvaða hljóm-
sveit á lagið
Verum í sambandi
sem mikið hefur verið
spilað á íslenskum
útvarpsstöðvum upp á síðkastið?
3. Krónprinsar hvaða landa eignuðust
barn á dögunum?
4. Hvað heitir nýkjörinn
forseti Frakklands?
5. Fyrir hvað var
París Hilton dæmd í
fangelsi?
6. Fyrir hvaða lið
ekur ökuþórinn David
Coulthard í Formúlu 1?
7. Hver á vinsælasta
bloggið á Íslandi?
8. Hvaða ár var fyrsta
17-verslunin opnuð
við Laugaveg?
9. Gluggar hvaða
myndhöggvara eru
komnir heim til Íslands frá
Þýskalandi?