Fréttablaðið - 11.05.2007, Page 73

Fréttablaðið - 11.05.2007, Page 73
Fjölhæfur þingmaður Andri Snær Magnason met-söluhöfundurinn, sem samdi DRAUMALANDIÐ, handbók handa hræddri þjóð, varpaði eft- irfarandi spurningu fram á vor- þingi Íslandshreyfingarinnar á sunnudaginn: „Hversu oft eign- ast þjóð mann sem þekkir land- ið eins og lófann á sér og miðlar því til landsmanna af þekkingu, mælsku og ástríðu? Mann, sem þekkir fjöllin, jöklana og flýgur í gegnum eldgosin? Hversu oft eignast þjóð mann, sem er kvik- myndagerðarmaður, kappakst- urshetja, flugmaður, rithöfundur, söngvari, dansari og textahöfund- ur? Mann eins og Ómar Ragnars- son?“ Öll vitum við svarið. Það er ekki ýkja oft. Raunar sárasjald- an. Og þegar slíkur maður gefur okkur kost á því að setjast inn á Alþingi Íslendinga er það kost- ur, sem við ættum sem flest að taka tveimur höndum. Það yrði okkur ekki aðeins til sóma held- ur löggjafarsamkomunni til mik- ils gagns og nytsemdar. Það eru ekki margir á Alþingi sem búa yfir þeirri fjölhæfni sem Ómar Ragnarsson hefur ræktað með sér í gegnum árin. En því til viðbótar kemur að þar fer maður sem ann landi sínu og þjóð af fá- gætri innlifun, ekki með neinni innilokunarkennd eyjaskeggj- ans, heldur hefur hann kapp- kostað að setja íslenskar nátt- úruperlur í alþjóðlegt samhengi og sýnt okkur fram á að það er skylda okkar við umheiminn og alþjóðasamfélagið að halda utan um þær og varðveita þær, seinni tíma kynslóðum Íslendinga og öðrum jarðarbúum til yndis og upplyftingar. Og jafnframt hefur hann sýnt fram á að við höfum ótal aðra mögu- leika til að halda uppi efnahags- legri hag- sæld og sjálf- bærum hag- vexti, ef við bara komum auga á tækifær- in og nýtum okkur þau, höldum uppi háu menntunar- og menn- ingarstigi, og skipum þekkingu og tæknikunnáttu í öndvegi með nærfærinni umgengni við um- hverfi okkar. Það er ekki langt síðan emb- ætti umhverfisráðherra var stofnað. Í því ráðuneyti hefur verið unnið margt gott verk. En því miður hafa fæstir þeirra, sem því embætti hafa gegnt, haft til að bera það hugarfar sem þarf. Þeir hafa verið nógu ákaf- ir til að friðlýsa ákveðin svæði, en jafnundanlátssamir, um leið og sérhagsmunirnir hafa látið á sér kræla og flokkseigendurnir skipað þeim fyrir. Íslandshreyfingin er nýtt stjórnmálaafl og á vissulega á brattann að sækja. Hana vant- ar enn herslumuninn til að rjúfa 5-prósenta múrinn. Þau prósent sem á vantar eru dýrmætustu prósentin í þessari kosningabar- áttu, því að þau skila ekki bara Ómari inn á þing heldur mundi hann taka með sér tvo aðra þing- menn eða þingkonur og innsigla með því fall stóriðjustefnunnar. Höfundur er blaðamaður og skipar 2. sæti lista Íslandshreyf- ingarinnar í Reykjavík norður. Vitræn umræða um umhverf-ismál kallar á að málaflokk- urinn sé ræddur með vísindaleg- um rökum og í hnattrænu sam- hengi. Virkjun sem hér er byggð og nýtir okkar umhverfisvænu og endurnýjanlegu orkulindir dregur úr losun gróðurhúsaloft- tegunda í heiminum. Stefna VG felur ekki í sér lausnir í umhverf- ismálum. Þar er fyrst og síðast á ferðinni þjóðernissinnuð nátt- úruvernd sem byggir röksemda- færslu sína á tilfinningum frem- ur en vísindum. Ég geri að sjálfsögðu ekki at- hugasemdir við að Íslendingar, hvar í pólitík sem þeir standa, hafi sterkar skoðanir á umhverf- ismálum og náttúruvernd. Ég geri hins vegar athugasemdir við að viðhafður sé sá málatilbúnað- ur að Ísland þurfi ekki – eða geti ekki – lagt eitthvað að mörkum til sjálfbærrar þróunar í heim- inum. Ég geri athugasemdir við hugmyndir á borð við þá að virkj- unin á Kárahnjúkum verði látin standa ónotuð sem minnisvarði um „heimsku mannanna“, eins og ég hygg að það hafi verið orðað. Ég hlýt að spyrja hvort það sé í anda umhverfisverndar að láta virkjunina verða veðri og vindum að bráð og grotna niður? Virkj- anir eru ekki annað hvort góðar eða slæmar. Það getur farið vel saman að vera fylgjandi því að virkja auðlindir landsins, en þykja á sama tíma vænt um og virða náttúruna. Í málflutningi gegn álveri á Bakka og Reyðarfirði hefur ýmsum rangindum verið hald- ið á lofti. En mest áberandi eru þó staðhæfingar um að þessi upp- bygging ryðji burtu öðrum og hugnan- legri at- vinnutæki- færum sem bíða hand- an við horn- ið. Að í ál- veri séu aðeins lág- launastörf í boði og eingöngu fyrir karl- menn. Hið rétta er að laun í álveri eru ágæt- lega borguð. Meðallaun ófag- lærðra verða yfir 300 þúsund á mánuði á Reyðarfirði og laun iðn- aðarmanna fara yfir 400 þúsund eftir þjálfunartíma. Þetta teljast varla lág laun. Auk þess hafa ál- fyrirtækin hér á landi verið í far- arbroddi í menntun starfsmanna sinna, aðbúnaði og starfsmanna- stefnu almennt. Álverin þykja eftirsóknarverðir vinnustaðir sem bjóða upp á fjölbreytt störf, enda helst þeim vel á sínu starfs- fólki. Þá er rétt að halda því til haga að konur verða þriðjungur starfsmanna Alcoa Reyðaráls. Áður en framkvæmdir við stór- iðjuframkvæmdir hófust á Aust- urlandi voru laun í fjórðungnum með þeim lægstu á landinu. Þau hafa nú náð landsmeðaltalinu og gera má ráð fyrir að þau fari upp fyrir það. Húsnæðisverð hefur hækkað hlutfallslega mest á Austurlandi og eignir íbúanna því orðið verðmætari. Næststærsta höfn landsins er nú risin á Reyð- arfirði sem mun gjörbreyta flutn- ingum til og frá fjórðungnum og hafa gríðarleg áhrif. Að auki hefur Alcoa staðið fyrir uppbygg- ingu í byggðarlaginu, meðal ann- ars á sviði landgræðslu og gerð íþróttamannvirkja. Ákvörðun um virkjana- og álversframkvæmd- ir markaði spor í byggðarþróun í fjórðungnum, spor sem mun hafa verið og verða áfram til heilla. Með því að nýta auðlindirnar stuðlum við jafnframt að því að landið sé í byggð og að þéttbýlis- kjarnar geti dafnað og blómstr- að. Við viljum hafa byggð í land- inu öllu. Þar liggur meðal annars hagur umhverfisins. Víða í þétt- býliskjörnum á landsbyggðinni, eins og t.d. á Húsavík og Raufar- höfn, hefur íbúum fækkað und- anfarin ár. Einkum fækkar ungu fólki á meðan hinir eldri sitja eftir. Ástæðan er fyrst og fremst að ekki eru nógu mörg störf í boði fyrir unga fólkið. Við þessari þróun verður að sporna. Reynsla okkar frá álverinu á Reyðar- firði sýnir að verði álver reist á Bakka við Húsavík myndu ekki eingöngu Húsvíkingar finna fyrir áhrifum, heldur myndi áhrifanna gæta í byggðakjörnum og sveit- inni í öllum fjórðungnum, m.a. á Laugum, Kópaskeri, Raufarhöfn, í Mývatnssveit og á Akureyri svo að dæmi séu tekin. Starfsmenn hugsanlegs álvers yrðu 300-350 talsins og afleidd störf 600-800. Reiknað er með að íbúum í Þing- eyjarsýslu muni fjölga um 1.000 komi til framkvæmda. Þannig skapast ný störf og til yrði kjöl- festa í byggðarlaginu. Ég veit að heimamenn munu áfram styðja þessa ákvörðun og ég mun ekki liggja á mínu liði til þess að draumur þeirra um blómlega at- vinnuuppbyggingu verði að veru- leika. Ég treysti því að íbúar Norð- austurkjördæmis horfi til þess á kjördag hverjir hafa staðið í fylk- ingarbrjósti fyrir mestu fram- kvæmdum og uppbyggingu í Ís- landssögunni. Með stuðningi við Framsóknarflokkinn vita kjós- endur að hverju þeir ganga. Höfundur er utanríkisráðherra og frambjóðandi Framsóknarflokks- ins í Norðausturkjördæmi. Íbúar á Norðausturlandi vita að hverju þeir ganga Mikil um-ræða hefur verið um tvöföld- un Suðurlands- vegar. Upphaf- lega átti það að kosta 14 m.a.kr en nú hafa einkaaðilar sagst geta leyst verkefnið fyrir 7,5-8 m.a. kr. Það er fagnaðarefni og sýnir eins og svo oft áður að einkaaðil- ar geta leyst verkefni með mun hagkvæmari hætti en áður. Þessar nýju tölur opna fyrir þann mögu- leika að um leið og ráðist er í að bæta umferðina austur fyrir fjall er jafnframt hægt að bæta öryggi umferðar út úr borginni vestur á land. Umferðaröryggismál eru mér hugleikin og fyrir mér eru það forgangsverkefni að skilja á milli umferðar úr gagnstæðum áttum á vegum út frá höfðuborgarsvæð- inu. Í fyrstu leit úr fyrir að tvö- földun austur fyrir fjall myndi tefja úrbætur í umferðaröryggi á leiðinni vestur í Borgarnes. Báðar þessar leiðir eru hættu- legar vegna þess hve umferðar- þunginn er mikill og því verður að bæta umferðaröryggi á þeim báðum eins fljótt og kostur er. En í þessu máli eins og mörgum öðrum koma einkaaðilar að með hagkvæmar lausnir sem verða til þess að hægt er að auka umferð- aröryggi á báðum þessum leiðum án þess að önnur framkvæmdin bitni á hinni. Höfundur er frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi. Gleðiefni
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.