Fréttablaðið - 11.05.2007, Side 76
Góðir landar, nú fer að líða að einni af stóru stundun-
um í okkar lýðræðisþjóðfélagi
sem eru kosningar til alþing-
is þann 12. maí. Nýr valkost-
ur er nú kominn upp; Íslands-
hreyfingin - lifandi land, þar
sem samfélagi, efnahag og
umhverfismálum er gert jafn
hátt undir höfði. Ef þú spyrð mig; Hvers vegna
ætti ég að kjósa flokk sem vill stóriðjustopp? þá
svara ég því hér á eftir, því gallarnir við frekari
uppbyggingu stóriðju eru vægast sagt óhugnan-
legir. Hvar eigum við að byrja? Jú, byrjum á ís-
lenskri náttúru því hún getur ekki borið hönd
fyrir höfuð sér og fæst nú nánast gefins til er-
lendrar stóriðju.
Margir álíta að víðernin á Íslandi séu enda-
laus, það séu til endalausar ár til að stífla - það sé
til nóg af þessari náttúru. En eftir að hafa flogið
á litlu flugvélinni minni yfir Ísland og ljósmynd-
að nú vel á annan áratug, þá kemur það mér ein-
mitt mest á óvart hve þessi hálendissvæði eru í
raun lítil og sérstæð.
Tökum sem dæmi Eyjabakka sem ná yfir lítið
svæði, aðeins nokkra kílómetra á kant. Hvergi
hef ég séð neitt sem líkist þeim. Fossaröðin
neðan þeirra verður þurrkuð upp vegna Kára-
hnjúkavirkjunar. Önnur náttúruperla er Langi-
sjór sem ekki á sinn líka; djúpblátt stöðuvatn í
fjallasal, skreytt hvanngrænum eyjum. Eigum
við að eyðileggja Langasjó með mórauðu jökul-
vatni og aurburði úr Skaftá? Einhver eftirminni-
legasta kajak og ljósmyndaferð sem ég hef farið
var sigling um Langasjó frá enda til enda.
Skemmtilegustu ár landsins til flúðasigl-
inga eru í Skagafirði. Hinar stórkostlegu Jök-
ulsár eru meðal aðalsmerkja héraðsins. Eigum
við þurrka þær upp? Eitt magnaðasta háhita-
svæði sem hægt er að fljúga yfir, og ganga um,
er ósnert Torfajökulssvæðið (m.a. Hrafntinnu-
sker) sem teygir sig í órjúfanlegri heild ofan
í náttúruundrið Jökulgil í Landmannalaugum.
Um það liggur m.a. ein vinsælasta gönguleið há-
lendisins, Laugavegurinn. Torfajökulssvæðið er
lítið svæði í um þúsund metra hæð með hverum,
gufustrókum og litadýrð. Það tekur mig einung-
is 3-4 mínútur að hringfljúga það á litlu flugvél-
inni minni. Viljum við sjá fyrir okkur Hellisheið-
arvirkjun þar?
Dettifoss er einn tilkomumesti foss Evrópu.
Ég hef ætlað að mynda hann en hef staðið mig
að því að horfa dolfallinn í flauminn eins og allir
sem þangað koma. Eigum við að setja krana á
Dettifoss? Þjórsárver hafa ekki margir séð með
eigin augum en þau er hreint óviðjafnanlegt að
nálgast eftir flug yfir gróðursnautt umhverf-
ið allt í kring. Að hringfljúga þessa algrónu vin
tekur mig ekki nema um 5-6 mínútur. Stærra er
þetta svæði ekki en í Þjórsárverum verpa tug-
þúsundir heiðagæsa. Nú þegar eru virkjunar-
mannvirki komin alveg í jaðar veranna. Klára
málið og eyðileggja þau líka?
Þessi upptalning hér að ofan er því miður ekki
bara einhver áróður. Þessi svæði er verið að
rannsaka og mæla hátt og lágt til að gera klár
fyrir virkjanir. Það eru enn fleiri svæði á skurð-
arborðinu, mjög falleg svæði sem munu koma
okkur til góða í framtíðinni ef við björgum þeim.
Ef þú kjósandi góður vilt stöðva þá óheillaþró-
un sem í gangi er þá gerir þú það aðeins með at-
kvæði þínu. Örlög landsins snúast um völd.
Þess vegna er Íslandshreyfingin komin til.
Landið og náttúran verða að fá fleiri málsvara
inn á Alþingi. Að þeir komi aðeins úr röðum
Vinstri grænna hefur ekki reynst nóg.
Höfum það alveg á hreinu, ágætu landar, að
þetta eru síðustu alþingiskosningarnar sem
gefa okkur kost á að koma náttúru og framtíð-
arímynd þessa lands til bjargar. Ímynd sem er
búið að verja milljónatugum ef ekki hundruð-
um í að markaðssetja. Ímynd sem við erum nú
þegar þekkt fyrir. Í alþingiskosningunum árið
2011 verður orðið of seint að kjósa íslenskri nátt-
úru griða.
Kjósum með landinu; ánum, fuglunum, lækj-
unum, mosanum, hveralitunum og ósnortna um-
hverfinu. Við þurfum ekki fleiri álbræðslur, við
þurfum Ísland eins og það er.
Höfundur skipar 6. sæti á lista Íslandshreyf-
ingarinnar í kjördæminu Reykjavík norður.
Síðustu forvöð fyrir kosningar
Það er keppi-kefli allra
stjórnmála-
flokka að út-
rýma biðlistum
í velferðarkerf-
inu. Í kappsemi
sinni keyrir
hins vegar Samfylkingin kosn-
ingabaráttu sína á villandi upp-
lýsingum um biðlista í velferð-
arkerfinu. Samfylkingin heldur
því fram að yfir 3000 manns séu
á biðlista á Landspítalanum eftir
aðgerðum.
Jóhannes Gunnarsson, lækn-
ingaforstjóri segir í viðtali við
Morgunblaðið um síðustu helgi
að rúmlega 2000 manns hafi
beðið eftir að komast í skurð-
aðgerð á LSH í mars 2007, sem
er svipað og fyrir ári síðan. Þar
af voru 1354 sjúklingar sem
höfðu beðið lengur en 3 mán-
uði, en sjúkrahúsið lítur svo á
„að skemmri bið en 3 mánuðir
sé ekki eiginlegur biðlisti, held-
ur vinnulisti“. Þessi viðmiðun er
ekki séríslensk, heldur almennt
höfð til hliðsjónar við skipu-
lagningu í heilbrigðisþjónustu.
Þannig hafa mörg lönd sett sér
viðmið um að 3-6 mánaða biðtími
eftir nauðsynlegri heilbrigðis-
þjónustu sé innan tilhlýðilegra
marka. Þá stefnu hefur m.a.
Samfylkingin markað sér.
Lækningaforstjórinn bendir t.d.
á að 400 manns eru á lista til að
fara í aðgerðir á háls- nef og
eyrnadeild, en 120-130 aðgerðir
eru gerðar á mánuði eða 360-390
aðgerðir á þremur mánuðum.
Varla er hægt að kalla þetta bið-
lista, því það hentar oft fólki að fá
fyrirvara að fara í aðgerð m.a.
vegna vinnu og ýmissa ráðstafana
í persónulegu lífi. Það þarf varla
að taka það fram að þeir sem eru í
brýnni þörf komast strax að.
Að sama skapi hafa komið
fram upplýsingar um að meðal-
biðtími eftir göngudeildarþjón-
ustu hjá Barna- og unglingageð-
deildinni (BUGL) sé rúmir 3
mánuðir. Biðlisti upp á 160-170
börn er nýtilkominn og jókst um
helming á síðustu tveimur mán-
uðum, sem ekki hefur tekist að
útskýra, ekki síst í ljósi þess að
frá áramótum hefur Miðstöð
heilsuverndar barna sinnt 75
börnum sem annars hefðu fengið
þjónustu á BUGL. Þetta er nýtt
úrræði innan heilsugæslunnar
sem styrkir þjónustu við börn
með geðrænan vanda og fjöl-
skyldur þeirra og hafa sálfræð-
ingar verið ráðnir til þessa verk-
efnis frá áramótum.
Fleiri dæmi má taka úr aug-
lýsingum Samfylkingarinnar en
allar bera þær að sama brunni.
Kosningaáróður Samfylking-
arinnar þessa dagana dregur
úr trúverðugleika flokksins og
sýnir að hjá þeim helgar tilgang-
urinn meðalið.
Höfundur er alþingismaður og
er í 4. sæti á lista Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík suður.
Biðlisti eða vinnulisti
Alþingi hefur verið að
myndast við
að setja reglur
um kosninga-
baráttu stjórn-
málaflokkanna
og fjárreiður
þeirra. Þannig eru settar reglur
um hversu há framlög fyrirtækja
og einstaklinga mega vera. Auk
þess hafa flokkarnir gert með sér
samkomulag um hámark kostnað-
ar við auglýsingar á landsvett-
vangi. Þetta er allt gott og bless-
að en virðist skipta takmörkuðu
máli þegar litið er á gegndarlaus-
an fjáraustur ráðuneytanna í formi
kosningarloforða, siðlausra samn-
inga sem gerðir eru af ráðherrum
í nafni viðkomandi ráðuneyta og á
kostnað skattgreiðenda.
Það er eðlilegt og sjálfsagt að
Sjálfstæðis- og Framsóknarflokk-
urinn geti gefið sín kosningaloforð
rétt eins og aðrir flokkar. Þannig
er í góðu lagi að frambjóðandi Þor-
gerður Katrín Gunnardóttir gefi
loforð til Húsvíkinga að hún muni
beita sér fyrir fjárveitingum til
hvalaskoðunar næstu árin en það
er siðlaust og pólitísk misbeiting að
gera það í nafni menntamálaráðu-
neytisins þó svo að hún komi til
með að sitja í því ráðuneyti nokkra
daga í viðbót. Pólitískt umboð ríkis-
stjórnarinnar rennur út 12. maí og
alls óvíst hvort það verður endur-
nýjað. Því geta ráðherrar ekki vísað
til þess að þeir hafi þingmeirihluta
að baki sér til að fylgja eftir samn-
ingum sínum á Alþingi á komandi
þingi. Skiptir þá engu hvort slík-
ir samningar eru gerðir með fyrir-
vara um fjárveitingar frá fjárveit-
ingarvaldinu, þ.e. Alþingi.
Samningar ráðherra ríkisstjórn-
ar Sjálfstæðis- og Framsóknar-
flokks á síðustu dögum, vikum og
mánuðum nema skuldbindingum til
framtíðar upp á um 450 milljarða
króna og vegur samgönguáætlun
þar þyngst. Þeir eru í reynd mark-
lausir nema að þeir eigi sér stoð í
samþykktum Alþingis. Upphæðirn-
ar eru misháar og dreifast vítt og
breitt um landið. Margt er til góðra
verkefna sem vanrækt hafa verið
um langan tíma í tíð núverandi rík-
isstjórnar. Það er t.d. hálf aumkun-
arvert að sjá þegar heibrigðisráð-
herra hleypur til á síðustu stundu
varðandi tannheilsu barna þegar
í ljós hefur komið að Framsókn-
arflokkurinn á sér orðið afar fáa
stuðningsmenn ef undan er skildir
þeir félagar, Karíus og Baktus.
Á meðan kosningabarátta ann-
arra er látin sæta takmörkunum um
fjáröflun og í auglýsingum þá ríða
ráðherrarnir um héruð og ausa út
skattfé almennings án þess að hafa
til þess nokkuð umboð. Ráðherra-
ræðinu verður að linna svo koma
megi í veg fyrir að þeir misbeiti
valdi sínu og geri siðlausa samn-
inga í nafni ríkisins án nokkurra
trygginga um stuðning Alþingis við
gerðir þeirra.
Höfundur er frambjóðandi og
kosningarstjóri Samfylkingarinn-
ar í Kraganum.
Siðlaus kosningabarátta
Sorpkvarnir
Minna sorp - betri lykt
Fullt verð frá kr.: 24.900
Léttu
þér lífið
Pitstop – góð vara, frábært verð og framúrskarandi þjónusta.
Gæðakaffi, nettengd tölva, tímarit og blöð – fyrir þig meðan þú bíður.
Nú á þremur stöðum á höfuðborgarsvæðinu – þjónusta í fyrirrúmi.
Hjallahrauni 4 Hfj.
565 2121
Dugguvogi 10
568 2020
Skeifunni 5
568 2025
SUMARDEKKÁ FRÁBÆRU VERÐI