Fréttablaðið - 11.05.2007, Side 78
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5000.
Ásta Dís Óladóttir hefur
verið ráðin dósent við Há-
skólann á Bifröst.
„Mér líst mjög vel á þetta
og finnst þetta spennandi,“
segir Ásta Dís, sem hefur
störf í ágúst. „Ég þekki þetta
ágætlega því ég er búin
að vera hjá HÍ síðan 1999,
þannig að þetta umhverfi er
ekkert nýtt fyrir mér. Aðal-
ástæðan fyrir því að ég er
að fara þarna er samt sú að
Ágúst Einarsson er þarna.
Við erum búin að vinna
saman undanfarin ár og
mér finnst mjög spennandi
að vinna með honum áfram.
Svo er verið að byggja upp
þetta alþjóðaviðskiptanám í
Bifröst í samvinnu við Við-
skiptaháskólann í Kaup-
mannahöfn. Þarna er margt
mjög spennandi að gerast og
ég hlakka til að flytja í Borg-
arfjörð,“ segir hún.
Ásta Dís hefur undanfar-
in ár starfað og sinnt dokt-
orsrannsóknum í alþjóða-
viðskiptum við Viðskiptahá-
skólann í Kaupmannahöfn
þar sem hún rannsakar ár-
angur beinna erlendra fjár-
festingafyrirtækja sem
koma frá smáum hagkerf-
um.
Þess utan er hún að vinna
að rannsókn með sérfræð-
ingum frá háskólum í Dan-
mörku, Noregi og Svíþjóð,
þar sem er leitast við að
varpa ljósi á fjölbreytileika
í stjórnum fyrirtækja og
hvaða áhrif það hefur á ár-
angur að hafa fólk með mis-
munandi bakgrunn í stjórn-
um fyrirtækja.
Ásta Dís mun áfram sinna
kennslu og rannsóknum við
Viðskiptaháskólann í Kaup-
mannahöfn meðfram störf-
um við Háskólann á Bif-
röst. Hún hefur búið í þrjú
ár í Danmörku og segir þann
tíma hafa verið yndislegan.
Ásta er gift Reyni Jónssyni,
framkvæmdastjóra Strætó
bs., og eiga þau fjögur börn.
Ég nota ekki eiturlyf,
ég er eiturlyf.
Adolf Eichmann handsamaður
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug
við andlát og útför elskulegs sonar okkar,
bróður og barnabarns,
Benedikts Steinþórssonar.
Guðrún Björk Benediktsdóttir og Hreggviður Þorsteinsson
Steinþór Benediktsson og Hildur Guðbjörnsdóttir
Jóna Guðlaugsdóttir og Benedikt Ágústsson
Matthildur Guðbrandsdóttir og Benedikt Þorvaldsson
systkini og aðrir aðstandendur.
Jóhanna Jóhannsdóttir
ljósmóðir, frá Skógum, Fellsströnd, Dalasýslu,
lést 29. apríl síðastliðinn. Útförin hefur farið fram í
kyrrþey að ósk hinnar látnu. Við þökkum góða um-
önnun á liðnum veikindaárum. Ef einhverjir vilja
minnast hennar var það ósk hennar að Umhyggja, félag
til styrktar langveikum börnum fengi notið þess.
Guð blessi minningu hennar og öll hennar störf.
Vinir og vandamenn.
Hjartans þakkir sendum við öllum fyrir
auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts
ástkærs eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður og afa,
Vilhjálms Rúnars
Hendrikssonar
er lést á Sjúkrahúsi Akraness 30. apríl síðastliðinn.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Aðalheiður A. Oddsdóttir
Dagbjartur Kr. Vilhjálmsson Þórdís Sveinsdóttir
Jón Ragnar Vilhjálmsson Anna Krístín Guðnadóttir
Aðalheiður Ósk Dagbjartsdóttir.
Innilegar þakkir fyrir hlýhug og samúð við
andlát og útför ástkærs bróður míns,
Herberts Ólafssonar
Fyrir hönd aðstandenda,
Karitas Laufey Ólafsdóttir.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Kristjana Bjarnadóttir
Breiðanesi, Gnúpverjahreppi,
sem lést þann 6. maí, verður jarðsungin frá Stóra-
Núpskirkju laugardaginn 12. maí kl. 14.00.
Sesselja Loftsdóttir
Gunnhildur Loftsdóttir Björn Árnason
Helga Guðrún Loftsdóttir
Hrafnhildur Loftsdóttir Ingvar Bjarnason
Loftur S. Loftssson Kristrún Björg Loftsdóttir
barnabörn og barnabarnabarn.
Útgáfuforlagið Nýhil afhenti
í gær Mæðrastyrksnefnd
allan ágóða af sölu metsölu-
bókarinnar „Hannes – Nótt-
in er blá, mamma“ eftir
Óttar Martin Norðfjörð, eða
300 þúsund krónur. „Bókin“,
fyrsta bindi ævisögu Hann-
esar Hólmsteins Gissurar-
sonar, var einblöðungur sem
seldur var á 99 krónur.
„Bókin“ kom út fyrir síð-
ustu jól og sat í margar
vikur í efsta sæti metsölu-
lista Eymundssonar og varð
ein mest selda bók ársins.
Að því er fram kemur í til-
kynningu frá Nýhil er von
á öðru bindi ævisögunnar,
Hólmsteinn, í nóvember á
þessu ári.
Mæðrastyrksnefnd
fékk 300 þúsund
FÆDDUST ÞENNAN DAG