Fréttablaðið - 11.05.2007, Page 80

Fréttablaðið - 11.05.2007, Page 80
Frá því ég man eftir mér hefur mér verið strítt á því að vera sérvit- ur. Svokölluð sér- viska mín felst í því að ég veit nákvæm- lega hvað ég vil og enn betur hvað ég vil ekki og læt því ekki bjóða mér hvað sem er. Sjálf held ég því þess vegna fram að ég sé vandlát. Mér finnst bara ekkert að því að vera vandlát. Eini gallinn við það er að þegar maður veit nákvæmlega hvað maður vill getur tekið tíma að finna það, en ég er þó frekar tilbú- in til að gefa mér hann heldur en að sætta mig við eitthvað sem er bara allt í lagi. Eins getur það gerst þegar maður venst því að þurfa venju- lega að leita lengi að maður sjái ekki að stundum er það sem leit- að er að beint fyrir framan nefið á manni og því sé leitað full langt yfir skammt. Pabbi minn hefur einstaklega gaman af að segja söguna af því þegar hann fór með mig sem ungl- ing til Evrópu að kaupa sundbol. Ferðin var auðvitað ekki farin í því skyni en þar sem við ætluð- um til fjölda landa datt mér í hug að ég gæti kannski fundið sundbol, sem mig vantaði, einhvers staðar. Ég var auðvitað búin að sjá fyrir mér nákvæmlega hvernig sundbol ég vildi og var viss um að ég fyndi hann í einhverjum af heimsborgum álfunnar. Sundbolurinn fannst hins vegar hvergi, þó að ég færi inn í hverja einustu verslun sem seldi sundföt á ferð okkar. Pabbi var að sjálfsögðu orðinn hundleiður á veseninu í mér og margbúinn að reyna að fá mig til að kaupa einhvern af þeim bolum sem buðust en ég gaf mig ekki. Ég vissi hvað ég vildi og neitaði að sætta mig við eitthvað annað. Ég var því pínu leið þegar við þurftum að fara heim án þess að ég hefði fundið það sem ég leitaði að, en þó sátt við að hafa ekki keypt eitthvað sem ég vildi ekki. Ég var líka fljót að taka gleði mína að fullu þegar ég fann draumasundbolinn nokkrum dögum eftir að ég kom heim í Kaupfélaginu á Húsavík. 2.980 kr. BUMP’N GO! 2.480 kr. SUPERMAN-BÚNINGUR 1.980 kr./stk. SPIDERMAN OG FÉLAGAR 3.980 kr. VEF-BYSSA Súperhetjufarartæki! Spiderman fylgir! HETJU dagar Spiderman bíll sem skýtur kóngulóavef - Spiderman fylgir! BATTLE ACTION 5.980 kr. Uppblásanlegur!
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.