Fréttablaðið - 11.05.2007, Blaðsíða 87
Bandaríska tónlistarkonan Norah
Jones heldur tónleika í Laugar-
dalshöll sunnudaginn 2. september.
Tónleikar Noruh Jones eru jafnan
stórviðburður hvar sem þeir eru
haldnir og yfirleitt komast færri að
en vilja, enda hafa plötur þessarar
vinsælu söngkonu selst í tugmillj-
óna upplagi um allan heim.
„Það hefur verið mikil vinna í
gangi síðustu mánuði að landa þess-
um tónleikum, enda á ferðinni einn
dáðasti og stærsti tónlistarmaður
áratugarins,“ segir Eldar Ástþórs-
son hjá Hr. Örlygi. Það er FL Group
sem gerir tónleikana mögulega
og stendur fyrir þeim í samvinnu
við Hr. Örlyg. Um svokallaða sitj-
andi tónleika verður að ræða og því
verða aðeins rúmlega 2.500 miðar í
boði. „FL Group tekur þátt í þessu
með okkur en fyrirtækið ætlar ekki
að kaupa upp alla miðana. Það voru
forsendur sem við gengum út frá
strax frá upphafi. Það gefst öllum
kostur á að kaupa miða og það verð-
ur örugglega hart barist um þá,“
segir Eldar.
Um þessar mundir stendur Norah
í ströngu við að fylgja eftir þriðju
plötu sinni, Not Too Late, sem kom
út í janúar og þykir með hennar
bestu og framsæknustu verkum.
Fyrsta plata Noruh Jones, Come
Away With Me, vakti heimsathygli
þegar hún kom út árið 2003. Fyrir
hana fékk Norah fimm Grammy-
verðlaun, en síðan hefur hún hlot-
ið þrenn til viðbótar.
Norah, sem er dóttir hins víð-
fræga indverska tónlistarmanns
Ravis Shankar, mun í Laugardals-
höll koma fram með hljómsveit
sinni, The Handsome Band. Á næst-
unni verður tilkynnt hvenær miða-
sala á tónleikana hefst.
Norah Jones til Íslands Flybus fær góða dóma
Lagið Flybus með rokksveitinni
Reykjavík! fær átta í einkunn af
tíu mögulegum á heimasíðunni
paperthinwalls.com. Lagið er að
finna á EP-plötunni Dirty Week-
end With Reykjavík! sem var
tekin upp á hálfum sólarhring
og gefin út daginn eftir.
„Rokkhópurinn Reykjavík!,
sem er nefndur eftir heima-
borg sinni, hefur svo sannar-
lega unnið fyrir upphrópunar-
merki sínu með krafti sínum og
skemmtilegheitum,“ segir í um-
sögninni. „Fyrstu plötu sveit-
arinnar, Glacial Landscapes,
Religion, Oppression and Al-
cohol, hefur verið hampað af
David Fricke [hjá tímaritinu
Rolling Stone] en aðrir hafa
ekki veitt sveitinni þá athygli
sem henni ber.“
ATLI
GÍSLASON
1. SÆTI Í SUÐURKJÖRDÆMI
ALLT ANNAÐ LÍF! – með vinstri grænum
KVENFRELSI, NÁTTÚRUVERND,
BÚSETUJAFNRÆÐI, NÝSKÖPUN,
VELFERÐ OG MANNRÉTTINDI