Fréttablaðið - 11.05.2007, Page 88
Nú þegar Kate Middleton er
horfin á braut hefur kast-
ljós bresku fjölmiðlannna
beinst sífellt meira að hinni
ljóshærðu Chelsy sem hefur
verið kærasta Harry prins í
rúm þrjú ár. Og skötuhjúin
hafa hreinlega slegið í gegn.
Harry og Chelsy kynntust fyrst
þegar konungsfjölskyldan fór í
stutt frí til Simbabve. Harry ku
hafa fallið strax fyrir stúlkunni
og meðal annars létt á hjarta sínu
við nokkra ferðamenn sem sátu í
sínum mestu makindum við Oka-
vango-vatnið í Botsvana. „Harry
skildi bara ekki hvernig í ósköpun-
um hann gat verið orðin ástfanginn
af þessari stúlku eftir bara fjóra
daga,“ sagði einn sjónarvottanna.
Stóra spurningin er hins vegar
hvort Chelsy mætir með Harry
í opinbera minningarathöfn um
móður hans, Díönu prinsessu, í
júlí. Samkvæmt bresku fjölmiðlun-
um hefur Harry þegar boðið henni
á tónleikana sem hann skipulegg-
ur ásamt bróður sínum. „Ef Harry
og Chelsy mæta saman yrði það
mjög stórt skref en Harry er ekki
viss um að hann vilji kalla allt fjöl-
miðlafárið yfir Chelsy strax.“
Chelsy er algjörlega á skjön við
Kate sem Vilhjálmur sagði upp
fyrir skömmu. Hún er alin upp við
allsnægtir og hefur aðsetur í þrem-
ur löndum en faðir hennar er vell-
auðugur viðskiptajöfur í Simb-
abve. Chelsy hefur getið sér góðs
orðs fyrir fyrirsætustörf en þykir
með eindæmum klár og var góður
nemandi í skóla. „Henni er alveg
sama að Harry er prins, henni
finnst það jafnvel til trafala,“ sagði
einn heimildarmaður við breska
blaðið Daily Mail.
Og þótt Chelsy virki á marga
sem litlu snobbaða stelpan þá hefur
hennar barnslegi þokki og einlægni
heillað meðlimi konungsfjölskyld-
unnar upp úr skónum. Jafnvel
Bretar virðast smám saman vera
farnir að opna augun fyrir því að
Harry og Chelsy gætu verið næstu
konunglegu hjónakornin. Þeir eru,
þótt ótrúlegt megi virðast, farn-
ir að trúa því að ástin geti þrifist
innan Buckingham.
Fjölmiðlar hafa jafnframt verið
að taka Harry í sátt á undanförn-
um misserum. Enda hefur margt
breyst og eru þeir ófáir sem vilja
þakka Chelsy því að Harry er
orðinn að manni. Prinsinn rauð-
birkni var áður fyrr ólátabelgur-
inn í Buckingham, drakk áfengi
ótæpilega og reykti gras og gerði
allt brjálað þegar hann mætti sem
nasisti á grímuball. Þjóðin saup
hveljur og blöðin tóku hann af
lífi með fyrirsögnum á borð við
„Harry the Nazi“. Hann var sagð-
ur hafa niðurlægt arfleifð langafa
síns og langömmu sinnar Elísabet-
ar sem þjöppuðu þjóðinni saman
þegar Hitler lét sprengjum rigna
yfir Bretland.
En nú er það sem sagt Harry sem
á sviðið enda virðist Vilhjálmur
prins eingöngu hafa áhuga á fögr-
um fljóðum og eltir hvert einasta
pils á skemmtistöðum höfuðborg-
arinnar. Harry er að fara í stríð-
ið til Íraks og ætlar sér að verja
heiður fjölskyldu sinnar og þjóðar.
Og heima bíður hans hin laglega
Chelsy. Vilhjálmur prins verður
síðan alveg örugglega á næsta bar
með enn einni dömunni.
Í frétt á heimasíðunni Contact-
music.com kemur fram að Sir Cliff
Richard, sem hélt tónleika á Íslandi
fyrr á árinu, hafi farið að hlæja
þegar hann sá auglýsingu fyrir tón-
leikana þar sem stóð að hann hefði
verið að í fjórar aldir.
„Ég er ekki alveg að skilja þetta
og kannast bara ekkert við þetta,“
segir Guðbjartur Finnbjörnsson,
sem stóð fyrir tónleikum Richard.
„Hann talaði aldrei um að hafa séð
þessa auglýsingu og ég hef ekki séð
hana sjálfur. Ég veit bara að þeir
voru rosalega ánægðir á Íslandi.“
Í auglýsingunni stóð að Cliff Ri-
chards, sem er 66 ára, hefði verið
goðsögn í tónlistinni í rúmar fjórar
aldir. Þegar hann hefði komið fram
á sjónarsviðið árið 1758 hefði ung-
æðisleg orka hans komið eins og
ferskur blær fram á sjónarsviðið. Í
frétt Contactmusic stendur að aug-
lýsendurnir hafi verið ansi skömm-
ustulegir vegna málsins og hafi
undir eins breytt „fjórum öldum“ í
„fjóra áratugi“ og 1758 í 1958.
„Margir átta sig ekki á því að
hann er bara tveimur árum eldri en
Paul McCartney. Hann
byrjaði bara svo
ungur, 17 ára, og er
búinn að vera lengi
að,“ segir Guðbjart-
ur um fyrrverandi
skjólstæðing sinn.
Cliff í fjórar aldir
Nýjasta plata Garðars Thors Cort-
es, sem hefur setið á toppi klass-
íka vinsældalistans í Bretlandi í
þrjár vikur, hefur selst í tæpum
fimmtíu þúsundum eintaka þar í
landi.
„Þetta er klassísk plata og getur
ekki keppt við Mika eða Arctic
Monkeys, sem seldi 220 þúsund
eintök í fyrstu vikunni. Hún er
ekki á þeim stað ennþá,“ segir
umboðsmaðurinn Einar Bárðar-
son. „Þessar plötur hafa allt annað
gildi og annan lífsstrúktúr á list-
anum. Platan sem við tókum efsta
sætið af á klassíska listanum er
búin að vera á markaðnum síðan
fyrir jól og hefur selst í 500 þús-
und eintökum. Þetta er karlakór
og þeir opnuðu bresku Brit-verð-
launin um daginn. Þeim fannst
ógeðslega súrt að einhverjir Ís-
lendingar væru komnir í fyrsta
sætið.“
Einar reiknar með því að Cort-
es eigi eftir að halda áfram að
seljast í nokkrum þúsundum ein-
taka í mjög langan tíma í viðbót.
„Eins og staðan er núna hugsa ég
að þegar þessi plata hættir að selj-
ast hefur hún selst pottþétt í 100
til 200 þúsund eintökum.“
Platan er væntanleg í búðir hér á
landi á fimmtudaginn í næstu viku
og má þá búast við mikilli sölu,
enda seldist fyrsta plata Garðars
Thors í um tuttugu þúsundum ein-
taka hér á landi. Á nýju plötunni
er helmingur laganna sá sami og
var á fyrstu plötu Garðars. Þau
lög hafa þó verið sungin upp á nýtt
og eru endurhljóðblönduð.
Garðar gæti farið í 200 þúsund eintök
Fangelsisdómur Parisar Hilt-
on hefur verið á vörum margra
síðan hann féll fyrir viku og
allir virðast hafa skoðun á mál-
inu. Lindsay Lohan, sem virð-
ist vera vinkona hótelerfingjans
þessa stundina, tjáði sig um málið
í viðtali hjá David Letterman.
Hún sagði refsinguna sem Paris
hlaut fyrir að aka undir áhrifum
áfengis afar ósanngjarna. „Þetta
er skelfilegt,“ sagði Lohan, sem
vísaði sögusögnum um að Paris
hefði kýlt hana á skemmtistað á
bug við sama tækifæri.
Það ku hins vegar ekki plaga
Cameron Diaz að Hilton verði
lokuð inni. Entertainment Tonight
hefur eftir Diaz að Paris þurfi
að horfast í augu við afleiðingar
slæmrar hegðunar sinn-
ar. Diaz er þar að auki
nágranni hótelprins-
essunnar og er víst
orðin dálítið pirruð
vegna ágangs ljós-
myndara. „Við þjá-
umst öll þegar Paris
þjáist,“ sagði Diaz, og
átti þar við fjöl-
miðlafárið sem
skapast iðulega í
kringum Hilton.
Skiptar skoðanir um Paris Hilton
Rekstrarvörur
1982–200725ára
R
V
62
31
Expertinn frá Dreumex
– engin vettlingatök við óhreinindin
Expert frá Dreumex
Áhrifaríkt handþvottakrem
Virkar vel á smurningu,
hráolíu, bremsuvökva,
sement og önnur óhreinindi.
Fáanlegt í handhægum
2,7 ltr. brúsa með dælu.
Örkorn í stað
leysiefna
Húðvænt og
rakagefandi
Kynningarverð
1.230 kr.