Fréttablaðið - 11.05.2007, Qupperneq 98
FH-ingar hafa unnið yfir-
burðasigur á Íslandsmótinu tvö síð-
ustu sumur, unnu deildina með 16
stigum 2005 og voru komnir með
10 stiga forskot þegar mótið var
hálfnað í fyrra. Það skiptir miklu
máli að byrja mótið vel og Ólaf-
ur Jóhannesson, þjálfari FH-liðs-
ins, hefur mætt með sitt lið á full-
um krafti inn í mótið undanfarin
tvö sumur.
Fyrstu fjórar umferðir Lands-
bankadeildarinnar eru oft nefnt
hraðmótið því þær eru spilað-
ar á mjög stuttum tíma og fyrir
landsleikjahléið sem er í byrjun
júní. Liðin spila því fyrstu leiki
sína og rúman fimmtung á mótinu
þar sem ekki er mikill tími fyrir
þjálfara að laga það sem klikkar í
fyrstu leikjunum.
Byrjun FH-liðsins síðustu tvö
árin er ekki síst athyglisverð
vegna þess að liðið hefur spilað sex
af þessum átta leikjum á útivelli
og mætti bæði KR og Val í fyrstu
tveimur umferðunum í fyrra.
Fyrir þá FH-inga sem eru hjátrú-
arfullir þá geta þeir fagnað því
að líkt og undanfarin þrjú meist-
araár þá mun Hafnarfjarðarliðið
spila þrjá af fjórum fyrstu leikj-
um sínum á útivelli. FH fer upp á
Skaga í 1. umferð, fer til Keflavík-
ur í 2. umferð og eftir heimaleik
við nýliða HK í 3. umferð þá spilar
liðið við Fram á Laugardalsvelli í
4. umferðinni.
FH-ingurinn Tryggvi Guðmunds-
son hefur verið afar heitur í hrað-
mótsleikjunum undanfarin tvö ár
og hefur skorað átta mörk í þess-
um átta leikjum. Tryggvi skoraði
fimm mörk í fyrstu þremur leikj-
unum 2005 og skoraði síðan tvö
mörk í opnunarleiknum í fyrra.
Valsmenn og Keflvíkingar koma
næstir FH-ingum í besta árangri í
hraðmótinu síðustu tvö ár en Vals-
menn hafa unnið sex af átta leikj-
um sínum þar af alla fjóra árið
2005. Valsmenn töpuðu tveimur
fyrstu leikjum sínum í fyrra þar á
meðal 0-2 á móti FH á heimavelli
í 2. umferð en eru með fullt hús
stiga út úr hinum leikjunum. Kefla-
vík hefur líka aðeins tapað tveimur
leikjum, á móti FH á heimavelli í
1. umferð 2005 og svo á móti ÍBV í
Eyjum í 1. umferð í fyrra.
KR-ingar mæta Keflvíkingum í
fyrstu umferð og það hefur ekki
gengið vel hjá vesturbæjarlið-
inu að spila við Suðurnesjamenn
í Hraðmótinu. KR hefur spilað
við Keflavík á þessum tíma þrjú
síðustu ár og hefur tapað öllum
leikjum þremur, 1-3 í Keflavík í
2. umferð 2004, 1-2 í Keflavík í 3.
umferð 2005 og loks 0-3 í Kefla-
vík í 4. umferð í fyrra. KR hefur í
raun ekki unnið Keflavík í fyrstu
fjórum umferðunum síðan 19.
maí 1988 og Keflavík hefur unnið
síðustu fjóra leiki liðanna á þess-
um tíma ársins.
Skagamenn hafa ekki komið vel út
úr fyrstu fjórum umferðunum und-
anfarin tvö sumur. Skagamenn töp-
uðu fimm fyrstu leikjunum sínum í
fyrra og unnu aðeins 2 af fyrstu 7
leikjum sínum árið á undan. Það er
því ljóst á þessu að sagan er ekki
með Guðjóni Þórðarsyni og læri-
sveinum hans í fyrsta leik Íslands-
mótsins á laugardaginn þegar Ís-
landsmeistarar FH koma í heim-
sókn upp á Skaga.
FH-ingar hafa náð í öll tólf stigin í boði í fyrstu fjórum umferðum Landsbankadeildar karla undanfarin
tvö sumur. Þessi frábæra byrjun hefur gefið tóninn á Íslandsmeistarasumrum Hafnarfjarðarliðsins.
Margrét Lára Viðars-
dóttir, markadrottning síðustu
þriggja Landsbankadeilda og
markahæsta A-landsliðskona frá
upphafi, er frábær fyrirmynd
ungra knattspyrnukvenna en hún
er auk þess hörð baráttukona
fyrir eflingu kvennafótboltans
hér á landi.
Margrét Lára skrifaði nýver-
ið undir samning við bæði TM og
netsíðuna fótbolti.net um að hún
heimsækti íþróttafélög út um allt
land þar sem hún myndi virkja og
hvetja ungar knattspyrnukonur
til að stefna hátt.
„Maður sér það á litlum strák-
um að þeir ætla að verða atvinnu-
menn í fótbolta frá fjögurra ára
aldri en heyrir að sama skapi
ekkert margar stelpur vera að
stefna á það. Þetta er fyrir fram-
an strákana á hverjum degi en
stelpurnar vita ekki hver er besta
knattspyrnukona í heimi eða hvar
besta deildin er.
Þær sjá ekki að þær geti orðið
atvinnumenn í sinni íþrótt. Þetta
getur verið miklu meira en bara
félagsskapur fyrir stelpurnar.
Þetta getur orðið þeirra vinna í
framtíðinni ef þær hafa áhuga á
því,“ segir Margrét Lára sem er
mikil hugsjónamanneskja.
„Kvennafótboltinn er á mikilli
uppleið og það má gera enn betur.
Þetta verður mín vinna og það
eru þvílík forréttindi. Ég ætla að
fara á sem flesta staði á landinu
þannig að allir fái að njóta góðs
af þessu,” segir Margrét Lára en
kynning hennar verður tvískipt.
„Ég verð bæði með fyrirlest-
ur og æfingu á hverjum stað. Æf-
ingin er sett upp sem einskon-
ar aukaæfing þar sem stelpurnar
geti séð hvað þær geta gert sjálf-
ar. Fyrirlesturinn heitir Góð leið
að árangri og þar er ég að fara
yfir markmiðssetningu, metnað
og sjálfstraust eða allt sem mér
finnst leikmaður þurfi að hafa til
þess að ná langt,“ segir Margrét
Lára sem horfir til eigin reynslu
þegar hún var að alast upp í
Eyjum.
„Ég var beðin að taka þátt í
þessu verkefni og var þá með
margar hugmyndir um þetta
sjálf.Ég vissi ekki að ég gæti farið
út og spilað. Ég vissi að ég gæti
komist í landsliðið og meistara-
flokk en sá ekkert fram á meira
en það. Það er nauðsynlegt að
sýna stelpunum að þetta sé alveg
hægt,“ segir Margrét.
„Ég hef rosalega mikinn áhuga
á kvennafótboltanum og vil gera
allt til þess að bæta hann. Ef ég
get hjálpað til þá vil ég endi-
lega gera það því ég ætla mér út
aftur og þá verð ég ekki í sömu
aðstöðu til að gera þetta eins og
núna,” segir Margrét Lára sem
jafnframt tekur það fram að hún
vilji sjá þetta átak halda áfram
þótt hún verði horfin út í atvinnu-
mennsku.
Margrét vill að stelpur stefni hátt
Valskonur unnu Meist-
arakeppni KSÍ í fyrrakvöld
með því að vinna 8-1 stórsigur
á Breiðabliki, aðalkeppinautum
sínum síðustu tvö árin. Valsliðið
spilaði frábæran fótbolta í leikn-
um með markadrottninguna Mar-
gréti Láru Viðarsdóttur í farar-
broddi. Valskonur eru því bæði
deildabikarmeistarar og meistar-
ar meistarar alveg eins og fyrir
tveimur árum
Búist var við miklu af Valslið-
inu það sumar en Breiðablik sá
við þeim í báðum keppnum og
varð óvænt tvöfaldur meistari.
Nú eru Valskonur aftur í sömu
stöðu, unnu glæsilegan tvöfald-
an sigur síðasta sumar og reyna
nú að verja stóran titil sem þeim
hefur ekki tekist undanfarin ár.
„Við höfum lært heilmikið af
sumrinu 2005. Það skilaði sér í
fyrra og ég vona að það skili sér
núna,“ segir Elísabet Gunnars-
dóttir, þjálfari Valsliðsins, en það
lítur út fyrir að aðalkeppinautar
liðsins í sumar verið KR.
„KR var með hörkulið í fyrra og
mér fannst þær fá of fá stig miðað
við liðið sem þær voru með. Þær
eru betri í ár og baráttan á toppn-
um verður tvísýn,“ segir Elísa-
bet og það er langt í KR-leikinn
sem fer ekki fram fyrr en 6. júlí.
Elísabet er ekki á því að það sé
svo slæmt að vera spáð titlinum
þó að lið í þeirri stöðu hafi klikk-
að þrjú ár í röð. „Þetta hljómar
vel en spár eru bara til þess að
hafa gaman af þeim,“ segir Elísa-
bet.
Elísabet eignaðist barn í vetur
en lætur það ekki aftra sér í þjálf-
un Valsliðsins.
„Við erum búnar að breyta
áherslunum í okkar leik heilmik-
ið. Það verður síðan bara að koma
í ljós hvort það sé rétt. Við vilj-
um prófa nýja hluti og ég held að
það sé líka nauðsynlegt til þess
að gera þetta skemmtilegra fyrir
stelpurnar. Ég er með öðruvísi
leikmenn en ég hef haft og ætla
að stýra leikskipulaginu út frá
þvi,“ segir Elísabet. .
Stelpurnar lærðu heilmikið af tímabilinu 2005
SENDU SMS JA FSP
Á 1900 OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ!
VINNINGAR ERU BÍÓMIÐAR Á SPID
ERMAN,
SPIDERMAN TÖLVULEIKIR, TÓNLIS
T ÚR SPIDERMAN,
DVD MYNDIR OG MARGT FLEIRA
SMS
LEIKUR
SJÁÐU MYND
INA!
SPILAÐU LEI
KINN!J
I !
I I I
!
V
in
n
in
g
ar
v
er
ð
a
af
h
en
d
ir
h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d.
K
ó
p
av
o
g
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
t
ak
a
þ
át
t
er
tu
k
o
m
in
n
í
SM
S
kl
ú
b
b.
9
9
kr
/s
ke
yt
ið
.
Barcelona steinlá óvænt
í seinni undanúrslitaleik sínum
á móti Getafe í spænsku bikar-
keppninni í gær og er því úr leik.
Getafe vann 4-0 í gær og þar
með samanlagt 6-5 en það dugði
Börsungum ekki að skora fimm
mörk í fyrri leiknum. Getafe
mætir Sevilla í úrslitaleiknum.
Eiður Smári Guðjohnsen kom
inn á sem varamaður hálftíma
fyrir leikslok, lék á miðjunni en
komst aldrei í takt við leikinn.
Frammistaða liðsins var grátleg
og ekki stórliði sæmandi.
Barcelona stein-
lá og er úr leik