Fréttablaðið - 11.05.2007, Blaðsíða 102
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
„Þetta er hugsanlega elsti djókur-
inn í stokknum. En virkar alltaf,“
segir Stefán Pálsson sagnfræðing-
ur.
Á uppboðsvefnum eBay kenn-
ir ýmissa grasa, meðal annars er
þar til sölu eitt stykki Sjálfstæð-
isflokkur. Ekkert boð er komið en
upphafsboð er þúsund dollarar.
Sá sem býður flokkinn falan
kallar sig „Vg konan“
og óneitanlega, þegar
galgopaháttur sem
þessi er annars
vegar, berast böndin
að hinum grínakt-
ugu ungliðum í Vinstri grænum.
Þar þekkir Stefán vel til þótt
hann sé útskrifað-
ur. „Þar útskrif-
ast menn þrí-
tugir en teljast
ekki ungliðar
langt á fimm-
tugsaldurinn
eins og annars
staðar. En ég er jú
virkur fótgöngu-
liði,“ segir Stef-
án og á honum
að skilja að
honum sé
kunnugt um
hver fer en
harðneitar
að upplýsa
um það.
„Spilltur og þreyttur valdaflokk-
ur, sem verið hefur í ríkisstjórn
alltof lengi, fæst fyrir lítið fé –
óskast sóttur. Varúð: getur reynst
hættulegur öldruðum, öryrkjum,
barnafólki og fátækum. Myndi
sóma sér vel í flestum bananalýð-
veldum, enda þaulvanur í þjónkun
við bandarísk stjórnvöld og aðra
valdahópa,“ segir í auglýsingunni.
Stefán viðurkennir fúslega að
fingraför ungliða í Vinstri græn-
um séu á þessu. Þeir hafi helst
verið að berja á Framsóknarflokki
en „óhræsið“ sleppi ekki. Lýsingu
á fyrirbærinu sem til sölu er lýkur
svo:
„Forystumenn geðþekkir, en
tala slæma ensku. Öflugt tengsla-
net fylgir með, inniheldur helstu
stjórnendur í íslensku viðskipta-
lífi og a.m.k. einn kvikmyndaleik-
stjóra og háskólaprófessor.“
Sjálfstæðisflokkur til sölu á eBay
„Halim var hress og kátur. Ég
fór í mosku og lagðist á bæn með
honum í Istanbúl. Það var … upp-
lifun,“ segir Reynir Traustason,
ritstjóri Mannlífs, sem er nýkom-
inn frá Tyrklandi þar sem hann átti
að sögn góða daga með Halim Al –
óvini Íslands númer eitt.
Með Reyni í för var sonur hans,
ljósmyndarinn Róbert, og munu
þeir birta afrakstur fararinn-
ar í næsta tölublaði Mannlífs sem
kemur út eftir um hálfan mánuð.
Reynir segir Halim gerbreyttan
mann, svo breyttan að hann hafi
ekki þekkt hann fyrr en Halim
kynnti sig.
„Halim kom mér verulega á
óvart. Og ég er líklega eini Íslend-
ingurinn, sennilega sá eini í heimi,
sem á Kóraninn áritaðan af Halim
Al. Hann var allt öðruvísi en ég
hélt. Hafði bara lesið um Halim
í Séð og heyrt og þar sýndist mér
hann vera einhver vitleysingur. En
það er af og frá. Þetta er hin hlið-
in á Sophiu Hansen-málinu. Sú sem
við höfum aldrei séð né sagt af,“
segir Reynir og vísar til hins mikla
máls sem tröllreið íslenskum fjöl-
miðlum fyrir rúmum áratug þegar
Halim Al fór með dætur sínar og
Sophiu Hansen, þær Dagbjörtu og
Rúnu, til Tyrklands og neitaði að
hleypa þeim aftur til Íslands. Reyn-
ir segir þær sáttar og hafa aðlag-
ast afskaplega vel tyrknesku sam-
félagi og íslam.
Ritstjórinn
með hattinn
segir það hafa verið
mikið ævintýri að
þvælast um Istanbúl
með „karlinum“. Þar
er Halim fjölskyldu- og
stóreignamaður. Millj-
ónari sem lifir í öllum
þeim vellystingum sem
hann kýs að lifa í.
„En hann er mein-
lætamaður. Mér líkaði
hreint ekki illa við hann
en minn tilgangur var
og er að sjá hans við-
horf til alls þessa mikla
máls. Sýna fólki hver
Halim Al er. Partur af
inngrónum rasisma
í íslenskum fjölmiðl-
um hefur verið að tala
ekki um hann nema í
einhverju skrítnu sam-
hengi. Stöðugt brugð-
ið upp mynd af Hund-
Tyrkja. Morgunblaðið
er náttúrulega verst en
þar má endalaust skrifa
niðrandi um Michael
Jackson án þess að þar
séu nokkur mörk. En
ekki má nefna nöfn ís-
lenskra glæpamanna.
Þetta er tvískinnung-
ur,“ segir Reynir sem
telur hlutverk fjölmiðla
felast í að upplýsa á for-
dómalausan hátt.
„Ég geri þá kröfu að bíómynd
hafi mikið af ómerkilegu of-
beldi.“
Magni Ásgeirsson er nýkominn heim úr mikilli ævin-
týraferð til Las Vegas þar sem hann hitaði upp fyrir
Aeorsmith ásamt Dilönu og Adrian, trommara rokk-
hljómsveitarinnar No Doubt, á góðgerðartónleikum
Willy Claire-foundation. Þrátt fyrir að Magni hafi
notið sín vel í skærum ljósum borgarinnar reyndist
ferðin þyrnum stráð. „Ég var eiginlega veikur allan
tímann og lá bara uppi á hótelherbergi,“ segir Magni
sem gaf sér þó tíma til að reyna fyrir sér í „21“ í einu
af spilavítunum. „Húsið vinnur alltaf þar. Það er bara
reglan,“ útskýrir rokkarinn sem tekur þó skýrt fram
að ekki hafi verið um neinar háar fjárhæðir að ræða.
Magni var ekki eini Íslendingurinn á svæðinu því
Biggi rót, rótari Á móti Sól, fékk langþráðan draum
uppfylltan þegar hann fylgdi söngvaranum til Vegas.
„Hann var þarna að róta í fyrsta skipti á erlendri
grundu og fékk meira að segja að vasast í græjunum
hjá Aerosmith,“ segir Magni og bar fylgdarliði hljóm-
sveitarinnar vel söguna.
Hins vegar hafi rokkhundarnir með Steve Tyler
fremstan í flokkki ekki verið mikið fyrir að blanda
geði við aðra skemmtikrafta. „Þeir komu, fóru upp
á svið og svo bara aftur heim. En þeir voru góðir,
alveg drullugóðir og augljóst að þessir
menn eru búnir að vera nokkuð lengi
í bransanum,“ segir Magni sem fékk
þó stjörnur í augun þegar hann
hitti George Costanza, leikarann
góðkunna úr Seinfeld, en hann
var kynnir á kvöldinu „Hann var
alveg hrikalega fyndinn,“ segir
Magni.
Magni var lasinn í Las Vegas
FYRSTUR
MEÐ
FRÉTTIRNAR
www.visir.is