Fréttablaðið - 30.05.2007, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 30.05.2007, Blaðsíða 2
 Lögreglan á höfuð- borgarsvæðinu yfirheyrði í gær karlmann og konu sem grunuð eru um að hafa ráðist á 67 ára gamlan karlmann í húsasundi við Lauga- veg aðfaranótt sunnudags. Maður- inn var handtekinn á mánudags- kvöld eftir að hann hafði freistað þess að nota kreditkort mannsins sem ráðist var á. Konan gaf sig sjálf fram við lögreglu í gær- morgun. Atvikið átti sér stað á fjórða tímanum aðfaranótt sunnudags. Konan lokkaði manninn inn í húsa- sund og bað hann um að gefa sér eld. Þar var hann sleginn í höfuðið aftan frá af vitorðsmanni konunn- ar. Þau tóku síðan af manninum peningaveski, síma, lykla, gler- augu og úr og lömdu hann svo illa að hann rifbeinsbrotnaði og nef- brotnaði auk þess sem hann hlaut ýmsa minni áverka. Tilkynnt var um sjö líkamsárásir á höfuðborgarsvæðinu þessa nótt og voru tvær þeirra alvarlegar. Tveir menn veittust að karlmanni í Breiðholti, kýldu hann í götuna og óku á brott. Þeirra er enn leitað en lögregla hefur haft uppi á bíln- um sem þeir óku. Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins, segir að minniháttar líkamsárásum hafi fjölgað undanfarið. „Samkvæmt þeim tölum sem við höfum undir höndum hefur verið meira um líkamsárásir í miðborginni það sem af er þessu ári en á sama tíma í fyrra. Alvarlegum líkamsárásum hefur hins vegar ekki fjölgað,“ segir Stefán. Hann bendir á að mikilvægt sé að taka þessari fjölgun með fyrirvara enda um fremur stutt tímabil að ræða. „Við fylgjumst náið með þessum tölum og höfum verið að skoða lausnir til þess að ná þeim niður. Undanfarið höfum við unnið að því í samvinnu við Reykjavíkurborg og dóms- málaráðuneytið að fjölga öryggis- myndavélum í miðborginni, eins erum við í samstarfi við skemmti- staðina og dyraverði sem þar starfa,“ segir Stefán. Flest brotin eiga sér stað aðfara- nætur laugardaga og sunnudaga og þar er mesta fjölgunin. Stefán segir að aukin fíkniefnaneysla á skemmtistöðum kunni að vera orsök vandans en fíkniefni koma við sögu í flestum málum. Maðurinn sem varð fyrir líkams- árásinni vildi ekki tjá sig um atvik- ið en kvaðst ánægður með að þrjótarnir hefðu náðst. Hann er á batavegi. Alvarlegum líkams- árásum fjölgar ekki Parið sem rændi mann í húsasundi aðfaranótt sunnudags hefur verið handtekið. Lögregla leitar enn tveggja manna sem réðust á karlmann í Breiðholti sömu nótt. Lögreglustjóri segir að minniháttar líkamsárásum hafi fjölgað í miðborginni. Ráðherrar Asíuríkja – þar á meðal risaríkjanna Kína og Indlands – féllust með semingi í gær á að styðja áform Evrópu- sambandsríkjanna um að stefna að því að gerður verði nýr bind- andi alþjóðasamningur um aðgerðir gegn loftslagsbreyting- um fyrir árið 2009, þegar Kyoto- sáttmálinn umtalaði rennur út. Samkomulagið, sem náðist á samráðsfundi Evrópusambands- og Asíuríkja í Hamborg í gær, var áfangasigur fyrir Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, sem gegnir nú formennskunni bæði í ESB og G8-hópi mestu iðn- velda heims. Henni er í mun að á leiðtogafundi G8-hópsins í Heiligendamm við Eystrasalt í næstu viku náist sátt um að stefna skuli að gerð slíks nýs alþjóðasamnings. Þýsku stjórninni var í mun að fá stuðning Asíulandanna við þessi áform til að auka þrýsting- inn á Bandaríkjastjórn að styðja þau einnig. James Connaughton, sérlegur ráðgjafi Bush Bandaríkjaforseta í umhverfismálum, tók af tví- mæli um það á blaðamannafundi í Berlín í gær að Bandaríkja- stjórn væri eftir sem áður á móti því að á G8-fundinum yrði eitt allsherjarmarkmið sett um að draga úr losun gróðurhúsaloft- tegunda. Stefnt að nýjum Kyoto-sáttmála Ólafur, er kalt á toppnum? Þing verður sett eftir hádegi á morgun. Þingsetningarathöfnin hefst á messu í Dómkirkjunni klukkan hálf tvö og að henni lokinni setur forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, þingið. Hlutað verður um sæti þingmanna, forseti kjörinn og kosið í nefndir þingsins. Annað kvöld flytur Geir H. Haarde forsætisráð- herra stefnuræðu sína og umræður um hana fylgja í kjölfarið. Fyrir þinginu liggur að afgreiða þrjú stjórnarfrum- vörp. Eitt um breytingar á lögum um stjórnarráðið vegna tilfærslu verkefna milli ráðuneyta, annað um málefni barna og ungmenna og hið þriðja um lífeyrismál aldraðra. Unnið er að viðgerðum á Alþingishúsinu og það því klætt stillönsum. Fúgur á norðurhlið hússins eru endurnýjaðar og skífur á þaki. Búist er við að viðgerðum ljúki eftir mánuð. Af þeim 24 nýju þingmönnum sem náðu kjöri í kosningunum 12. maí hafa sautján ekki sest áður á þing. Aðrir hafa ýmist verið þingmenn áður eða komið inn sem varamenn. Kjörbréfanefnd rannsakar kjörbréf nýrra þing- manna á morgun. Þinghald og viðhald á Alþingi Varaforsætisráð- herra Rússlands segir að nýjar langdrægar eldflaugar, sem gerðar voru tilraunir með í gær, gætu komist í gegnum öll eldflauga- varnakerfi. Rússneskar fréttastofur greindu frá þessu. „Frá og með deginum í dag hefur Rússland nýjar eldflaug- ar sem eru færar um að komast í gegnum allar þær eldflaugavarnir sem eru eða munu verða til,“ hafði ITAR-Tass-fréttastofan eftir varaforsætisráðherranum Sergei Ívanov. Áður hafði eldflaugadeild Rússlandshers tilkynnt um tilraun með nýja langdræga eldflaug sem bæri marga sprengjuodda. Einnig hefði ný gerð stýriflaugar verið prófuð. Ný langdræg eldflaug prófuð Einar Karl Haraldsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Össurar Skarp- héðinssonar iðnaðarráðherra. Einar Karl fékkst lengi við blaðamennsku og var meðal annars fyrsti ritstjóri Fréttablaðsins. Hann hefur sinnt ýmsum ráðgjafarverkefnum, til dæmis fyrir Kaupþing. Þá var Einar Karl formaður stjórnar Hjálparstarfs kirkjunnar. Einar var varaþing- maður Samfylkingarinnar á síðasta kjörtímabili. Einar Karl aðstoðar Össur Tannlæknafélag Íslands hefur samþykkt samning við heilbrigðis- og tryggingamála- ráðuneytið. Samkvæmt honum fá þriggja og tólf ára börn forvarn- arskoðun gegn endurgreiðslu. 55 prósent félagsmanna kusu um málið, þar af sagði 61 prósent já. „Meirihluti stjórnarinnar er mjög ánægður með þessa niðurstöðu,“ segir Sigurjón Benediktsson formaður. „Það var hart tekist á um málið innan félagsins en það sneri að því hvernig staðið var að samningn- um, ekki efnisatriðum hans. Þetta er fyrsta skrefið í bættri tann- heilsu íslenskra barna.“ Samþykkti for- varnarskoðun Nordica hótelið í Reykjavík verður hluti af Hilton- hótelkeðjunni og mun eftirleiðis heita Hilton Reykjavik Nordica. Merkingum og ýmsu varðandi starfsemi hótelsins verður breytt á næstu vikum. Skrifað var undir samning þessa efnis í Düsseldorf í gær, að því er fram kemur í tilkynningu frá Icelandair hotel, eiganda Nordica hótelsins. Um er að ræða sérleyfissamn- ing við Hilton Hotels Corporation, en Icelandair hotels mun áfram reka hótelið. Hilton mun leggja til gæðaímynd og margvísleg markaðs- og kynningartækifæri á alþjóðavísu. Um 500 Hilton-hótel eru starfandi um heim allan. Nordica hótel verður Hilton Alþjóðahvalveiðiráðið samþykkti í gær hvalveiðikvóta fyrir frumbyggja Alaska fyrir næstu fimm árin. Þeir fá að veiða 260 grænlandssléttbaka á tímabilinu, eða 52 á ári. Kvótinn var samþykktur samhljóða á ársfundi ráðsins, sem fram fer þessa dagana í Bandaríkjunum. Fulltrúar Japans sögðu á fundinum að þeir myndu halda sig við áform um veiðar á fimmtíu hnúfubökum. Fulltrúar ríkja sem andsnúin eru hvalveiðum höfðu áður hafnað því að veita Japan kvóta hliðstæðan frumbyggja- kvótunum gegn því að hætt yrði við veiðar á hnúfubaki. Sátt um kvóta frumbyggja
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.