Fréttablaðið - 30.05.2007, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 30.05.2007, Blaðsíða 6
Hringdu í 530 2400 og fáðu Heimaöryggi í áskrift! www.oryggi.is H im in n og h af / S ÍA Hver vak tar þitt heim ili? www.lyfja.is - Lifið heil ÍS L E N S K A /S IA .I S /L Y F 3 75 59 0 5/ 07 Acidophilus Bifidus + FOS Mjólkursýrugerlar, góðir fyrir meltinguna. Champignon DETOX + FOS og Spirulina Hreinsaðu líkamann að innan - minnkar óæskilega lykt. Milk Thistle DETOX Hreinsaðu líkamann að innan. Psyllium Husk Fibre Rúmmálsaukandi, gott fyrir meltinguna. 30% afsláttur af Vega vítamínum „Verst er farið með portúgalskt og kínverskt verkafólk á Kárahnjúkum. Það er sárt að hafa þurft að horfa upp á afskiptaleysi lögreglu og stjórn- valda gagnvart því sem hefur átt sér stað,“ segir Hrafndís Bára Einarsdóttir, fyrrverandi starfs- maður Impregilo. Hrafndís segir að sú vanvirðing sem verkafólkinu sé sýnd verði til þess að það kjósi að fara ekki eftir settum reglum og vilji ekki geðj- ast yfirmönnum sínum. Slíkt fram- ferði geti valdið hættu, því öryggis- reglur séu meðal þess sem ekki sé farið eftir með viðunandi hætti. Þá segir hún að gróf kynferðis- leg áreitni líðist. „Það segir sig sjálft að kínverskar verkakonur eiga erfitt með að sækja rétt sinn enda er lítið sem ekkert gert til að leiðbeina þeim,“ segir Hrafndís og nefnir sem dæmi að eitt sinn hafi kínversk kona verið send heim eftir að hún neitaði að þóknast yfir- manni sínum: „Þannig var málið leyst og þessi maður er enn yfir- maður á Kárahnjúkum,“ segir hún. João António da Silveira de Lima Pimentel, sendiherra Portú- gals á Íslandi með aðsetur í Nor- egi, er væntanlegur til landsins í vikunni til að skoða aðstæður verkamanna við Kárahnjúka. Stjórnvöld í Portúgal höfðu sam- band við sendiherrann eftir fjöl- miðlaumfjöllun ytra. Portúgalskur fyrrverandi starfsmaður við Kárahnjúka hefur líkt starfi sínu þar við þrælahald og Albano Ribeiro, formaður félags byggingarverkamanna, hefur tekið undir gagnrýnina. Helga Lára Guðmundsdóttir, ræðismaður Portúgals á Íslandi, segir að frumkvæði að heimsókn sendiherrans komi frá stjórnvöld- um í Portúgal. Hún getur ekki tjáð sig um hvað felist í rannsókn sendiherrans, né um hvað verði gert, reynist ásakanirnar um harð- ýðgi á vinnustaðnum sannar. „Við eigum ekki von á öðru en að þarna séu allir í góðum málum og maður er ekkert að gefa sér að þarna sé allt á hvolfi fyrr en maður sannreynir það,“ segir hún og ítrekar að málið sé viðkvæmt. Ómar R. Valdimarsson, fjöl- miðlafulltrúi Impregilo, segir „eiginlega merkilegt að íslenskir fjölmiðlar skuli nenna að lepja upp slúður í portúgölskum fjöl- miðlum“. Kynferðisleg áreitni liðin á Kárahnjúkum Sendiherra Portúgals er væntanlegur í vikunni til að skoða aðstæður við Kárahnjúka. Fyrrverandi starfsmaður segir mikla stéttskiptingu við lýði hjá Impregilo. Kynferðisleg áreitni yfirmanna sé liðin án þess að nokkuð sé að gert. Fórstu í kirkju um hvítasunn- una? Finnst þér að unglingar eigi að vinna í sumarfríinu? Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í gær endurvinnslufyrirtækið Hringrás af kröfu slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins. Krafan, sem hljóðaði upp á rúmar 25 milljónir króna, snerist um skaðabætur vegna skemmda í kjölfar mikils bruna á svæði Hringrásar árið 2004. Eldurinn kom upp í skemmu við Klettagarða 9 í Reykjavík hinn 22. nóvember og teygði sig fljótlega í nálægan dekkjahaug. Slökkviliðinu gekk illa að ráða niðurlögum eldsins og fékk aðstoð verktakafyrirtækisins E.T. við að slökkva hann. Tæki E.T. skemmdust í slökkviaðgerðunum, auk þess sem hreinsa þurfti til á lóð fyrirtækisins, og vildi það því skaðabætur frá tryggingafélagi Hringrásar. Tryggingafélagið neitaði og slökkvi- liðið greiddi E.T. fyrir skemmdirnar. Í kjölfarið höfðaði slökkviliðið mál á hendur Hringrás til að fá kostnaðinn endurgreiddan. Dómurinn féllst ekki á kröfur slökkviliðsins og taldi að lög um brunavarnir segðu að sveitarfélög bæru allan kostnað vegna slökkviaðgerða eins og fóru fram á svæðinu. Því var Hringrás sýknuð af öllum kröfum slökkviliðsins og slökkviliðið látið greiða 300.000 krónur í málskostnað. Verktakafyrirtækið Impregilo hafnar því að fyrirtækið mismuni starfs- mönnum með launagreiðslum, að því er fram kemur í yfirlýsingu vegna fréttaflutnings um aðbúnað verkamanna við Kárahnjúka. Eitt gengur yfir alla starfsmenn í launamál- um, þar sem laun byggjast á töxtum sem íslensk verkalýðsfélög hafa samið um við aðila vinnumarkaðarins, segir í yfirlýsing- unni. Það sé beinlínis rangt að segja að unnið sé á 14 tíma vöktum, en hafa verði í huga að þegar unnið sé í 50 kílómetra djúpum göngum taki tíma að komast á vinnustað, en starfs- mönnum sé greitt fyrir þann tíma. Í yfirlýsingunni segir að umhverfis- og starfsmannastefna félagsins gangi að nokkru leyti lengra en íslensk lög og reglugerðir. Aðstæður á Kárahnjúkum séu þó mjög erfiðar og mörgum reynist erfitt að aðlagast aðstæð- um. Fyrirtækið útvegi þó allan þann búnað sem nauðsynlegur sé, þar með talið öryggisbúnað. Ekki sé hægt að búa svo um hnútana að alls ekkert vatn renni í göngunum. Á þeim stöðum sem vatn sé allt að hnédjúpt fái starfsmenn vöðlur og ullarnærföt. Stundum er unnið á frídögum og sunnudög- um, en þá geta starfsmenn valið hvort þeir vinna eða ekki, og er greitt hærra kaup fyrir vinnu á slíkum dögum, eins og kveðið er á um í kjarasamningum, segir enn fremur í yfirlýsingu Impregilo. Impregilo segir eitt yfir alla ganga
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.