Fréttablaðið - 30.05.2007, Síða 14

Fréttablaðið - 30.05.2007, Síða 14
nær og fjær „ORÐRÉTT“ Eftirspurn eftir hinum víðfrægu Rolex-úrum hefur aukist mikið hér á landi undanfarin misseri, að sögn Róberts Michelsen úrsmíða- meistara. „Þau eru á rosalegri siglingu,“ segir Róbert, sem rekur úr- og skartgripaverslun Frank Michelsen við Laugaveg. Róbert vill ekki gefa upp hversu mörg Rolex-úr hann selur á ári en segir ekki um að villast að þau séu að verða sífellt eftirsóttari. „Íslendingar eiga peninga, það er ekkert leyndarmál, úrin eru líka ódýr hér á landi miðað við útlönd,” segir Róbert en hann býður upp á Rolex-úr á verðbilinu 350 þúsund til 1,7 milljónir króna. Hann er yfirleitt með um 50 úr á lager en einnig er hægt að sérpanta úr að utan. „Við erum með eftirsóttustu módelin hjá okkur en ef menn vilja geta þeir sérpantað aðrar gerðir. Það er töluvert um það. Þá borga menn helminginn við pönt- un og hinn helminginn við afhend- ingu.“ Þá segir Róbert marga túrista kaupa Rolex-úr hjá sér. „Þau þykja á góðu verði. Svo fá þeir líka fimmtán prósenta skatta- afslátt, sem er andvirði ferðar- innar til Íslands.“ Spurður hvort sérstakar manngerðir kaupi Rolex-úr frekar en aðrar segir Róbert svo ekki vera. „Ólíkleg- ustu menn kaupa Rolex-úr. Stund- um koma hér menn í skítugum málningargöllum í leit að vönduð- um armbandsúrum og auðvitað líka bankamenn í jakkafötum. En maður á aldrei að dæma fólk eftir því hvernig það er klætt.“ Ólíklegustu menn kaupa Rolex Hringja í Bubba? Ónauðsynleg uppgjöf Veggjakrot Hjálpar til í barnaþorpi í Rúmeníu VATNAGÖRÐUM 12, 104 REYKJAVÍK, SÍMI 588 5151, FAX 588 5152 www.glerslipun.is VIÐ ERUM FLUTT frá Skeifunni 5 í Vatnagarða 12 Opnuðum á nýjum stað 29. maí Söngkonan Margrét Eir Hjartar- dóttir stendur á tímamótum um þessar mundir en hún stefnir á að setjast að í Bandaríkjunum og reyna fyrir sér sem raddkennari. Margrét Eir hefur stundað nám í faginu í New York síðustu tvö ár og mun útskrifast sem viður- kenndur raddkennari í lok mánaðarins. „Á þessari stundu sækist ég eftir því að búa erlendis. Fjöl- skyldan og vinirnir eru ekki á Manhattan en þar er heldur ekki þetta stress sem er svo viðvarandi á Íslandi,” segir Margrét Eir, en hún hefur sótt nokkurra vikna kennslunámskeið með reglulegu millibili þessi tvö ár. „Það er verið að kenna ákveðna aðferð við að beita röddinni og ég hreifst mikið að henni þegar ég var kynnt fyrir henni. Mig langaði endilega að læra meira um raddþjálfunina og því skellti ég mér í þetta.” Margrét Eir kann vel við sig ytra og er að selja íbúðina sína hér heima á Fróni. Hún mun þó dvelj- ast á Íslandi í sumar og koma að ýmsum verkefnum. „Svo ætla ég að reyna að taka góðan tíma í að semja eigið efni með góðum félög- um,” útskýrir hún. Enn er óráðið hvenær Margrét Eir flytur endanlega búferlum. „Ég er að setja saman ferilskrána mína og sækja um vinnu hér og þar. Það er ýmislegt í gangi en ekkert fast í hendi ennþá,“ segir Margrét Eir en viðurkennir að draumurinn sé að sinna kennslu samhliða því að vinna að eigin frama í söngnum. Margrét Eir verður raddkennari

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.