Fréttablaðið - 30.05.2007, Blaðsíða 26
30. MAÍ 2007 MIÐVIKUDAGUR8 fréttablaðið bjartir dagar
Arna Kristín Einarsdóttir er verk-
efnastjóri á skrifstofu menningar-
og ferðamála hjá Hafnarfjarðar-
bæ en skrifstofan heldur utan um
skipulag Bjartra daga. Arna er
ánægð með dagskrá hátíðarinnar
og segir erfitt að nefna einhverja
hápunkta í dagskránni.
„Bjartir dagar samanstanda
af menningar- og listviðburðum
sem eru aðallega í höndum heima-
manna þótt einhverjir listamenn
komi annars staðar að,“ segir
Arna og bætir því við að tenging-
in sé þá sú að þeir komi til Hafnar-
fjarðar til að halda tónleika eða
sýningar. „Til dæmis verður Sum-
aróperan með tónleika sunnu-
daginn 3. júní undir yfirskrift-
inni Sumarbarokk. Tónleikarnir
verða í Hafnarborg og þar verða
kynntir efnilegustu ungsöngvarar
landsins.“
Arna segir mikið af myndlist-
arfólki frá Hafnarfirði sýna verk
sín auk þess sem kórar bæjarins
komi fram og leikskólabörn muni
eiga listaverk víða um bæinn á
Björtum dögum.
„Við erum með mjög marga og
spennandi viðburði í gangi og vilj-
um ná til sem flestra,“ segir Arna
sem segir stolt frá því að Þjóða-
hátíð Alþjóðahússins verði í Hafn-
arfirði í fyrsta sinn og væntir
góðrar þátttöku. „Í fyrra vorum
við með fjölmenningardaga þar
sem við vöktum athygli á því að
það er mjög stórt hlutfall íbúa í
Hafnarfirði innflytjendur, eða um
sex prósent. Við viljum vissulega
halda hátíð allra Hafnfirðinga og
þess vegna var ofsalega gaman að
við skyldum fá liðstyrk Alþjóða-
hússins til að vekja enn frek-
ari athygli á þessu,“ segir Arna
og bætir því við að Þjóðahátíðin
sé mikill viðburður. „Um kvöldið
verður síðan söngvakeppni hinna
mörgu tungumála. Þar leggjum
við áherslu á að það syngi ekki
allir á ensku heldur hinum ýmsu
tungumálum, ekkert endilega sínu
eigin og það eru vegleg verðlaun í
boði,“ segir Arna brosandi. „Síðan
verður skemmtiatriði á keppninni
en það eru alveg ótrúlega flottar
hafnfirskar magadansmeyjar sem
munu koma fram. Þær slógu ræki-
lega í gegn í fyrra svo það verður
gaman að sjá þær aftur.“
Arna segir Bjarta daga einnig
vera í samstarfi við umboðsskrif-
stofuna Prime og bjóða upp á tón-
leikaröð þar sem margir þekkt-
ir tónlistarmenn muni troða upp
í Bæjarbíói. „Það er ótrúlegur
sjarmi yfir því að fara á tónleika í
þessu húsi og alveg sérstakt.“
Í Víðistaðakirkju verða tvenn-
ir tónleikar, annars vegar Páll
Óskar og Monika en hins vegar
verður Camerarctica með tón-
leika í kirkjunni. „Þau flytja verk-
ið Kvartett fyrir endalok tím-
ans eftir Oliver Messiaen en það
er eitt magnaðasta kammerverk
sem skrifað hefur verið og verð-
ur eflaust rosalega flott að sjá það
og heyra í þessari umgjörð,“ segir
Arna.
Að lokum minnir Arna á að hinn
7. júní verði langur fimmtudagur
í Hafnarfirði en þá verður opið í
öllum verslunum, söfnum og gall-
eríum til klukkan tíu um kvöldið.
- sig
Fjöldi hápunkta á hátíðinni
Arna Kristín Einarsdóttir verkefnastjóri er ánægð með dagskrá Bjartra daga í Hafnarfirði og reiknar með góðri þátttöku bæjarbúa
sem annarra á hátíðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
FIMMTUDAGUR 31. MAÍ
Kl. 18-22 Hafnarfjörður rokkar.
Útitónleikar á Thorsplani.
Kl. 20 Amherst College Choir frá
Massachusetts í Hásölum.
FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ
(Hafnarfjarðarbær 99 ára)
Kl. 20 Íslenski saxófónkvartettinn
flytur franska saxófónkvartvetta í
Hafnarborg. Aðgangur ókeypis.
Kl. 21 Páll Óskar og Monika í Víði-
staðakirkju. Aðgangseyrir 2.000 kr.
LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ
Kl. 17 Syngjandi Öldutúnsskóli.
Tónleikar kórs Öldutúnsskóla og
Kvennakórs Öldutúns í Hafnarborg.
Aðgangseyrir 1.000 kr.
Kl. 20 Cantare í Hafnarfjarðarleik-
húsinu. Söngvakeppni hinna mörgu
tungumála í samstarfi við Alþjóða-
húsið.
SUNNUDAGUR 3. JÚNÍ
(Sjómannadagurinn)
Kl. 10 Lúðrasveit Hafnarfjarðar við
Hrafnistu.
Kl. 14 Hátíðardagskrá við Fiskmark-
aðinn þar sem Lúðrasveit Hafnar-
fjarðar spilar meðal annars.
Kl. 16 Hátíðartónleikar í Hamarssal.
Kór Flensborgarskóla heldur tón-
leika í tilefni af 125 ára afmæli skól-
ans.
Kl. 20 Sumarbarrokk í Hafnarborg.
Sumaróperan kynnir efnilegustu
ungsöngvara landsins. Aðgangseyr-
ir 2.000 kr. / 1.500 kr.
Kl. 21 Bubbi í Bæjarbíói. Aðgangs-
eyrir 2.000 kr.
MÁNUDAGUR 4. JÚNÍ
Kl. 20 Söngur í hjartanu ómar. Tón-
leikar Gaflarakórsins í Víðistaða-
kirkju.
ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚNÍ
Kl. 19.30 Gamla bókasafnið. Rokk-
kvöld. Norska hljómsveitin Quirita-
tio. Vicky Pollard og Foreign Monk-
eys hita upp.
Kl. 20 „Enn er oft í koti kátt!“ Lögin
hans Friðriks. Kór Öldutúnsskóla,
Kvennakór Öldutúns, karlakórinn
Þrestir og Kammerkór Hafnarfjarð-
ar í Hafnarborg. Aðgangseyrir 1.500
kr./1.000 kr.
Kl. 21 Pétur Ben, Toggi og Ólöf Arn-
alds í Bæjarbíói. Aðgangseyrir 1.500
kr.
MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ
Kl. 12 Fjaðrafok í Firðinum. Há-
degistónleikar í Hafnarborg. Söng-
hópurinn Sópranos ásamt Antoníu
Hevesí píanóleikara.
Kl. 20 „Enn er oft í koti kátt!“ Lögin
hans Friðriks (sjá 5. júní).
Kl. 21 Stebbi og Eyvi í Bæjarbíói.
Aðgangseyrir 2.000 kr.
Kl. 22-23 Kvartett fyrir endalok tím-
ans. Ljósið, friður og óendanleikinn
í Víðistaðakirkju. Camerarctica leikur
eitt stórbrotnasta kammerverk
allra tíma eftir Oliver Messiaen. Að-
gangseyrir 1.500 kr. / 1.000 kr. (Frítt
fyrir nemendur).
FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ
Kl. 14 Dagskrá eldri borgara í
Hraunseli. Kórsöngur, suðuramer-
ískir dansar, upplestur og fjölda-
söngur.
Kl. 19-23 Gamla bókasafnið. Kakó-
bollinn. Trúbadorkvöld, heitt kakó
og sænskir snúðar.
FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ
Kl. 21 Jón Ólafsson í Hafnarborg.
Aðgangseyrir 1.500 kr.
SUNNUDAGUR 10. JÚNÍ
Kl. 17 Tónleikar í Fríkirkjunni. Vin-
sæl fiðlulög frá Mið-Evrópu ásamt
spænskum dönsum. Martin Frewer
fiðla og Ingunn Helga Hauksdóttir
píanó. Aðgangur ókeypis.
Kl. 20 Kvöldmessa í Víðistaðakirkju.
Nú eru bjartir dagar
í Dalakofanum
Golfklúbburinn Keilir í
Hafnarfirði er 40 ára í ár og
golfbakterían hjá Magnúsi
Birgissyni er jafngömul.
„Ég byrjaði að slá kúlu sem átta
ára gutti um leið og völlurinn kom
á Hvaleyrarholtinu. Við erum því
búnir að vera jafnlengi í golfi ég
og Keilir,“ segir Magnús glaðlega
og upplýsir aðspurður að hann sé
með 2,2 í forgjöf. Hann starfar
núna sem golfkennari í klúbbnum
Oddi í Heiðmörk og hefur verið
þar í fjögur ár en er með fimm-
tán ára reynslu í faginu. „Áhuginn
á golfi er alltaf að aukast og golf-
kennslan verður æ stærri hluti af
verkefnum mínum,“ segir Magnús
sem er þroskaþjálfi líka en kveðst
eiginlega hættur að grípa í það
starf.
Magnús hefur líka rekið golf-
skóla á Spáni vor og haust frá 1997,
ásamt Herði Arnarsyni golfkenn-
ara hjá Keili, fyrst í samvinnu við
Úrval Útsýn og nú Heimsferðir.
Hann segir á annað þúsund manns
hafa farið í gegnum þann skóla og
marga hafa tekið þar sín fyrstu
skref í golfinu.
„Við erum í suðurhluta Andalúsíu.
Það svæði er mikið menningar-
svæði bæði hvað snertir mat og
drykk, hestasýningar og dansinn
flamenco. Þessi hluti Andalúsíu
er við Atlantshafið og þar er frísk-
legra en Miðjarðarhafsmegin.“
Hann segir ferðirnar oftast taka
tíu til ellefu daga og oft séu byrj-
endur með. „Ferðirnar koma fólki
vel af stað. Það myndast oft góðir
hópar sem halda tengslum og menn
uppörva hver annan.“ Hann segir
fólk vera á öllum aldri þegar það
byrjar enda sé það aldrei of seint.
„Alltaf er hægt að njóta þess að
fara í golf og taka framförum svo
lengi sem menn geta sveiflað kylf-
um og eru sæmilega gangknáir.“
Skyldi Magnús eitthvað mega
vera að því að keppa sjálfur?
„Nei, ég keppi mjög lítið en reyni
að fylgjast svolítið með unga fólk-
inu og hef gaman af,“ svarar hann
og getur þess að hann eigi tvo
stráka í golfi. Hann segir ungu
fólki fjölga ört í greininni og ár-
angur þess sé líka alltaf að batna.
„Efnilegt íþróttafólk sem hefði
bara séð fótbolta eða handbolta
fyrir nokkrum árum er farið að
átta sig á því að golf er skemmti-
leg keppnisíþrótt fyrir alla aldurs-
hópa,“ segir hann. „Birgir Leifur
er að gera góða hluti í dag og það
hvetur fólk til að stefna á atvinnu-
mennsku og frama í golfi.“
gun@frettabladid.is
Merkisafmæli
Magnúsar og Keilis
Magnús á margt sporið á Hvaleyrarvelli. Þar byrjaði hann að slá kúlu þegar hann var
átta ára. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Tónleikar á Björtum dögum