Fréttablaðið - 30.05.2007, Qupperneq 54

Fréttablaðið - 30.05.2007, Qupperneq 54
Einar Bárðarson, betur þekktur sem Umboðsmaður Íslands, stóð fyrir söngprufum í allan gærdag en hann hyggst koma á fót nýjum sönghópi skipuðum karlmönnum á aldrinum 18-35 ára. „Þetta hefur gengið gríðar- lega vel og miðað við mætinguna verður vandamál fyrir okkur að sía út þá bestu,“ segir Einar en þegar Fréttablaðið náði tali af um- boðsmanninum var hann á leið- inni í mat á Ask. Prufurnar höfðu þá staðið yfir allan morguninn í húsakynnum FÍH og var Einar ákaflega sáttur við það sem hann hafði heyrt. Alls mættu á fjórða tug söngvara. „Hugmyndin var að finna nýja vinkla og mér sýn- ist það vera ganga upp,“ útskýrir Einar sem var hálf gáttaður á þeim hæfileikum sem virðast leynast víða. „Mér finnst það alveg ótrú- legt hvað það er til mikið af hæfa- leikaríkum söngvurum hér á landi,“ bætir hann við. Einar sagði að fáir af þeim sem hefðu mætt væru þegar búnir að geta sér góðs orðs á opinber- um vettvangi. Enda væri hann að leita að földum fársjóði. „Við sem höfum verið að grúska í þess- um bransa og fylgst með starfi söngskólanna könnuðumst þó við nokkra,“ segir Einar en hann nýtur fulltingis Kristjönu Stefáns- dóttur söngkennara. Eins og kom fram í Fréttablaðinu fyrr í þess- um mánuði er reiknað með að hin fullmótaða sveit syngi inn á plötu sem koma á út í haust. Fyrirmynd- in er að nokkru leyti sótt í Il Divo sem starfsbróðir Einars, Simon Cowell, stofnsetti fyrir ekki margt löngu og hefur slegið í gegn. Vel mætt hjá Einari Bárðar Lindsay Lohan hefur lagst inn á meðferðarheimilið Prom- ises, samkvæmt heimildum bandaríska tímaritsins In Touch. Tímaritið segir leikkonuna hafa lagst inn á mánudag, í kjölfar við- burðaríkrar helgar. Um- rætt meðferðarheimili er það sama og Britney Spears dvaldi á fyrr á þessu ári. Lohan klessti bíl sinn aðfaranótt laugardags og komst í kast við lögin eftir að upp komst að hún hafði ekið undir áhrifum áfengis og stungið af frá slys- stað. Við leit fannst þar að auki kókaín í bifreið hennar. Lohan lét það þó ekki slá sig út af lag- inu og hélt partíinu gangandi yfir helg- ina. Aðfaranótt mánu- dags náðu ljósmyndar- ar svo myndum af henni í bíl vinkonu hennar, þar sem leikkonan virt- ist algerlega út úr heimin- um. Samkvæmt vinkonu Lohan ákvað leikkonan að leita sér hjálpar upp á eigin spýtur. „Loksins hefur hún áttað sig á því að þetta er hið rétta,“ segir náin vinkona hennar. Þetta verður önnur dvöl Lohan á meðferðarheimili í ár, en í febrúar lagðist hún inn á heimilið Wonderland, þar sem hún dvaldi í þrjátíu daga. Í kjölfarið hefur leikkonan sótt AA- fundi, en vinir henn- ar hafa greint frá því að hún sé langt í frá hætt að drekka. Það var í byrjun þessa mánaðar sem breski netmiðillinn News of the World birti myndband þar sem Lohan og vinkona hennar sáust neyta kóka- íns á salerni skemmti- staðarins Teddy’s í Hollywood. Lindsay Lohan aftur farin í meðferð Simon Cowell, dómarinn geð- þekki úr American Idol þáttun- um í Bandaríkjunum, hefur ráð- lagt söngkonunni Britney Spears að fara heim í faðm fjölskyldunn- ar og draga sig út úr sviðsljós- inu næstu misserin. Cowell var spurður um ráð handa Britney í spjallþætti ytra og hann dró hvergi undan frekar en fyrri dag- inn. „Það er augljóst að Britney ræður ekki við álagið sem fylgir því að vera stærsta poppstjarna heims. Ég myndi ráðleggja henni að snúa sér að fjölskyldu sinni, læsa hurðinni og hætta að fara út á lífið með sínum vitlausu vinum. Hún þarf að kom- ast í heimalagað- an mat og kom- ast í takt við raun- veruleikann á ný. Eina leiðin til þess er að draga sig í hlé um tíma,“ sagði Cowell. Ekki er langt síðan Britney sneri aftur úr áfengismeðferð og hefur söngkonan verið að troða upp á ýmsum uppákomum að undan- förnu. Gagnrýnendur og fastir tónleikagestir hennar virðast þó á einu máli um að hún sé nokkuð frá sínu besta og mikið vanti upp á spilagleðina. Cowell leggur Britney lífsreglur Söngvarinn Steven Tyler íhug- ar nú alvarlega að segja skilið við hljómsveit sína Aerosmith vegna ágreinings við aðra með- limi sveitarinnar. New York Post segir frá því að Tyler sé ósáttur við hvernig félagar hans í hljóm- sveitinni koma fram við hann og honum finnist eins og þeir kunni ekki að meta það sem hann hefur fram að færa. Blaðið heldur því fram að Tyler muni tilkynna brotthvarf sitt úr sveitinni síðar í vikunni. Hinn 59 ára gamli Tyler hefur verið helsta spíra Aerosmith frá stofnun sveitarinnar árið 1970. Tyler að hætta í Aerosmith? À la carte postulín Nú fæst nýja Alizée-stellið frá Pillivuyt líka á Íslandi R V 62 35 Rekstrarvörur 1982–200725ára Halldór Sigdórsson Þjónn, aðstoðarverslunarstjóri hjá RV Óhefðbundin hönnun Skemmtilegt í framreiðslu Nýi pillenium-leirinn gefur postulíninu aukið högg- og hitaþol Opnar nýjar víddir í veitingaþjónustu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.