Fréttablaðið - 30.05.2007, Page 1
Kaupir Keops | Ole Vagner,
stofnandi danska fasteignafélags-
ins Keops, samþykkti í vikunni til-
boð Pálma Haraldssonar í nær allt
hlutafé hans í félaginu upp á 24
danskar krónur á hlut.
Skoða kaup | Stjórnendur Alfes-
ca skoða nú stór fyrirtækjakaup á
þessu ári. Fyrirtækið er í Evrópu
og með álíka mikla veltu og Alfes-
ca á síðasta ári, 600 milljónir evra,
jafnvirði 50 milljarða króna.
Ábyrgar fjárfestingar | Samein-
aði lífeyrissjóðurinn hefur ákveð-
ið að taka upp reglur Sameinuðu
þjóðanna sem fela í sér að tekið er
tillit til umhverfislegra og félags-
legra þátta við fjárfestingar.
Ræða sameiningu | Viðræður
eru hafnar milli stjórnarformanna
Byrs og Sparisjóðs Kópavogs um
sameiningu sparisjóðanna. Byr er
annar stærsti sparisjóður landsins
en SPK sá fimmti stærsti.
Barátta framundan | Bandaríska
kauphöllin Nasdaq hefur lagt
fram 3,7 milljarða yfirtökutilboð
í OMX-kauphallasamstæðuna. Þá
er kauphöllin í Dubai einnig sögð
ætla að bjóða í OMX.
Betra ár | HB Grandi var rekinn
með 2,4 milljarða króna hagnaði á
fyrsta ársfjórðungi sem er mikill
viðsnúningur frá fyrra ári þegar
tap félagsins nam 1.337 milljón-
um króna.
Hagar hagnast | Fyrirtækið
Hagar, sem meðal annars rekur
Bónus, Hagkaup og fleiri verslan-
ir, skilaði hagnaði upp á 417 millj-
ónir króna á síðasta rekstrarári,
sem stóð frá mars í fyrra til loka
febrúar í ár.
Selja Atlanta | Eimskipafélag Ís-
lands ætlar að selja Air Atlanta
hf. og aðrar flugrekstrartengdar
eignir félagsins. ABN Amro Bank
og Hannesi Hilmarssyni, forstjóra
Air Atlanta hf., hefur verið falið
að sjá um söluna.
Búllan og Sægreifinn
Hrósað af
Washington Post
14
Útrýming fátæktar
Ómöguleg án
einkageirans
6
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
F R É T T I R V I K U N N A R
Niðurhal á netinu
Á sér
margar hliðar
8-9
Sími 511 1234 • www.gudjono.is
Fyrstir með
Svaninn
www.trackwell .com
Tíma- og verkskráning
fyrir starfsmenn og tæki
FORÐASTÝRING
Century Aluminum Company, móðurfélag Norður-
áls, hefur farið fram á skráningu á First North Ice-
land-hlutabréfalistann. Félagið er skráð á Nasdaq-
markaðinn bandaríska og verður fyrsta skráða fyr-
irtækið í Bandaríkjunum til að fá skráningu hér.
Í undirbúningi er að auka hlutafé Century
Aluminum um fjórðung og hefst útboðsferli bréf-
anna formlega í dag. Í tilkynningu kemur fram að
söluandvirði hlutanna geti numið allt að 28 millj-
örðum króna miðað við núverandi markaðsverð
og verður stofnana- og fagfjárfestum hér boðið að
taka þátt. Útboðið fer fram á sama tíma hér og í
Bandaríkjunum og stendur út næstu viku. Í fram-
haldinu verður félagið skráð á markaðinn hér.
Umsjón með útboðinu hér er í höndum Kaup-
þings og Landsbankans, en fyrir tveimur árum
önnuðust bankarnir 365 milljóna dala fjármögn-
un vegna stækkunar og endurfjármögnunar álvers
Norðuráls á Grundartanga. Afrakstur útboðsins nú
á að mestu að nota til fjármögnunar á nýju álveri í
Helguvík, en reiknað er með að framkvæmdir geti
hafist þar í byrjun næsta árs.
Ragnar Guðmundsson, framkvæmdastjóri við-
skiptaþróunar og fjármálasviðs Norðuráls, segir að
hentugast hafi verið að byrja á því að skrá Century
Aluminum á First North-markaðinn en í framhald-
inu sé stefnt á skráningu á aðallista Kauphallarinn-
ar. Þá segir hann erfitt að spá fyrir um þátttökuna
í útboðinu hér, enda lítið um almennar fjárfesting-
ar í orkuiðnaði til þessa. Hann segir skráninguna
hér hins vegar í samræmi við þá stefnu Century
Aluminum að treysta böndin við íslenskt samfélag.
Umsjónaraðilar útboðs Century Aluminum á al-
þjóðavísu eru Credit Suisse Securities (í Banda-
ríkjunum) og Morgan Stanley, en Kaupþing banki
og Landsbanki Íslands sjá um framkvæmdina hér á
landi. Meðal seljenda bréfanna í Bandaríkjunum er
Kaupþing Securities Inc. í New York. - óká
Norðurál í Kauphöllina
Eggert Þór Aðalsteinsson
skrifar
Hf. Eimskipafélagið hefur samið um kaup á fjórðungi
hlutafjár í kanadíska félaginu Versacold Income Fund
og leggur fram yfirtökutilboð í allt fyrirtækið upp á 67
milljarða króna, fyrir hönd dótturfélags. Gangi kaup-
in eftir verður Eimskip langstærsta kæli- og frysti-
geymslufyrirtæki heims með starfsemi í 35 löndum í
fimm heimsálfum.
Áætluð velta Eimskips mun fara úr 100 milljörðum
króna í 150 milljarða á næsta ári og rekstrarhagnaður
fyrir afskriftir (EBITDA) fer hátt í sautján milljarða
króna á næsta ári.
Tilboð Eimskips gildir í 35 daga en alls þurfa eig-
endur tvo þriðju hluta hlutafjár að samþykkja það.
Magnús Þorsteinsson, stjórnarformaður félagsins,
leggur á það áherslu að yfirtakan sé gerð í góðri sátt
við hluthafa og stjórnendur félagsins, ólíkt því sem
gerðist við kaupin á Atlas Cold Storage, öðru kanad-
ísku frysti- og kæligeymslufyrirtæki í fyrra. „Þetta
er kölluð vinveitt yfirtaka, það er að segja að stjórn-
in mælir með því við hluthafana að þessu tilboði sé
tekið og bankinn [UBS] sem vinnur fyrir þá mælir
með því líka.“
Versacold er 3. stærsta fyrirtæki Norður-Ameríku
á sínu sviði og rekur um 72 frystigeymslur í Kanada,
Bandaríkjunum, Ástralíu, Nýja-Sjálandi og Argentínu.
Versacold hefur vaxið hratt eins og Eimskip og tók
yfir tvö félög á árunum 2003 og 2005. Velta félagsins
var þrefalt meiri í fyrra en árið áður. Viðskiptavinir
eru fjórða þúsund og starfsmenn 4.500 talsins. „Þetta
er mjög heilbrigður rekstur og gott fyrirtæki,“ segir
forstjórinn Baldur Guðnason.
Markaðsstaða Eimskips verður einstök ef yfirtakan
heppnast en ekkert fyrirtæki keppir við það á heims-
vísu. Eimskip verður með þétt net 180 frysti- og kæli-
geymsla í fimm heimsálfum auk hefðbundinnar flutn-
inga- og skipastarfsemi. „Það er aukin eftirspurn
eftir flutningum á frysti- og kælivörum og menn eru
að færa þetta frá einum markaði til annars,“ bend-
ir Baldur á.
Baldur sér mikil tækifæri með Atlas og Versacold.
Versacold er sterkt á svæðum í Norður-Ameríku þar
sem Atlas er veikt og öfugt. Viðskiptavinahópurinn
í Norður-Ameríku breikkar og ný tækifæri í öðrum
heimsálfum skapast, til dæmis í Suður-Ameríku og
Eyjaálfu. „Samanlagt verður þetta eitt af tveimur
stærstu félögum í Norður-Ameríku hvað varðar mark-
aðshlutdeild.“
Kaupin hafa verið fjármögnuð að fullu með fjár-
magni frá Eimskip og lánsfé frá Royal Bank of Canada
og KingSett. Baldur býst við að áttaíu prósent kaup-
verðs verði fengið að láni en reiknar með að félag-
ið greiði skuldir hratt niður með eignasölu, til dæmis
með því að leysa að hluta upp eignir Versacold og af
Eimskip stærst sinnar
tegundar í heiminum
Hf. Eimskipafélagið stefnir að yfirtöku á Versacold, þriðja
stærsta frysti- og kæligeymslufyrirtæki N-Ameríku.
Gnúpur fjárfestingafélag er orð-
inn sautjándi stærsti hluthafinn í
Straumi-Burðarási Fjárfestinga-
banka með 0,77 prósenta hlut.
Í ljósi sögunnar þá eru þetta at-
hyglisverð kaup, enda fara þeir
Þórður Már Jóhannesson, Magnús
Kristinsson og Kristinn Björns-
son fyrir Gnúpi. Þeir og Björ-
gólfur Thor Björgólfsson, stjórn-
arformaður Straums-Burðaráss,
elduðu grátt silfur saman í átök-
unum um Straum í fyrrasumar
eins og margir muna. - eþa
Gnúpur kaupir
í Straumi
Samkvæmt niðurstöðum ný-
legrar málstofu Seðlabanka Ís-
lands er viðskiptahalli síðasta
árs minni þegar verðbreytingar
verðbréfa eru taldar með þátta-
tekjum.
Vegna þessa segir greiningar-
deild Glitnis að vera kunni að
gengi krónunnar þurfi ekki að
lækka jafnmikið og ráð hafi verið
fyrir gert til að koma hagkerf-
inu í ytra jafnvægi. „Munurinn
skýrir þó ekki nema hér um bil
fimmtung viðskiptahallans 2006
og er ljóst að ytra ójafnvægi hag-
kerfisins á síðasta ári var eftir
sem áður mikið,“ segir í umfjöll-
un Glitnis. - óká
Halli ofmetinn
um fimmtung