Fréttablaðið - 30.05.2007, Page 14

Fréttablaðið - 30.05.2007, Page 14
 30. MAÍ 2007 MIÐVIKUDAGUR6 fréttablaðið iðnaður „Við erum að kynna nýja línu til sögunnar, hátísku ullarvörur, sem verða stílaðar inn á ferða- menn í sumar. Svo er verið að skipuleggja framhaldið í haust og vetur,“ segir Bryndís Rut Logadóttir, sölu- og markaðs- stjóri Glófa, sem stóð nýlega fyrir tískusýningu í Kaffi Flóru í Grasagarðinum í Laugardal. Að sögn Bryndísar er mikið lagt upp úr því að hafa ullarfötin ein- föld útlits, vönduð, klæðileg og í sumum tilfellum þjóðleg. Þó fer ekki mikið fyrir munstrum sem hafa skreytt íslenskar lopapeysur um áratugaskeið, þar sem Bryndís segist hafa komist að því að þau séu ekki mikið í tísku um þessar mundir. „Um alíslenska framleiðslu er að ræða og verður stílað inn á það í markaðssetningunni,“ heldur Bryndís áfram. „Íslenskir hönnuð- ir eiga hugmyndirnar að fötunum, íslensk ull er notuð í meginhluta framleiðslunnar og varan búin til í tveimur verksmiðjum hér á landi, annarri á Hvolsvelli og hinni á Ak- ureyri. Við njótum nokkurrar sér- stöðu hérlendis fyrir þær sakir og munum þess vegna vekja athygli á henni.“ Bryndís segir framleiðslu á ull- arfatnaði hafa verið deyjandi iðn á Íslandi þegar Glófi kom til sög- unnar. Með tilkomu fyrirtækisins hafi hins vegar tekist að blása nýju lífi í iðnaðinn. Fyrirtækið sé enn að stækka og sé nú orðið stærst í ullarbransanum hérlendis. Nýja línan sé vitnisburður um sóknina og ríkir mikil eftirvænting með þróun mála í haust og vetur. roald@frettabladid.is Nýju lífi blásið í íslenska ullariðnaðinn Bryndís Rut Logadóttir, sölu- og markaðsstjóri Glófa, stóð nýlega fyrir tískusýn- ingu í Kaffi Flóru í Grasagarðinum í Laugardal. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL RÚNARSSON Áhersla er lögð á að hafa fötin einföld útlits og því fer ekki mikið fyrir munstrum. Fötin frá Glófa eru alíslensk framleiðsla. Fötin eru hönnuð og fram- leidd hérlendis og íslensk ull mestmegnis notuð í framleiðsluna. Nýja línan er stíluð inn á ferðamenn í sumar. Glófi nýtur að sögn Bryndísar nokkurrar sérstöðu þar sem um alíslenska framleiðslu er að ræða. Bryndís kveður nýju línuna saman- standa af hátísku ullarfatnaði. Fötin voru hönnuð með þægindi í huga og fram- leidd í samræmi við það.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.