Fréttablaðið - 30.05.2007, Side 18
30. MAÍ 2007 MIÐVIKUDAGUR10 fréttablaðið iðnaður
Iðnskólanum í Reykjavík var slitið
formlega í 103. skipti fimmtu-
daginn 24. maí. Alls 243 nemend-
ur brautskráðust af tuttugu náms-
brautum á átta námssviðum skól-
ans.
Í kveðjuræðu sinni ræddi
Baldur Gíslason skólameistari um
þær breytingar sem orðið hafa í
háskólaumhverfinu undanfarin ár.
Nefndi hann þar fjölgun háskóla og
nemenda í háskólanámi. Hins vegar
harmaði hann hversu fá ný tæki-
færi til framhaldsnáms í starfs-
menntagreinum hefðu orðið til hér
á landi enda hefði mesta aukningin
orðið í hefðbundnu háskólanámi.
Margt nýtt hefur verið að ger-
ast hjá Iðnskólanum í Reykjavík.
Skrifað var undir samning við
Vitus Bering University College í
Horsens í Danmörku en þar mun
iðnmeistaranám í byggingagrein-
um við Meistararaskóla IR metið
sem fyrsta árið í námi þeirra til
byggingaiðnfræðings og bygginga-
fræðings. Er talið að þessi samn-
ingur opni margar leiðir til frekara
samstarfs við skóla í Danmörku.
Þá er einnig unnið að samstarfi
milli Glasgow School of Art, Mynd-
listaskólans í Reykjavík og Iðn-
skólans í Reykjavík um nám í
keramikhönnun.
Um næstu áramót eru fyrirhug-
aðar breytingar á rekstrarformi
skólans sem verður þá einkarek-
inn. Önnur breyting sem er í far-
vatninu er að sameina rekstur
tveggja skóla, Iðnskólans í Reykja-
vík og Fjöltækniskóla Íslands, í
einn öflugan starfsmenntaskóla
undir nafninu Tækniskólinn. Lagt
er upp með að innan Tækniskól-
ans verði margir skólar sem hver
og einn verði sjálfstæður. Gert er
ráð fyrir sterkri tengingu við at-
vinnulífið og háskóla með stofnun
sérstaks fagráðs við hvern þess-
ara skóla. Að sögn Baldurs stefni
Tækniskólinn að því að koma upp
viðurkenndum fagháskóla. Hvern-
ig það verði útfært sé of snemmt
að segja.
Nýir tímar hjá Iðn-
skólanum í Reykjavík
Laufey Björg Sigurðardóttir, nemandi á listnámsbraut hönnunarsviðs, hlaut sjö
verðlaun fyrir námsárangur á nýafstaðinni útskrift Iðnskólans í Reykjavík. Eins og sjá
má átti hún í hálfgerðum vandræðum með verðlaunafjöldann.
SPELT Í MYLLUKÖKUR
Notkun spelts í stað hveitis hefur
aukist mjög undanfarið. Skipt-
ir þar mestu sú heilsuvakning
sem orðið hefur í samfélaginu
sem leggur meiri áherslu á líf-
rænt ræktaða og næringarríka
matvöru.
Myllan hefur nú brugðist við
þessari eftirspurn og sett á mark-
að kökur, bakaðar úr spelti. Fást
þær í þremur bragðtegundum,
eplum, múslíi og gulrótum. Myll-
an hóf einnig fyrr á árinu fram-
leiðslu á samlokubrauði úr spelti.
Viðtökurnar við því voru svo
góðar að ákveðið var að halda
þróun speltvörulínunnar áfram.
Innan tíðar er síðan von á pylsu-
brauðum úr spelti.
Spelt er forn og harðgerð korn-
tegund en talið er að uppruna
þess megi rekja til Íran fyrir átta
þúsund árum. Spelt er nánast
eingöngu lífrænt ræktað enda
tekur speltið áburði illa.