Fréttablaðið - 09.06.2007, Síða 4

Fréttablaðið - 09.06.2007, Síða 4
 Þriggja daga leiðtogafundi G8-ríkjanna í Heiligendamm í Þýskalandi lauk í gær. Leiðtogarnir átta lofuðu að veita sextíu milljörðum dala í bar- áttu gegn alnæmi og öðrum sjúk- dómum í Afríku, auk þess sem þeir ákváðu að þrýsta enn frekar á Írana um að hætta við kjarnorku- áform sín. Ekkert samkomulag tókst hins vegar um framtíð Kosovo-héraðs. „Auðvitað tókst okkur ekki á tveimur fundum að leysa öll vanda- mál heimsins,“ sagði Angela Merkel Þýskalandskanslari á blaðamanna- fundi í gær. „En okkur hefur miðað í áttina,“ bætti hún við. George W. Bush Bandaríkjafor- seti fékk heiftarlega magakveisu og þurfti að halda sig inni á hótelher- bergi í gærmorgun meðan vinnu- fundur var haldinn, en honum tókst þó að eiga fund í einrúmi með Nicolas Sarkozy, nýkjörnum forseta Frakklands. Talsmenn mótmælenda hrósuðu sigri eftir að hafa haldið vegum til og frá bænum Heiligendamm meira og minna lokuðum þá þrjá daga sem leiðtogafundurinn hefur staðið yfir. Þýska lögreglan sagðist á hinn bóginn einnig hafa náð sínum markmiðum, sem voru þau að halda ofbeldi í skefjum. Lögreglan tók þann pól í hæðina að leyfa mót- mælendum að vera óáreittir, jafn- vel þótt þeir væru á svæðum þar sem mótmæli áttu að vera bönnuð, svo framarlega sem þeir kæmu friðsamlega fram. Um leið og vart varð við ofbeldi greip lögreglan hins vegar inn í og tók harkalega á fólki. Meðal helstu tíðinda af fundin- um í Heiligendamm var tillaga Vladimírs Pútín Rússlandsforseta að lausn á deilunni um fyrirhugað eldflaugavarnakerfi Bandaríkj- anna. Pútín vill alls ekki að Banda- ríkjamenn setji eldflaugavarna- kerfið upp í Evrópuríkjum, en á fimmtudaginn sagðist hann geta fallist á áformin ef kerfið yrði staðsett í Aserbaídsjan. Í gær bætti hann svo um betur og sagðist ekkert hafa á móti því að það yrði sett upp í löndunum suðvestantil í Asíu. „Það væri hægt að staðsetja þetta í suðrinu, í ríkjum vinveitt- um Bandaríkjunum eins og til dæmis Tyrklandi, eða jafnvel í Írak eða á sjávarpöllum,“ sagði Pútín á blaðamannafundi í Heiligendamm í gær. Gátu ekki leyst öll vandamál heimsins Mótmælendur voru ánægðir með afrek sín í Heiligendamm. Bush sat inni á hóteli með magakveisu meðan hinir leiðtogarnir héldu fund. Pútín segir eld- flaugavarnakerfi Bandaríkjamanna mega vera í Tyrklandi eða Írak. Ferðaskrifstofa Leyfishafi Ferðamálastofu Engin sátt varð til milli séra Hjartar Magna Jóhannsson- ar og átta þjóðkirkjupresta sem kært hafa Hjört til Siðanefndar Prestafélags Íslands á fundi nefndarinnar með aðilum málsins á fimmtudag. Hjörtur segir að hann hafi tjáð siðanefndinni að hann hafi ekkert rangt gert í málinu, og þjóð- kirkjuprestarnir hafi lýst því yfir að þeir standi við kæru sína. Málið verði því væntanlega áfram í meðförum nefndarinnar. Prestarnir kærðu Hjört til siðanefndar í byrjun mars vegna ummæla hans í fréttaskýringar- þættinum Kompási. Siðanefnd mun fjalla um málið Fjárfestingarfélagið Gnúpur, sem Kristinn Björnsson, Magnús Kristinsson og Þórður Már Jóhannesson fara fyrir, greindi frá því í gær að það ætti orðið fimmtungshlut í FL Group. Þar með er félagið komið upp fyrir Oddaflug B.V., eignarhaldsfélag Hannesar Smárasonar forstjóra FL, sem stærsti hluthafinn í FL. „Við teljum félagið vera álit- legan fjárfestingarkost eins og staðan er í dag. Að mínu mati búa meiri tækifæri í lykileignum félagsins en markaðurinn sér í dag,“ sagði Þórður Már Jóhannes- son, forstjóri Gnúps, en félagið hefur bætt við sig einu prósenti í júní. Þrátt fyrir að vera stærsti hluthafinn hefur Gnúpur ekki óskað eftir því að fá mann í stjórn FL. Hannes á um 19,8 prósenta hlut og Baugur Group um 18,2 prósent. Jón Ásgeir Jóhannesson tók í gær við stjórnarformennsku í FL Group af Skarphéðni Berg Steinarssyni í kjölfar skipulags- breytinga hjá Baugi. „Það er flott ef einhver hefur áhuga á þessu félagi. Við erum ánægðir þegar fjárfestar hafa trú á því sem við erum að gera,“ voru viðbrögð Hannesar Smára- sonar. FL Group, sem metið er á 224 milljarða króna, er stærsti hlut- hafinn í Glitni og heldur auk þess utan um stóra hluti í AMR Corpor- ation og Commerzbank. Gnúpverjar stærri en Hannes Bókmenntahátíðin í Reykjavík verður haldin í áttunda skipti dagana 9.-15. september en í gær var kynntur listi yfir þá tuttugu erlendu höfunda sem staðfest hafa þátttöku sína. Sjaldan hafa jafnmargar stórskyttur ritvallarins skipað þennan lista en á honum er að finna ekki minni spámenn en Nóbels- verðlaunahafann J.M. Coetzee, írska metsöluhöfundinn Roddy Doyle og mannréttindafrömuðinn og fyrrverandi þingmanninn Ayaan Hirsi Ali, sem hefur harðlega gagn- rýnt viðhorf til kvenna í íslömskum ríkjum. Roddy Doyle meðal gesta Þrír af hverjum fjórum landsmönnum telja það mikilvægt að olíufélögin birti upplýsingar um verð á eldsneyti á heimasíðu sinni. Þetta eru niðurstöður könnunar sem Félag íslenskra bifreiðaeigenda fékk Capacent Gallup til að vinna. Alls töldu tæplega 77 prósent aðspurðra það mikilvægt en tæp tólf prósent lítilvægt að þessar upplýsingar væru birtar. Könnunin var gerð í kjölfar þess að N1 ákvað að birta ekki upplýsingar um verð á vef sínum, en FÍB gagnrýndi þá ákvörðun harðlega. Haft var eftir forsvars- mönnum N1 í Fréttablaðinu að þetta væru ekki upplýsingar sem neytendur vildu sjá. Mikill meirihluti vill sjá verðið Tillögur ESB um útstreymi frá flugi eru óhóflega dýrar og brengla samkeppni. Þetta segir Evrópusamband flugfélaga, sem telur að kostnaður flugfélaga vegna tillagna um að fella flug undir útstreymistilskipun ESB sé stórlega vanmetinn. Tillögurnar muni hafa áhrif á getu félaganna til fjárfestinga. Sambandið telur einnig að um leið dragi stórlega úr þeim ávinningi sem fjárfesting- arnar geti haft fyrir umhverfið. Á vef Samtaka atvinnulífsins kemur fram að tillögurnar geti haft veruleg áhrif á íslensk flugfélög og samkeppnisstöðu þeirra auk þess sem fargjöld og gjöld fyrir vöruflutninga muni hækka. Tillögur ESB óhóflega dýrar Fimm voru fluttir til skoðun- ar á slysadeild Landspítalans eftir harða aftanákeyrslu í Skipholti í gærmorgun. Í fyrstu var talið að áreksturinn væri alvarlegs eðlis og var slökkvilið kvatt á vettvang þar sem reykur virtist stíga upp úr öðrum bílnum. Það reyndist gufa. Báðir bílar skemmdust töluvert við áreksturinn. Bílarnir voru dregnir á brott með kranabíl. Að sögn lögreglu slapp fólkið við meiriháttar meiðsl og fengu allir að fara heim að lokinni læknisskoðun á slysadeild. Fimm fluttir á slysadeild
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.