Fréttablaðið - 09.06.2007, Side 16
[Hlutabréf] Peningaskápurinn...
Jón Ásgeir Jóhannesson hefur látið
af störfum sem forstjóri Baugs en
gerist starfandi stjórnarformaður
félagsins með það fyrir augum að
gera sókn Baugs á alþjóðavettvangi
enn skilvirkari. Jafnframt verður
hann stjórnarformaður FL Group
þar sem Baugur er meðal stærstu
hluthafa.
Við starfi Jóns Ásgeirs tekur
Gunnar Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri fjárfestinga Baugs í Bret-
landi. Jafnframt verða talsverðar
breytingar á yfirstjórn Baugs.
„Þetta er gert til að styrkja
stjórnun félagsins. Við erum að
breikka hópinn sem kemur til með
að leiða félagið áfram. Í framhald-
inu ætlar félagið að einbeita sér
enn meira á það að vera fjárfestir
í verslunarrekstri,“ segir Gunnar.
Hann telur að engin stökkbreyting
verði á daglegri starfsemi félagsins
við þessar breytingar. „Þetta er rök-
rétt skref að búa til umhverfi þannig
að Jón Ásgeir geti einbeitt sér að því
að fullu að vinna að framtíðarstefnu
Baugs og daglegur rekstur verði
meira í mínum höndum.“
Stefán H. Hilmarsson verður að-
stoðarforstjóri og veitir áfram fjár-
málasviði félagsins forstöðu.
Skarphéðinn Berg Steinarsson,
sem fór fyrir eigna- og fjárfestinga-
sviði Baugs, tekur við starfi for-
stjóra nýs félags, Stoða Group, þar
sem Baugur er meirihluta eigandi.
Innan veggja Stoða munu verða
eignarhlutir Baugs í Fasteignafé-
laginu Stoðum og fasteignafélög-
unum Keops og Nordicom. Eigið
fé Stoða verður aukið um fjöru-
tíu milljarða króna og er stefnt að
skráningu á OMX á næstu tólf mán-
uðum. Skarphéðinn lætur af stjórn-
arformennsku í FL en situr áfram í
stjórn þess og Glitnis.
Þá setjast fjórir nýir fram-
kvæmdastjórar, þau Jeff Blue,
Eiríkur Jóhannsson, Þórdís
Sigurðardóttir og Sara Lind
Þorsteinsdóttir, í framkvæmda-
stjórnina. Gunnar segir að auk þess
að styðja þau fyrirtæki sem félag-
ið hefur fjárfest í til áframhaldandi
vaxtar verði áfram leitað nýrra
tækifæra á núverandi mörkuðum
og nýjum svæðum. Baugur hefur
fjárfest í fasteignum í Indlandi og
horfir til verkefna í Bandaríkjun-
um og Kína.
Baugur er stærsti hluthafinn í 365
hf., útgáfufélagi Fréttablaðsins.
Forstjóraskipti í
Baugi Group
Jón Ásgeir verður starfandi stjórnarformaður Baugs
en Gunnar Sigurðsson forstjóri. Stoðir fara á markað.
Stjórn Actavis telur yfir-
tökutilboð Björgólfs Thors
Björgólfssonar í Actavis
ekki endurspegla virði fé-
lagsins. Stærstu hluthafar
þess hafa ekki tekið ákvörð-
un um hvort þeir ætli að
selja sín bréf.
Stjórn Actavis er opin fyrir við-
ræðum við Novator og mun taka
nýtt tilboð til skoðunar ef það berst.
Mat stjórnarmanna er að tilboðið,
sem Björgólfur Thor lagði fram í
gegnum hið nýstofnaða Novator
eignarhaldsfélag ehf., endurspegli
ekki raunverulegt virði félagsins
og framtíðarmöguleika þess. Til-
boðið hljóðaði upp á 0,98 evrur
fyrir hlutinn. Það samsvarar um 84
íslenskum krónum á hlut.
Karl Wernersson er annar stærsti
hluthafinn í Actavis í gegnum fjár-
festingarfélagið Milestone með
tæplega sjö prósenta hlut. „Ef
stjórnin telur tilboðið of lágt er
hugsanlegt að hún hefji viðræður
við yfirtökuaðilann. Við lítum á það
sem næsta skref í ferlinu og sjáum
hvað setur.“
Róbert Wessman er bæði for-
stjóri og stjórnarmaður í Actavis.
Hann á rúmlega fjögurra prósenta
hlut í félaginu. Hann segist fylgjast
vel með framvindu málsins. Hann
sé ekki tilbúinn til að segja hvort
hann muni eða muni ekki selja sinn
hlut í félaginu.
Lífeyrissjóðurinn Gildi á 2,60 pró-
senta hlut í Actavis. „Stjórnin er sam-
mála því mati okkar að tilboðið sé
of lágt. Actavis hefur verið frábær
fjárfestingarkostur. Við myndum
sjá mjög eftir því ef við þyrftum
að fara út,“ segir Árni Guðmunds-
son, framkvæmdastjóri Gildis. „Við
myndum vilja sjá þónokkuð hærra
tilboð til að við myndum taka því.“
Í sama streng tekur Haukur Haf-
steinsson, framkvæmdastjóri Líf-
eyrissjóðs starfsmanna ríkisins.
„Okkur þótti tilboð Novators í lægri
kantinum. Við höfum enga ákvörðun
tekið enn og erum með málið í skoð-
un.“ LSR á tæplega tveggja prósenta
hlut í Actavis.
Þeir stjórnarmenn í Actavis sem
lögðu mat á tilboðið voru þeir Sindri
Sindrason, Magnús Þorsteinsson og
Baldur Guðnason. Við mat sitt leit-
aði stjórnin til alþjóðlegs banka
eftir faglegu áliti. Vegna samninga-
skilmála þeirra á milli fæst ekki
upp gefið hvaða banki það er. Eng-
inn stjórnarmannanna þriggja var
tilbúinn til að rökstyðja ákvörðun
sína í gær.
Ásgeir Friðgeirsson, talsmaður
Novators, segir félagið skorta upp-
lýsingar til að tjá sig frekar um
álit stjórnarinnar og næstu skref.
„Okkur hefur ekki gefist tækifæri
til að ræða við stjórn Actavis. Yfir-
lýsingin frá henni er ekki mjög ítar-
leg. Þar kemur ekki fram hvaða for-
sendur liggi að baki ákvörðuninni.
Við munum skoða stöðuna þegar
þær upplýsingar liggja fyrir.“