Fréttablaðið - 09.06.2007, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 09.06.2007, Blaðsíða 24
MARKAÐURINN á www.visir alla daga Í tímaritinu Ísafold er grein um klámbúllu í Kópavogi með hrá- slagalegri mynd af bæjarstjór- anum Bestían í sæluvímu við að neyta þeirra lystisemda sem stað- urinn hefur upp á að bjóða. Eitthvað kemur þessi grein við kaunin á einhverjum því að nú hefur kompaníið sem rekur Nóa- túns-búðirnar tekið tímaritið úr sölu. Stundum finnst mér eins og ég hafi lokast inni í háðs- og ádeilu- róman eftir sjálfan mig. Þessi kauðalega tilraun til að hefta útbreiðslu á lesmáli dugði til að ég rölti út í næstu sjoppu og keypti eintak af Ísafold. Hingað til hafa blaðamenn (sennilega karlkyns blaðamenn) borið hinn kringluleita klámbúllu- eiganda á höndum sér. Þeir hafa kannski séð í honum barnslegt sakleysi hins frjálsborna íslenska karlmanns sem afneitar pólitísk- um rétttrúnaði og hversdagslegu striti og kýs að eyða ævinni í gleði og glaumi innan um konur og vín. Í þessari tíma- ritsgrein (hugsan- lega vegna þess að hún er rituð af konu) kveður við nýjan tón. Kannski er sak- leysið gríma slægðarinnar? Kannski snýst hin karlmann- lega lífs- nautnastefna ekki um frelsi heldur rétt hins sterka til að kúga og undiroka hinn veikari – rétt til að svala fýsn- um sínum? Það á ekki af okkur Íslendingum að ganga á íþróttasviðinu. Í dag gerðum við jafntefli á Laugardals- velli við Liechtenstein sem hefur ekki einu sinni sendiráð í Kína og engum mundi detta í hug að kjósa í öryggisráð Sameinuðu þjóða. Ekki nóg með það heldur berast fréttir af pólskum sigri í koddaslag á Húsavík – annað árið í röð. Því minna sem gerist í mínu eigin lífi, þeim mun meiri áhuga hef ég á því að fylgjast með fréttum af öðru fólki. Reyndar vildi ég óska að meira væri skrifað um fólk sem er að gera merkilega hluti og minna um þá sem eru að gera ómerkilega hluti. Var að lesa um einhverja unga leikkonu í Ameríku sem heitir Lindsay Lohan. Pabbi hennar segir að hún sé í miklu rugli og sífellt að drekka og dópa. Það er merkilegt að heilir her- skarar blaðamanna og ljósmynd- ara skuli elta smástelpur eins og þessa Lohan, Paris Hilton og Britney Spears á röndum til að kíkja upp undir þær og gá hvort þær séu í nærbuxum. Í staðinn fyrir að gægjast upp undir þessar stelpukindur væri fróðlegt fyrir fjölmiðla og aðra að reyna að komast fyrir um hvað það er sem veldur því að ungt fólk sem hefur allt til alls fær svona rosa- lega þörf fyrir að taka inn eitur. Fór í ræktina í fyrsta sinn í langan tíma svo að ég hlýt að vera á bata- vegi. Á hlaupabrettinu var ég að hugsa um Samtök atvinnulífsins en for- svarsmenn þeirra báðu um fund með forsætisráðherra og utanríkis- ráðherra í morgun til klaga Seðla- bankann. Ef ég væri í ríkisstjórn myndi ég skera Seðlabankannn niður um tvo þriðju strax núna um helgina og efla Fjármálaeftirlitið að sama skapi. Svo mundi ég ræða við þann snilling sem ber ábyrgð á því að hækkun á verði fasteigna skuli hafa verið reiknuð inn í vísitölu sem „húsnæðis- kostnaður“ því að þar er ekki um „kostnað“ að ræða heldur stórkost- lega eignaaukningu al- mennings. Því næst myndi ég spyrja að því hvers vegna íslenskur al- menningur þori hvergi að geyma sparifé sitt nema í steinsteypu? Er það vegna góðrar reynslu af fjármála- stjórn í landinu? Eða vegna þess að allt sem ekki er naglfast er jafnóðum hirt af mannskapnum? Fyrsti lax sumarsins veiddist kl. 7.21 í morgun í Norðurá. Um svipað leyti rakst ég á gullmola á internetinu, það var á bloggsíðu. Molinn er svona: „Rétt eftir miðnætti horfðum við á Ögðu (Skorradóttur) kasta út um gluggann, það var rauðskjótt merfolald undan Víði frá Sæfelli.“ Maður fer glaður inn í daginn með svona perlur í huganum. Nú er fyrsti aðalyfirseðlabanka- stjórinn farinn að munnhöggvast við Samtök atvinnulífsins og segir samkvæmt ruv.is að „ýmis öfl vinni gegn markmiðum bankans um að ná tökum á verðbólgu, bæði framkvæmdagleði og skortur á samkeppni.“ Það er náttúrlega ekki tekið út með sældinni að vera seðlabanka- stjóri hjá þjóð sem ekki getur hamið sig fyrir framkvæmda- gleði. Gaman væri ef einhver gæti útskýrt fyrir mér hvernig á því stendur að stærsta hagkerfi heims- ins í Bandaríkjunum kemst af með einn seðlabankastjóra meðan minnsta myntkerfi veraldar út- heimtir þrjú stykki? Ef merin Agða væri í ríkisstjórn myndi hún kasta þessu liði út um glugga. Í dag hefur það kvisast út að í síð- ustu viku var samþykkt að hækka laun seðlabankastjóra um 200 þúsund krónur á mánuði að tillögu Helga S. Guð- mundssonar, formanns bankaráðs. Jafnvel þótt launa- hækkun sé ekki nema tvöhundruð þúsund kall getur munað um hana eins og ég hef reyndar margoft sagt við yfir- menn mína á Fréttablað- inu. Þetta segir Helgi Ess að sé gert vegna þess að afar mikil- vægt sé „fyrir Seðlabankann að hafa jafnan í þjónustu sinni eins gott starfslið og völ er á og verður hann að taka mið af ríkjandi um- hverfi til þess að svo geti verið.“ Helgi Ess hefur eflaust meira vit á kjaramálum en þeir Forrest Gump og Góði dátinn Svejk – en hvaða samkeppnisað- ilar heldur hann að séu að reyna að kaupa til sín seðlabankastjóra? Mér dettur enginn í hug nema ef vera kynni að Páll útvarpsstjóri RUV-OHF væri að pæla í að krækja í „Matthildi“ til viðbótar við „Silfur Egils“. Í kvöld var landsleikur í knattspyrnu við Svíþjóð. Fimm, núll! Fastir liðir eins og venju- lega í þessu besta landi af öllum mögulegum. Ég er allur að koma til. Enda er stundum betra að vera heilsugóður til að standa undir því sem á mann er lagt í þessu landi: Fréttablaðið upplýsir að heildar- laun Davíðs Oddssonar formanns bankastjórnar Seðlabankans séu ríflega 1.700 þúsund krónur á mánuði og að hann sé betur laun- aður eftir hækkunina en bæði for- seti Íslands og forsætisráðherra. Nú vona ég að einhver íslenskur Cicero taki til máls í þinginu og flytji ræðu sem verði jafn bein- skeytt og ræða sem flutt var í Róm 8. nóvember árið 63 f. Kr. og byrjar svona: „Quousque tandem abutere, Ca- tilina, patientia nostra?“ „Hversu lengi enn hyggst þú misbjóða þolinmæði vorri ... ?“ Hversu lengi enn...? Í Dagbók Þráins Bertelssonar er sagt frá klámbúllu í Kópavogi, tilraun til ritskoðunar, pólskum sigri í koddaslag, nærbuxna- gægjum, folaldi sem kastað var út um glugga, launaskriði í Seðlabankanum, Forrest Gump, Góða dátanum Svejk, Helga S. Guð- mundssyni og frægri þingræðu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.