Fréttablaðið - 09.06.2007, Síða 30

Fréttablaðið - 09.06.2007, Síða 30
Hverjar eru fyrstu og bestu minning- arnar? Ásgrímur: Ég ólst upp í Hafnarfirði en fyrstu þrjú árin átti ég heima í blokk í Reykjavík og þaðan eru fyrstu minn- ingarnar. Við bjuggum uppi á 8. hæð og ég man eftir að hafa horft niður og fundist ofsalega hátt niður. Ég man líka eftir að hafa verið fastur ofan í holu og sent bróður minn inn til að ná í mömmu. Dóttir mín er nú á svipuðum aldri og ég var þá og hún vill gjarnan heyra þessa sögu aftur og aftur. Ég er því búinn að setja hana í nokkrar út- færslur og nú er til að mynda komið skrímsli inn í hana. En góðu minning- arnar eru þarna óteljandi. Birgitta: Fyrsta minningin sem poppar upp núna er úr eldgömlu húsi á Húsa- vík sem hét Vallholt þar sem foreldrar mínir og afi og amma bjuggu. Þar voru hænur og kindur í garðinum. Besta minningin er líklega jólagjöfin sem ég fékk þegar ég var sex ára. Mamma og pabbi gáfu mér brúðu, nema hvað að dúkkan var með sítt brúnt hár og brún augu og einstaklega lík mér sjálfri. Þarna var dóttir mín hreinlega fædd. Og ég á þessa dúkku ennþá. Ási: Gastu ekki látið þá hafa þessa dúkku til að gera módel eftir í staðinn fyrir það sem notað var? Birgitta: Já, af hverju gerði ég það ekki! Hvaða þrjú orð koma upp í hugann þegar nöfn hvors annars eru nefnd? Og átt þú einhverja geisladiska með Birgittu, Ás- grímur og horfðir þú til dæmis á sjón- varpsþættina hans Ásgríms sem sýndir voru á RÚV þarsíðasta vetur, Taka 2? Ási: Fyrsta orðið er „stjarna“ og það var ákveðið móment þegar ég uppgötv- aði að Birgitta yrði stjarna. Ég hafði heyrt um hana en aldrei séð en þegar ég sá hana loks syngja jólalagið var það jólalagið sem Ragga Gísla tók, Eitt lítið jólalag. Þetta var þá þessi Birg- itta sem allir voru að tala um. Þetta var eitt af þessum augnablikum þar sem maður er viss um að einhver eigi eftir að meika það. Slíkt fer yfirleitt eftir því hvort fólk elskar myndavélina og hvort myndavélin elskar það og það átti svo sannarlega við þarna. En hin tvö orðin: Gullfalleg og söngkona. Birgitta: Mér detta strax í hug orðin „notalegt“ og „RÚV“ og „kvikmyndir.“ Ási: Hvað geisladiska varðar þá ég á tvo með Birgittu því dóttir mín er mik- ill aðdáandi. Hún hefði mikið viljað hitta þig. Birgitta: Gaman að heyra það. Ási: Hún á sem sagt Eurovision-disk- inn og barnaplötuna – þar sem þú varst eins og álfur eða engill framan á. Birgitta: Já, ég hef alltaf verið mikil englakona. En ég man eftir að hafa dottið inn í þættina hans Ása og þeir voru æðislega flottir. Vildi bara að þeir væru ennþá á dagskrá. Verður ekkert meira? Ása: Takk fyrir það. Það gæti farið svo jú, en ekki samt nákvæmlega af þessu tagi. Að samfélaginu og því sem er að ger- ast á öldum ljósvakamiðla. Haldið þið að þættir eins og America‘s Next Top Model, MTV-myndbönd, dúkkur klæddar eins og gleðikonur og annað í umhverfinu hafi einhver áhrif á þá kynslóð sem er að vaxa úr grasi? Birgitta: Þessi útlitsdýrkun finnst mér frekar skelfileg. Ég man aldrei eftir að hafa verið að spá í það sjö ára gömul hvaða buxur voru keyptar á mig, en sjö ára krakkar í dag eru mun meira með puttana í því. Pressan var ekki svona mikil. Maður fór bara í þau föt sem manni voru rétt og ekkert múður. Ási: Já, ég held að útlitsdýrkunin sé vissulega komin út í öfgar en þetta er samt svo mikill hluti af þessum fjöl- miðlasannleik sem við lifum í. Ofboðs- lega stór hluti af okkar tilveru kemur úr fjölmiðlum og fjölmiðlasannleikur- inn er bara pínupínulítið brot af heimi okkar og þar að auki ákveðin túlkun á henni. Fjölmiðlar tala oft um að þeir túlki tilveruna. Það er ofboðslegur mis- skilningur. Þeir gera aldrei neitt annað en að segja frá brotabrotabroti af henni en setja svo þetta brotabrot á háan stall. Því fer umræðan að snúast um svona vitleysu eins og París Hilton eða Amer- ica‘s Next Top Model eða svoleiðis vit- leysu sem skiptir engu máli. Þetta hefur auðvitað alltaf verið svona nema að þetta er orðið geggjaðra og magnaðra í dag. Líf manns snýst fyrst og fremst um það hvernig umhverfi maður er í, hvernig vini maður á og hvernig manni líður í vinnunni og þess háttar. Þetta eru hlutir sem flestir eru að hugsa um. Ekki hvað París Hilton var að gera. Hún er til dæmis manneskja sem stendur fyrir ekki nákvæmlega neitt en fjölmiðlar fjalla samt stöðugt um hana. Þannig að skilaboðin eru þau að það sem er ekki neitt sé mikilvægt. Sem er mjög skrítið. Birgitta: Ég er sammála þar, fjölmiðlar ýta mikið undir þetta. Ási: Og um leið má heldur ekki of- meta aðsókn lesenda í þessar fréttir því þótt fólk jafnvel lesi þær þá segir það ekki alla söguna því eftir lesturinn gleymir fólk þessu og fer að gera eitt- hvað annað. Birgitta: Já, við fullorðna fólkið sjáum kannski í gegnum þetta en börnin okkar eru ekki búin að læra að þetta er bara rusl og þetta er því þeim hættu- legra. Ási: Já, vonandi átta þau sig á því. Ég hef svo sem engar áhyggjur af dóttur minni, enda stundum við foreldrarnir svo frábærlega markvissa uppeldis- starfssemi. Hún fór auðvitað í gegnum barbískeiðið, bleika skeiðið og Bratz- dúkkurnar en hún var ekkert á kafi í því. Nema jú kannski bleika skeiðið – en það er í rénun. Hún er aðeins byrjuð á bláa tímabilinu. Birgitta: Mér finnst bleika skeiðið hjá stelpum alveg dásamlegt. Að sjá hóp af litlum stelpum uppstrílaðar frá toppi til táar í bleiku. Hreint út sagt yndislegt. Úr Bratz-dúkkum í þingmenn. Kosn- ingar eru afstaðnar og margt og mikið verið rætt um nýja ríkisstjórn og ekki síður útstrikanir. Strokuðuð þið ein- hvern út og hvað finnst ykkur um heil- síðuauglýsingar þar sem fólk er hvatt til þess að gera slíkt? Hafa þessar út- strikanir eitthvað að segja? Ási: Nei, ég strikaði engan út. En hvað varðar heilsíðuauglýsinguna þá verð ég að segja að ég er mjög hlynntur tjáningarfrelsi. Birgitta: Mér fannst auglýsingin alls ekki við hæfi. Ég á hreinlega ekki orð yfir hana. Það er ekkert að því að koma sinni skoðun á framfæri en að ráðast á eina manneskju með því að kaupa heil- síðuauglýsingu finnst mér hreinlega ljótt. Ég get rétt ímyndað mér hvernig mér myndi líða ef einhver keypti aug- lýsingu og segði fólki að hætta að kaupa ömurlegu diskana hennar Birg- ittu. Björn hefur að mínu mati staðið sig mjög vel og það er auðvitað ástæða fyrir því að hann er ráðherra okkar. Hann var kosinn og hefur gott fylgi á bak við sig. Jóhannes er ágætur maður en þetta var ekki við hæfi. Ási: Já, þó ég sé fylgjandi tjáningar- frelsi sem þessu er ekki þar með sagt að ég hafi verið sammála því sem stóð í auglýsingunni. Björn er að mörgu leyti mjög klár maður en hann er líka mjög harður pólitíkus og dregur hvergi af sér. Því verður hann að sjálf- sögðu að vera viðbúinn því að þegar hann veitist harkalega að sínum að- stæðingum – muni þeir svara harka- lega á móti. Hann kýs að haga sínum málflutningi svona og þá koma and- svör, það er óhjákvæmilegt. Birgitta: Að halda því samt fram að þessi málsókn sé einum manni að kenna er engu að síður fjarstæða, því ákæra þarf að fara í gegnum svo marga og einn maður hefur þar engin áhrif. Ég er viss um að Björn Bjarna- son sé jafnmikill áhorfandi og við hin að þessum málaferlum. Fyrst rætt er um kosningar. Nú er rétt ár í forsetakosningar. Sjáið þið fyrir ykkur að Ólafur Ragnar bjóði sig aftur fram og er það gleðiefni? Ef ekki – hvern sjáið þið fyrir ykkur sem góðan forseta? Eigum við kannski að koma okkur upp konungsfjölskyldu? Ási: Já, skemmtilegt að tala svona mikið um pólitík. Birgitta, byrja þú. Birgitta: Ég hugsa að hann bjóði sig aftur fram og verði kjörinn. Aftur á móti held ég að forsetastarfið sé ekk- ert skemmtilegt. Þú fyrirgefur Ólafur ef þú ert að lesa þetta viðtal, en ég held að það sé mjög óspennandi starf að vera forseti á Íslandi. Heimsóknir, fundir og verðlaunaafhendingar út í eitt. Hann stendur sig vel í þessu en það væri gaman að sjá hverjir aðrir myndu bjóða sig fram. Fyndist mér gleðiefni að hann yrði endurkjörinn? Hmmm... Ási: Þú verður að skrifa í viðtalið hvað þögnin er orðin löng og vandræðaleg hér við borðið. Birgitta: Já, hann stendur sig vel. Ási: Svarar hún diplómatískt. Ólafur Ragnar hefur staðið sig mjög vel og það hefur aldrei gerst að sitjandi for- seti nái ekki endurkjöri bjóði hann sig Spekúlantinn og prinsessan Þegar Ásgrímur Sverrisson sá Birgittu Haukdal syngja í fyrsta skipti var hann viss um að hún yrði stjarna. Þegar Birgitta Hauk- dal var lítil átti hún brúðu sem Ásgrímur hefði fremur viljað sjá sem fyrirmynd að Birgittu-dúkkunum sem framleiddar voru hér um árið. Júlía Margrét Alexandersdóttir tók að sér fundarstjórn í kaffisamsæti kvikmyndafrömuðarins og söngkonunnar. fram. Hins vegar hvort hann langi að halda áfram veit ég ekkert um. Allir forsetar íslenska lýðveldisins hafa staðið sig fjári vel og bara verið fínir þannig að ég treysti þjóðinni vel til að velja næsta forseta, því það hefur heppnast svo ágætlega hingað til. Birgitta: Svo skiptir jú miklu máli hvað Ólafur hefur góða konu sér við hlið. Við erum mjög heppin að eiga hana Dorrit. Þau eru flott saman. Ási: Já, hún er alveg æðisleg. Ási: Annars held ég að Jón Gnarr yrði mjög góður konungur. Og réttlátur. Birgitta: Ég ætla að velja drottningu fremur en konung. Ég ætla að velja Vig- dísi Finnbogadóttur. Ég sé þessa hlýju og kláru konu alveg fyrir mér með kór- ónu. Annars held ég að forseti sé málið fyrir Ísland. Hvað finnst þér? Ásgrímur: Konungsfjölskylda, ekki spurning. Það er svo miklu flott- ara, því þetta eru hvort eð er fremur valda- og áhrifalaus embætti og kon- ungsfjölskylda er mystería. En gallinn er sá að við getum ekki komið okkur upp konungsfjölskyldu án þess að sú fjölskylda hefði þá sögu sem þarf til að verða konungur og það yrði þá að kaupa slíkt. Birgitta: Ég ætlaði nú alltaf að verða prinsessa þegar ég var yngri þannig að það myndi henta mínum draumi mjög vel ef til væri konungsfjölskylda. Þá gæti ég allavega reynt að giftast inn í fjölskylduna. Ef þið mættuð bæta inn einni spurn- ingu í viðtalið, handa hvort öðru – hver yrði hún og hvert yrði svarið? Birgitta: Hvað er mikilvægast í lífinu? Spyrjum við ekki hvort annað að því? Ási: Jú mér líst vel á það. Það mikil- vægasta í lífinu er kærleikurinn og að verða öðrum að gagni, sínum nánustu, vinum og samfélaginu. Birgitta: Við eigum að þakka guði fyrir heilsuna okkar á hverjum degi því að hún er það allra mikivægasta í lífinu. Ef hún er ekki til staðar getum við ekki notið annara hluta. Á eftir heilsunni kemur hiklaust fjölskyldan og ástin. Þess vegna er mjög mikilvægt að við hugsum vel um heilsuna okkar og rækt- um fjölskylduna. Ég er svo heppin að vera við hestaheilsu (í augnablikinu allavega) og eiga yndislega fjölskyldu sem styður mig í öllu sem ég tek mér fyrir hendur. Birgitta Haukdal syngur á stórtón- leikum á Reyðarfirði í kvöld ásamt Stebba Hilmars, Björgvini Halldórs- syni, Andreu Gylfadóttur, Eivöru Páls- dóttur og Helga Björnssyni Fjölmiðlar tala oft um að þeir túlki tilveruna. Það er ofboðs- legur mis- skilningur. Þeir gera aldrei neitt annað en að segja frá brota- brotabroti af henni en setja svo þetta brotabrot á háan stall.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.