Fréttablaðið - 09.06.2007, Síða 33
Gavia Travel sinnir ört stækk-
andi hópi ferðamanna sem
koma í fuglaskoðunarferðir til
landsins.
„Þetta eru aðallega breskir og
bandarískir ferðamenn, en sumir
koma einnig annars staðar frá Evr-
ópu. Margir koma til að skoða fugla-
tegundir sem fyrirfinnast hvergi
annars staðar í álfunni. Evrópubúar
eru til að mynda alveg vitlausir í að
skoða straum- og húsendur,“ segir
Hrafn Svavarsson, framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins Gavia Travel,
sem þjónustar fuglaskoðara.
Hrafn segir fyrirtækið standa
fyrir skipulögðum fuglaskoðun-
arferðum, ýmist fjögurra, sex eða
tólf daga löngum, og dagsferðum
frá Reykjavík, annað hvort til Snæ-
fellsness eða Reykjaness, þar sem
náttúran og dýralífið er skoðað. Er
stór hluti ferðanna skipulagður í
samstarfi við erlendar ferðaskrif-
stofur sem sérhæfa sig í að sinna
áhugamönnum um fugla.
„Þetta er stór markaður erlendis
og þar hefur lengi verið mikill
áhugi fyrir íslensku fuglalífi,“ segir
Hrafn. „Hins vegar hefur þessum
ferðamannahópi ekki verið sinnt
sem skyldi og ástæðan er meðal
annars sú að sérþekkingu hefur
oftar en ekki verið ábótavant.“
Hrafn segir það hafa breyst
þegar Gavia Travel tók formlega til
starfa í sumar, þar sem margir af
helstu fuglaskoðurum, -fræðingum
og -áhugamönnum landsins komi
nálægt starfseminni með einum
eða öðrum hætti. „Við erum fyrsta
fyrirtækið af þessu tagi sem er
eingöngu rekið af fuglaskoðurum,
enda er það vitað mál að fuglaskoð-
arar fara ekki af stað í svona ferðir
nema undir leiðsögn annarra fugla-
skoðara.“
Straum- og húsendur
trekkja ferðamenn að
Fagmenntaðir kayak kennarar
og leiðsögumenn
Ferðamannabólusetningar
og ráðgjöf
tímapantanir í síma: 535-7700
Læknasetrið Mjódd, Þönglabakka 1
www.ferdavernd.is ferdavernd@ferdavernd.is
ferðavernd
MasterCard
Mundu
ferðaávísunina!