Fréttablaðið - 09.06.2007, Side 38

Fréttablaðið - 09.06.2007, Side 38
hús&heimili OTTÓMAN er bólstrað sæti eða bekkur sem hvorki hefur bak né arma. Oft er hann notaður sem fótaskem- ill. Sumir óttomanar eru holir að innan svo hægt er að geyma þar hluti á borð við teppi og kodda. Orðið ottóman sem vísan í húsgagn kom inn í enska tungu árið 1806. Líklega kemur orðið úr frönsku en orðið vísar til vissrar tegundar textíls. Ekki er talið að húsgagnið hafi verið fundið upp af Ottóman-Tyrkjum. stóllinn Forsíðumynd: Sjöan eftir Arne Jacobsen í nýju útliti eftir Missoni. Fleiri frægir hönnuðir reyndu sig við Sjöuna og má sjá árangurinn á síðu 10 . Útgáfufélag: 365 - prentmiðlar, Skaftahlíð 25, 105 Reykjavík, sími: 550-5000 Ritstjórar: Kristín Eva Þórhallsdóttir kristineva@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid. is. Auglýsingar: Ámundi Ámundason s. 517-5724 og Ásta Bjartmarsdóttir s. 517- 5724 Útlitshönnuður: Kristín Agnarsdóttir kristina@frettabladid.is. „Hún systir mín keypti þessa poppskál í lítilli verslun á brautar- stöð einhvers staðar í Danmörku,“ segir Halldóra um sinn eftirlætis- grip á heimilinu. „Hún VARÐ bara að kaupa hana handa mér enda er ég alveg rosaleg poppæta og skál- in þar af leiðandi alltaf full. Popp- át er mjög mikið mál fyrir mér og ég er orðin þekkt fyrir þetta hjá fjölskyldu og vinum svo systir mín gat sko ekki klikkað þegar hún gaf mér þessa fínu skál, sem mér finnst einmitt svo fullkominn sem slík.“ Almennt segist Halldóra kaupa alla sína innanstokksmuni í Egg- inu eftir að það var opnað í sept- ember síðastliðnum en hún hefur þess utan dýran smekk og vill ekki hluti sem hafa verið í eigu annarra áður en þeir koma inn til hennar. „Ég er ekkert fyrir notað dót og hluti með sál. Vil ekki það sem annað fólk er búið að eiga á undan mér og hef eiginlega mjög dýran smekk. Nema þegar kemur að poppskálum. Reyndar hefði ég aldrei keypt þessa skál sjálf, en eftir að hún komst í mína eigu hefur stöðugildi hennar hækkað ört og núna held ég að þetta sé sá hlutur í minni eigu sem mér þykir hvað vænst um,“ segir poppsér- fræðingurinn Halldóra að lokum. mhg@frettabladid.is Poppkona með innan- stokksmunaáhuga Halldóra Valgerður Steinsdóttir, aðstoðarrekstrarstjóri í Egginu, hefur dýran smekk en gerir undantekningar þegar kemur að poppskálum. Halldóra með poppskálina góðu sem fyllt er með poppkorni á hverjum degi. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR BHTÆKNI EHF - DYNSKÁLAR 36 - 850 HELLA - S 697 3217 - www.tym.is VEITUM ÚRVALS ÞJÓNUSTU MEÐ HVERRI SELDRI TYM VÉL TYM HEFUR GÆÐIN. ÞRIGGJA ÁRA ÁBYRGÐ FYLGIR HVERRI SELDRI VÉL. 9. JÚNÍ 2007 LAUGARDAGUR2

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.