Fréttablaðið - 09.06.2007, Síða 48

Fréttablaðið - 09.06.2007, Síða 48
Philippe Patrick Starck fæddist í París árið 1949. Hann hefur á löngum ferli skipað sér meðal þekktustu hönn- uða heims. Hann stofnaði sitt eigið fyrirtæki ásamt hönnuðinum Pierre Cardin árið 1968 en það framleiddi aðallega uppblásanlega hluti. Síðan árið 1975 hefur hann unnið sjálfstætt. Þáverandi forseti Frakklands, Francois Mitterrand, fékk hann til að hanna vistarverur sínar árið 1982 og eftir það lá leið hans aðeins upp á við. Hann hefur meðal annars hannað farar- tæki, raftæki og matarumbúðir auk hefð- bundari hluta eins og húsgögn og eldhús- áhöld. Auk þess að hanna ofangreinda hluti hefur hann skapað sér nafn sem arkitekt. Hann hóf seinna að hanna fatnað og fylgihluti eins og úr, gler- augu og skó. Starck er mikill umhverfis- verndarsinni og leggur ætíð áherslu á virðingu við náttúruna í hönnun sinni. Starck hefur unnið með mörgum stærstu fyrir- tækjum heims í mismunandi hönnun en þeirra á meðal eru Kartell, Alain Mikli, Louis Vuitton, Al- essi, Puma og Microsoft. Starck er mikill heims- borgari og heldur heimili í fjórum borg- um, í París, New York, Burano á Ítalíu og í London. Hann hefur hannað veit- ingastaði, hótel og klúbba í fjölmörg- um stórborgum og verk hans hafa verið sýnd í stærstu listasöfnum heims. Starck hannar oft óvenjulega hluti og þessi lampi er gott dæmi um það. Philippe Starck stillir sér upp bak við hönnun sína, Louis-stólinn. HÖNNUÐUR & heimsborgari Í tæp fjörutíu ár hefur hann verið einn af fremstu hönn- uðum heims og skiptir þá litlu hvort um er að ræða fatnað, veitingastaði, húsgögn eða tannbursta. Philippe Starck gerir það allt. einstök sýning Auður Marinósdóttir opnar sýningu laugardaginn 9. júní kl. 13:00 sem stendur viku Málverkasýning Skipholti 50A • sími: 5814020 • www.gallerilist.is F A B R I K A N 9. JÚNÍ 2007 LAUGARDAGUR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.