Fréttablaðið - 09.06.2007, Qupperneq 64
B
ílarnir leggja upp
frá Umferðarmið-
stöðinni í dag en
innanborðs verða
þátttakendur í verk-
efninu Díónýsía,
sem er nýstárlegt og þverfaglegt
grasrótarframtak sem ætlað er að
tengja betur skapandi fólk, hvar
sem það er niðurkomið á land-
inu. Þátttakendurnir eru rúm-
lega fimmtíu og koma úr öllum
listgeirum, til dæmis eru hönn-
uðir, skáld, kvikmyndagerðar-
fólk og myndlistarmenn í hópn-
um og einnig allra þjóða lýður.
Hópar þriggja til níu þátttakenda
munu hreiðra um sig víðs vegar
á landinu og hyggjast virkja íbúa
á hverjum stað til að brúa bilið
milli borgar og dreifbýlis með
framtíðarsamstarf í huga.
Aðall verkefnissins er hið
ófyrirsjáanlega og verður dag-
skráin á hverjum stað unnin í
samvinnu við íbúana. Þátttak-
endurnir munu dveljast í átta
bæjum eða þorpum næstu tíu
daga og verður verkefnið skrá-
sett með ýmsum hætti. Stefnt er
að því að gefa út bók um framtak-
ið og setja upp sýningu í Reykja-
vík í haust.
Nánari upplýsingar um
verkefnið má finna á heimasíð-
unni this.is/dionysia/.
Landsmenn! Lítið ykkur nær!
Hópur fólks hyggst ganga á hólm við mýtuna um ládeyðu landsbyggðarinnar og stendur á næstu dögum fyrir óvanalegum lista-
hátíðum í afskekktari bæjum landsins. Erfitt er að spá fyrir um útkomuna enda er hið óvænta aðall verkefnisins Díónýsía.
ÓNÝSÍA
DIÓ
N
Ý
SÍA
D
IÓ
N
Ý
SÍA
D
IÓ
N
Ý
SÍA
D
IÓ
N
Ý
SÍA
DIÓNÝSÍA
DIÓNÝSÍADIÓNÝSÍA
DIÓ
NÝ
SÍA
DI
ÓN
ÝS
ÍA
D
IÓ
N
Ý
SÍ
A
D
IÓ
N
Ý
SÍ
A
D
IÓ
N
Ý
SÍ
A
D
I
Heimspekineminn Björk Þorgríms-
dóttir mun ásamt átta öðrum þátttak-
endum ferðast norður á Hofsós. Hóp-
urinn mun halda til í félagsheim-
ili staðarins og að sögn Bjarkar
er mögulegt að þau máli bæinn
rauðan í bókstaflegri merk-
ingu. „Við höfum líka hug á að
nota náttúru og umhverfi staðar-
ins eins og hægt er. Markmiðið
er líka að skapa góða stemmn-
ingu í bænum og virkja eins
marga og hægt er.“
Myndlistarmaðurinn Harpa Dögg
Kjartansdóttir fer fyrir hópi sem
fer suður með sjó og heldur til í
samkomuhúsinu í Höfnum þar sem
vinnustofur verða opnar á meðan
á hátíðinni stendur. Hópur ungs
listafólks frá nágrannabæjum mun
starfa með þátttakendunum, sem
hvetja aðra íbúa til þess að leggja
sér lið. „Viðbrögðin hafa verið betri
en ég þorði að vona“ segir Harpa,
sem ekki hefur komið til Hafna
áður. „Maður hefur margoft ferð-
ast til Keflavíkur en aldrei komið
við hér,“ segir hún. Hópurinn mun
meðal annars setja mark sitt á há-
tíðarhöldin 17. júní.
Friðrik Svanur Sigurðarson
er grafískur hönnuður og einn
þeirra sem munu láta sjá sig á
götum Grundarfjarðar. Hópurinn
hefur haft spurnir af því að opna
eigin nýjan pítsustað í bænum.
„Við reynum kannski að hjálpa
eitthvað til við það, gera flotta
grafík fyrir staðinn, kannski baka
nokkrar pítsur, hver veit?“ segir
Friðrik. „Annars munum við gera
hvað sem er, spila tónlist, mála og
setja svip á bæinn.“
Hulda Rós Guðnadóttir myndlistar-
maður er meðal þáttakenda í verk-
efninu á Borgarfirði eystri. Hún
segir að dagskráin þar litist mjög
af breiðu áhugasviði þátttakend-
anna. „Hingað kemur til dæmis
þýskur myndlistarmaður og hönn-
uður, Eline Kellerman, sem hefur
mikinn áhuga á hestum og tón-
list en hún hefur sóst eftir því að
fá að læra að spila á íslenskt hljóð-
færi. Við höfum því til dæmis sett
okkur í samband við hestabónda
hér á staðnum og einn listamann
úr sveitinni sem leikið hefur á sex-
tíu þorrablótum,“ segir Hulda og
bætir við að þorrablótin á staðnum
séu annáluð enda listfengi mikið á
svæðinu. Tveir aðrir þátttakendur
hafa einnig auglýst eftir tónlistar-
fólki á staðnum og hyggjast nýta
kirkju staðarins til listsköpun-
ar. Sjálf hefur Hulda fengist við
myndlist sem tengist lundum og
álfabyggðum. Hún segir þá þræði
koma skemmtilega saman þarna
austur frá og mun hún setja loka-
punkt á þá vinnu sína á hátíðinni.
DIDI
ÓN
ÝSÍ
A DI
ÓN
ÓN
ÝS
ÍA