Fréttablaðið - 09.06.2007, Page 70
Ef þú leitar inn í sorg þína muntu
finna hroka þinn gagnvart mót-
lætinu, verða lítill í miklum sárs-
auka og síðan auðugur af ró og
auðmýkt. En ef þú leitar út úr
sorg þinni áður en hún hefur náð
að blómstra, muntu fara á mis við
eymd þína, verða fátækur af þögn
og kvalinn af öryggi.
Vésteinn Lúðvíksson:
Maður og haf
Einn frambjóðandi talaði um að
„sitja með lífið í öngunum“ rétt
fyrir kosningar. Þar er á ferð
blanda tveggja orðtaka, að „vera
með lífið í lúkunum“ og „vera í
öngum sínum“. Kennari minn í
MA, Gísli Jónsson, hafði gaman
af að safna svona hrærigraut, og
ég held að uppáhalds ruglingur
hans hafði verið það sem kerling-
in sagði: „Enginn veit sína ævina
fyrr en í ausuna er komið!“ Og er
víst orð að sönnu.
„Þeir hafa þáð boðið,“ sagði í
kvöldfréttum Ríkisútvarpsins
8. maí, og þyrfti sá fréttamað-
ur að gæta sín betur á sögninni
að þiggja. Áður fyrr beygðist
hún einungis sterkt: Þiggja – þá –
þágum – þegið. Nú ber á oft veikri
þt. þáði, en lh. þt. samt hafður
þegið. Vorkunn má vera að halda
veiku beygingunni áfram, eins og
fréttamaður gerði (og er hann að
vísu ekki alveg einn um það), en
einhvern veginn særir það mál-
kennd mína.
var sagt í kvöldfréttum Stöðvar 2,
8. maí, og aftur er svipuð afbökun
og í dæminu að framan. Sverja –
sór – sórum – svarið – og lh. þt. í
kk. er þá svarinn (andstæðingur).
Því skal hér segja svarnir and-
stæðingar – og betur mega frétta-
menn vanda málfar sitt.
„Er eitthvað innihald í þeim orða-
flaumi“ segir í fyrirsögn á for-
síðu Fréttablaðsins 1. júní, og því
miður sést þessi villa býsna oft.
Menn átta sig ekki á muni hlið-
stæðs og sérstæðs. Nokkuð er sér-
stætt, en nokkurt hliðstætt. Sama
máli gegnir um óákveðna fornafn-
ið einhver, eitthvað er sérstætt, en
eitthvert hliðstætt. Því skal segja
eitthvert innihald.
Í sama tölublaði Fréttablaðsins
segir einnig í fyrirsögn: „Undan-
renna beint af kúnni“. Og ég sem
hélt að mjólkin kæmi úr kúnum
en ekki af þeim!
Kristján G. Kristjánsson skrifar:
„Það kom aðeins til tals í síðasta
Kastljósþættinum með formönn-
um flokkanna [fyrir kosningar],
að nú væru menn meira farnir að
reyna að klekkja á andstæðingun-
um í stað þess að fjalla um sína
eigin stefnu“ – og sendir þessa
braghendu, sem minnir kannski
suma lesendur á umfjöllun um
orðið smjörklípa:
Slípa margir slyngir kónar
slóttugheitin.
Smeðju valda smánarskeytin,
smjörklípunnar drýpur feitin.
Vilji menn senda mér braghendu
eða góðfúslegar ábendingar: npn@
vortex.is
Birgitta Spur, safnstjóri Listasafns
Sigurjóns Ólafssonar, verður með
leiðsögn á morgun um sýninguna
Cobra Reykjavík sem nú stendur
yfir í Listasafni Íslands.
Birgitta fjallar um tengsl Sig-
urjóns Ólafssonar myndhöggvara
við nokkra listamenn Cobra-hreyf-
ingarinnar. Í spjalli sínu mun hún
fjalla um þá hugmyndafræði sem
listamenn Cobra-hreyfingarinnar
byggðu á og sérstöðu Sigurjóns
Ólafssonar hvað varðar efnislega
nálgun. Einnig mun hún varpa ljósi
á þær hræringar sem áttu sér stað
í myndlistinni á fjórða áratugnum í
Danmörku, þátt listhópanna Linien,
Helhesten og Høst sýningarhóps-
ins. Ræðir hún einnig um þátt súr-
realistanna eða hvernig ný lífeðlis-
fræðileg vitneskja um manninn og
sálarlíf hans opnaði fyrir frjálsa
tjáningu tilfinninga og kennda
mannsins sem um leið veitti áhorf-
andanum nýtt frelsi til upplifun-
ar og túlkunar. Verk einstaka lista-
manna verða jafnframt skoðuð út
frá tengslum þeirra við Ísland.
Sýningin Cobra Reykjavík er
framlag Listasafns Íslands til
Listahátíðar Reykjavíkur og stend-
ur hún til 8. júlí í sumar. Sýningar-
stjóri er Per Hovdenakk, fyrrver-
andi safnstjóri Heine Onstad-lista-
safnsins í Osló.
Dagskrá þessi hefst kl. 14 á
morgun en aðgangur að safninu er
ókeypis.
Listatengsl
Lausn krossgátunnar er birt að viku liðinni á vefnum, www.gatur.net
Dregið úr réttum svörum n.k.
fimmtudag kl. 12. - 99 kr. smsið
Þú sendir SMS skeytið JA LAUSN LAUSNARORÐIÐ
á númerið 1900!
Dæmi hvernig SMS gæti litið út ef svarið er Jón.
Þá sendir þú SMS-ið JA LAUSN JON.
LANGAR ÞIG
Í BÍÓ?
Leystu þá kr
ossgátuna!
Bíómiðar fyrir
tvo
á sýningu að
eigin vali!