Fréttablaðið - 09.06.2007, Síða 82

Fréttablaðið - 09.06.2007, Síða 82
Markið er sett á sigur í erfiðu verkefni í Serbíu UEFA staðfesti í gær að Svíum hefði verið dæmdur 3- 0 sigur gegn Dönum. Í kjölfar skandalsins á Parken um síðustu helgi þurfa Danir að greiða rúmar fimm milljónir króna í sekt, spila leikinn gegn Liechtenstein fyrir luktum dyrum og næstu fjóra heimaleiki í 250 kílómetra fjar- lægð frá Kaupmannahöfn. Þeir leikir, gegn Liechtenstein, Spán- verjum, Lettum og Íslendingum, gætu því farið fram í Svíþjóð eða Þýskalandi sökum smæðar Dan- merkur. Danir fá heima- leikjabann SMS LEIKUR SENDU SMS JA 2HO Á 1900 OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ BÍÓMIÐA! VINNINGAR ERU BÍÓMIÐAR, DVD MYNDIR, TÖLVULEIKIR OG MARGT FLEIRA! Vinningar verða afhendir hjá BT Smáralind. Kópavogi. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 99 kr/skeytið. HEIMSFRUMSÝND 8. JÚNÍ STRANGLEGA BÖNNUÐ Eftir að Blikar töpuðu fyrir Fylki í fyrstu umferð móts- ins hafa fjórir jafnteflisleikir í röð litið dagsins ljós hjá liðinu. Í gær mættu Blikar Víkingum á útivelli og þurftu enn á ný að sætta sig við skiptan hlut. Leikurinn byrjaði af krafti en Blikar fengu tvö ágæt færi strax í upphafi leiks. Það var því í takti við gang leiksins þegar Magnús Páll Gunnarsson kom þeim yfir á 10. mínútu. Hann skoraði með glæsilegum skalla í fjærhorn- ið eftir laglega sendingu Prince Reuben frá vinstri kantinum. Eftir markið hresstust heima- menn nokkuð og Gunnar Kristj- ánsson fékk ákjósanlegt færi skömmu síðar. Í næstu sókn átti Jón Björgvin Hermannsson öfl- ugt skot að marki sem hinn danski Casper Jacobsen varði í horn. Úr því kom svo jöfnunarmarkið þegar varnarmaðurinn Valur Úlfarsson skallaði boltann í markið af stuttu færi eftir að hornspyrna Sinisa Kekic hafði skoppað í gegnum þvöguna. Gunnar fékk svo kjörið tæki- færi til að koma Víkingum yfir eftir að Egill Atlason nýtti sér mis- tök í varnarleik Blika og sendi fyrir markið. Gunnar rétt missti af boltanum og var klaufi að nýta sér ekki færið betur. Fátt annað mark- vert gerðist fram að hálfleik. Síðari hálfleikur var keimlíkur þeim fyrri þó að mörkin hafi ekki komið. Upphafsmínúturnar voru nokkuð fjörugar en svo fjaraði undan báðum liðum eftir því sem á leið. Bæði lið fengu góð færi, Ol- geir Sigurgeirsson fyrir Blika en hann fékk skotfæri á besta stað en skaut beint á Jacobsen í mark- inu sem varði á horn. Þetta gerðist á 58. mínútu og þremur mínútum síðar átti Grétar Sigurðsson skalla að marki eftir horn. Hann vildi meina að boltinn hefði farið yfir línuna en ekkert var dæmt. „Þetta var bara aumingjaskap- ur og klaufalegt af mér að skora ekki,“ sagði Olgeir eftir leik. „Boltinn skoppaði reyndar illa fyrir mig og ákvað ég því bara að þruma á markið frekar en að setja hann.“ Leikurinn var þokkalegur og bæði lið að spila ágæta knattspyrnu. Víkingar voru hættulegir framan af með hina eldfljótu Gunnar og Egil og Sinisa Kekic var klókur í sókn- arspilinu. En leikur þeirra byggð- ist aðallega upp á löngum send- ingum fram á völlinn sem er síður skemmtilegt að horfa á. Blikar hins vegar fóru yfirleitt skynsamlega að í sínu spili upp völlinn og höfðu varnarmenn Vík- ina nóg að gera. Gallinn í þeirra sóknarleik var að afar sjaldan lauk sókninni með skoti að marki. Það var engu líkara en að Blikar væru að bíða eftir nánast fullkomnu skotfæri til að láta vaða að marki. „Við vorum bæði að spila vel og skora á undirbúningstímabilinu. Við erum enn að spila ágætlega en vantar að klára færin okkar,“ sagði Olgeir. „Þetta hlýtur að fara að koma hjá okkur. Úrslitin voru því nokkuð sann- gjörn þó svo að tölfræðin kunni að gefa vísbendingu um annað. Grétar lék stærsta hluta leiks- ins með sárabindi um höfuðið vegna samstuðs í fyrri hálfleik. Fékk hann myndarlegan skurð. „Við spiluðum góða vörn og Bjarni hafði afar lítið að gera í markinu. Ég er þó alls ekki sáttur við úrslit- in og tvö stig eftir þrjá heimaleiki er ekki ásættanlegt.“ Breiðablik gerði sitt fjórða jafntefli í röð á tímabilinu í gærkvöldi, í þetta sinn gegn Víkingi á útivelli. Vík- ingar hafa reyndar ekki enn unnið leik á heimavelli en úrslitin í leiknum verða þó að teljast sanngjörn. Ísland tapaði í gær fyrir Þýskalandi í æfingaleik í Laugar- dalshöll, 35-24. Þær þýsku skor- uðu því 35 mörk í báðum leikjum sínum en leik liðanna á miðviku- dag lauk með níu marka sigri gest- anna. Íslensku stúlkurnar voru þó staðráðnar í að gera betur en í síð- asta leik og mættu grimmar til leiks og komust í 6-2 forystu. Þjóð- verjum tókst að minnka muninn eftir því sem á leið. Staðan var 15-13 í hálfleik, gest- unum í vil. Leikurinn var í ágætu jafnvægi fyrstu tíu mínúturnar í síðari hálf- leik en þær þýsku stungu svo hreinlega af síðustu tuttugu mín- úturnar og niðurstaðan því ellefu marka sigur. Hanna G. Stefánsdóttir skor- aði sex mörk fyrir Ísland og Drífa Skúladóttir fimm. Aðrir leikmenn skoruðu tvö mörk eða færri en Júlíus Jónasson landsliðsþjálfari notaði langflesta leikmenn sína í leiknum í gær. Góð byrjun dugði Íslandi ekki Landsleikur í handbolta Landsbankadeild kvenna
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.