Fréttablaðið - 18.06.2007, Side 27
Úthlutað var í fyrsta sinn
úr Minningarsjóði Kristj-
áns Eldjárns gítarleikara á
dögunum. Viðurkenninguna
hlaut Kristinn H. Árnason
gítarleikari.
Minningarsjóður Kristjáns Eld-
járns gítarleikara var stofnað-
ur af ættingjum hans, vinum og
samstarfsmönnum eftir að hann
lést 22. apríl 2002 tæplega þrítug-
ur að aldri eftir nær tveggja ára
erfið veikindi. Sjóðnum er ætlað
að veita framúrskarandi tónlistar-
mönnum viðurkenningu.
Fjáröflun til sjóðsins hefur síðan
staðið yfir. Hún byggist fyrst og
fremst á frjálsum framlögum og
sölu minningarkorta, auk þess sem
sjóðurinn hefur aflað fjár með því
að gefa út hljómdisk og bók. Disk-
urinn „Ljóð, hljóð og óhljóð“ með
tónlist Kristjáns við ljóðalest-
ur föður hans, Þórarins Eldjárns,
kom út 2003 og í fyrra stóð sjóð-
urinn að endurútgáfu á þýðingu
Kristjáns Eldjárns forseta á Max
og Mórits eftir Wilhelm Busch.
Vorið 2003 þegar ár var liðið frá
andláti Kristjáns voru haldnir
veglegir minningartónleikar í Ís-
lensku óperunni þar sem fram
komu fjölmargir tónlistarmenn og
rann allur ágóði til sjóðsins.
Gert er ráð fyrir að unnt verði
að veita verðlaun úr sjóðnum
annað hvert ár í fyrstu en árlega
í framtíðinni.
Kristján Eldjárn hóf ungur gít-
arnám í Tónmenntaskóla Reykja-
víkur og Tónlistarskólanum í
Reykjavík og nam loks í Tónskóla
Sigursveins D. Kristinssonar hjá
Einari Kristjáni Einarssyni og lauk
þaðan burtfararprófi 1996. Jafn-
framt lagði hann stund á rafgítar-
leik við djassdeild Tónlistarskóla
FÍH og lauk burtfararprófi þaðan
1995. Á árunum 1997-98 stundaði
hann framhaldsnám í klassískum
gítarleik í Turku í Finnlandi undir
handleiðslu finnska gítarleikarans
Timo Korhonens og lauk þaðan
einleikara- og kennaraprófi.
Kristján kenndi um skeið við
ýmsa tónlistarskóla en starfaði
fyrst og fremst sem hljóðfæra-
leikari og tónsmiður. Á árunum
1996-2000 hélt hann á annan tug
einleikstónleika víða um land og
fjölda skólatónleika. Hann kom
fram með fjölda hljómsveita og
hópa hér heima og erlendis, má
þar nefna Stuðmenn, Caput-hóp-
inn, finnsku hljómsveitina Giant
Robot og finnsk-íslenska dúettinn
Helvík. Hann lék inn á fjölmargar
hljómplötur, sá um útsetningar og
stjórnaði upptökum. Hann samdi
og/eða lék tónlist við ótal leikverk,
danssýningar, kvikmyndir, sjón-
varpsþætti og auglýsingar.
Kristinn H. Árnason lauk burt-
fararprófi frá Tónskóla Sigur-
sveins árið 1983. Hann stundaði
framhaldsnám í Bandaríkjunum,
Bretlandi og á Spáni. Hann hefur
komið fram á mörgum tónleikum
hérlendis sem erlendis, gert upp-
tökur fyrir hljóðvarp og sjónvarp
og leikið inn á marga hljómdiska.
Hann hefur hlotið Íslensku tónlist-
arverðlaunin, verið tilnefndur til
Menningarverðlauna DV, og feng-
ið starfslaun listamanna.
„ÞAÐ ELSKA ALLAR KONUR HEIMSFRÆGA MENN“
GRETTIR
Miðasala 568 8000
www.borgarleikhús.is
grettir.blog. is
Fyrsta bókin í nýjum
og spennandi bókaflokki.
Lestu um ævintýri
Kótós og lærðu
að teikna í leiðinni.
edda.is
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI