Fréttablaðið - 21.06.2007, Side 16

Fréttablaðið - 21.06.2007, Side 16
nær og fjær „ORÐRÉTT“ Skilur ekkert í ástandinu Lystugar skepnur Hámenning Von á fyrsta barnabarninu í sumar Alþjóðaleikar ungmenna hefjast í kvöld með glæsi- legri setningarhátíð sem verður í samvinnu við Vinnuskóla Reykjavíkur. Íslenskir víkingar verða þema hátíðarinnar og munu 64 slíkir ganga fremstir í flokki, einn fyrir hverja borg sem á fulltrúa á leik- unum, en ungmennin koma frá 35 löndum. Í saumastofu Laugarnesskóla voru krakkar frá Vinnuskóla Reykjavíkur í óðaönn í gær að sauma víkingabúninga fyrir opn- unarhátíð alþjóðaleika ungmenna sem sett verður í kvöld í Laugar- dalnum. Að sögn Ragnars Vignis, flokksstjóra Vinnuskólans, hafa stúlkurnar verið í rúma viku við saumaskapinn og staðið sig frá- bærlega. Áður en setningarathöfnin hefst í kvöld mun Vinnuskóli Reykjavíkur halda sína árlegu sumarhátíð þar sem um 2.500 ungmenni munu meðal annars reyna að slá Íslandsmet í hóp- dansi. Seinni part dagsins munu nemendur Vinnuskólans svo ganga fylktu liði, í lögreglufylgd, sem leið liggur í Laugardalinn. Á leiðinni munu 1500 keppendur Alþjóðaleikanna bætast í hópinn og verða það því um fjögur þús- und ungmenni sem ganga inn Laugardalinn við upphaf leik- anna. Alþjóðaleikarnir verða settir formlega klukkan fimm í dag á Laugardalsvelli. Allur undirbún- ingur leikanna hefur gengið mjög vel að sögn Guðna Bergssonar, framkvæmdastjóra undirbún- ingsnefndar, en undirbúningur hófst fyrir tveimur árum þegar ákveðið var að Reykjavík skyldi halda leikana árið 2007. Keppend- ur koma frá 35 löndum og er keppnin viðurkennd af Alþjóða ólympíunefndinni. Keppnin sjálf hefst á morgun og stendur fram á sunnudag. Aðgangur er ókeypis á alla viðburði leikanna. Víkingar opna alþjóðaleika í kvöld

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.