Fréttablaðið - 21.06.2007, Síða 72
Höllin var hæfilega full þetta
ágæta þriðjudagskvöld en fyrst á
svið steig norska söngkonan Kate
Havnevik. Strax áttaði maður sig
á því að hér var komin enn ein
Björk „einhvers lands“ og hljóm-
uðu lög Havnevik stundum eins
og Júróvisjónútgáfur af göml-
um Bjarkarlögum. Havnevik var
ófrumleg með öllu en hafði þó sinn
sjarma. Fékk nokkur prik fyrir að
óska íslenskum konum til ham-
ingju með daginn og talaði smá ís-
lensku. Hún tileinkaði einnig eitt
lagið Maríu Huld Markan úr Ami-
inu og minntist á Valgeir Sigurðs-
son, upptökustjóra úr Gróðurhús-
inu.
Ekki þurfti að bíða lengi eftir
Air-mönnum sem mættu með
þremur aðstoðarmönnum. Tón-
leikarnir byrjuðu nokkuð rólega
en risu hátt eftir því sem á leið.
Múgurinn var með rólegasta móti
en fagnaði helst þegar lög af Moon
Safari tóku að hljóma. Reyndar
virtust áhorfendur vart vera á lífi
fyrr en í uppklappslögunum sem
var miður.
Air-liðarnir Nicolas Godin og
Jean-Benoît Dunckel sýndu samt
af sér ótrúlegan þokka allt kvöldið.
Godin var ofursvalur og lék á bæði
bassa og gítar af gríðarlegri fimi á
meðan Dunkel lék sér með hljóð-
gervla og raulaði síðan með á sinn
kvenlega hátt. Inn á milli laga fékk
kynþokkafulli hreimurinn nokkr-
um sinnum að njóta sín og í hvert
skipti heyrði ég í stúlkum á næstu
bekkjum andvarpa blítt. Skil þær
fullkomnlega. Hinir þrír í bandinu
áttu líka fína spretti og var tromm-
arinn sérstaklega kraftmikill.
Lögin sem hljómuðu spönnuðu
allan feril Air en þó var furðu lítið
spilað af nýjustu plötunni, hinni
vanmetnu Pocket Symphony, og
voru lög af Moon Safari og Talk-
ie Walkie þeim mun meira áber-
andi. Ekkert svo sem út á slíkt
að setja. Reyndar liðu Air svolít-
ið fyrir þá staðreynd að Skjáreinn
hefur notað mörg lög sveitarinn-
ar í auglýsingastef sín. Sem betur
fer fönguðu Air sjálfir þó athygl-
ina betur en svo að einhver áhorf-
endana hafi byrjað að hlakka til að
King of Queens hæfist.
Flutningur Air-manna tók ekki
langan tíma, einungis um þrjá
stundarfjórðunga auk tveggja
uppklappa og með tilliti til þeirra
var dagskráin hæfilega löng. Lok
tónleikanna mettuðu áhorfendur
vel og var með því betra sem sést
hefur á sviði hér á landi á árinu.
Verst að allir tónleikarnir voru
ekki í sama dúr.
Betra en á Skjá einum
Hljómsveitin Motion Boys hitar
upp fyrir bandarísku sveitina
The Rapture á Nasa 26. júní. Mot-
ion Boys hafa vakið töluverða at-
hygli að undanförnu fyrir lagið
Hold Me Closer to Your Heart.
Hitt lagið sem sveitin hefur gefið
út, Waiting to Happen, fékk einn-
ig góðar viðtökur í vetur.
Motion Boys er samstarfsverk-
efni Árna Rúnarssonar og Birgis
Ísleifs Gunnarssonar. Á tónleik-
um eru þeim til halds og trausts
þeir Viddi og Gísli galdur úr Tra-
bant, Bjössi úr Mínus og Tobbi úr
Jeff Who?
Motion Boys
hita upp
Samkeppni um Stuðboltann verð-
ur haldin á Rás 2 á hverjum föstu-
degi fram að verslunarmanna-
helgi. Stuðboltinn þarf að koma
fólki í gott stuð með söng, hljóð-
færaleik, góðu gríni og skemmti-
legri nærveru.
Þátttakendur geta skráð sig með
því að hringja í síma 595-6655, þar
sem þeir kynna sig og syngja brot
úr lagi. Eftir það verður skráning-
in aðgengileg á heimaíðunni www.
stuðboltinn.is.
Þeir sem komast áfram keppa í
úrslitum skömmu fyrir verslunar-
mannahelgi. Í verðlaun eru tveir
miðar á Þjóðhátíð í Vestmannaeyj-
um og gítar að verðmæti 139.900
krónur, auk fleiri vinninga.
Stuðboltinn
í allt sumar
Óskarsverðlaunaleikkonan Julia
Roberts hefur eignast sitt þriðja
barn með eiginmanni sínum Danny
Moder. Drengur-
inn Henry hefur
nú bæst við fjöl-
skylduna en þau
eiga fyrir tví-
burana Hazel og
Phinnaeus.
Roberts hefur
tekið sér frí frá
leiklistinni und-
anfarin ár til að sinna fjölskyld-
unni. Síðast sást hún í Ocean´s 12
ásamt George Clooney og Brad
Pitt. Síðar á þessu ári leikur hún í
Charlie Wilsons´s War á móti Tom
Hanks. Gerist myndin á stríðstím-
um í Afganistan. Roberts hefur
jafnframt samþykkt að leika í nýrri
mynd um bresku náttúrulífskonuna
Joan Root sem var skotin til bana í
Kenýa á síðasta ári.
Þriðja barn
Roberts
Sniglabandið er statt í Danmörku
við upptökur á nýrri plötu sem
hefur fengið nafnið Vestur. Upp-
tökurnar fara fram í hljóðveri á
gömlum herrabúgarði úti í sveit á
milli Árósa og Randers.
„Það hafa margir Íslendingar
tekið upp í þessu stúdíói. Hérna er
alveg frábær vinnuaðstaða,“ segir
bassaleikarinn Friðþjófur Sigurðs-
son. Hann segir að það hafi stað-
ið lengi til að taka upp plötu utan
Reykjavíkur og á endanum varð
Danmörk fyrir valinu. „Það er ekki
hægt að vinna í Reykjavík. Þetta
er þannig hópur að við verðum að
vera saman ef við ætlum að vinna
hlutina vel. Hérna er engin búð og
enginn kemst eitt eða neitt. Maður
getur ekki gert annað en að vinna.
Við erum líka ofboðslega ánægðir
með útkomuna og þetta er framar
okkar björtustu vonum,“ segir Frið-
þjófur.
Vestur verður fyrsta platan af
fjórum sem Sniglabandið ætlar að
semja um áttirnar fjórar og er hún
væntanleg í haust. Sveitin er jafn-
framt að leggja lokahönd á DVD-
mynddisk sem var tekinn upp á
tónleikum í Borgarleikhúsinu í
nóvember.
Sniglabandið verður í beinni út-
sendingu á Rás 2 á sunnudögum í
sumar og verða þættirnir sendir út
frá Thorvaldsenbar við Austurvöll.
Fyrsti þátturinn var síðastliðinn
sunnudag og gekk hann mjög vel að
sögn Friðþjófs. „Það var mjög erf-
itt að vera bæði með hlustendur og
áhorfendur en við vildum aðeins
reyna á þanþolið.“ Verða þeir félag-
ar rétt komnir heim í tæka tíð fyrir
upptökur á næsta þætti.
Upptökur á herrabúgarði