Fréttablaðið - 21.06.2007, Side 88

Fréttablaðið - 21.06.2007, Side 88
F í t o n / S Í A F I 0 2 2 3 9 Gríptu augnablikið og lifðu núna Langar þig í 2 miða á landsleikinn í kvöld? Tveir miðar á landsleik Íslands og Serbíu fylgja 50 fyrstu Meistaradeildarfótboltunum sem seldir verða í verslun Vodafone í Skútuvogi í dag. Gæðaboltar á aðeins 990,- fyrir Og1 viðskiptavini en 1.990,- fyrir aðra. Fyrstir koma fyrstir fá! FYRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR www.visir.is Bullandi samviskubit fylg-ir þeirri bullandi velmegun sem við njótum í hnattrænu sam- hengi, nema maður passi sig að hugsa bara ekkert um það. Lesi ég á litlu miðana á fötunum mínum kemur í ljós að þau eru meðal ann- ars framleidd í Víetnam (jakki), Kína (bolur og skór) og Indónes- íu (gallabuxur). Þótt framleiðend- ur vilji sýnast góðmennskan upp- máluð hef ég séð nógu mikið af heimildarmyndum um hnattvæð- inguna til að vita að á bakvið fötin mín er líklega fólk, jafnvel börn, sem stritar við illan aðbúnað í öm- urlegum þrælakistum. Ég þarf sem sé ekki að leita lengra en inn í fataskáp til að fá bullandi sam- viskubit. get ég fengið samvisku- bit þegar ég skoða inn í ísskáp ef ég borða annað en lífrænt rækt- að, því þá er líklegt að fólk og dýr hafi liðið kvöl og pínu við fram- leiðslu matarins. Við spegilinn get ég fengið samviskubit því þá sé ég hvítan miðaldra karl, tákn- mynd illskunnar sem ber ábyrgð á öllu svínaríinu og heldur kven- fólki niðri. Og í bílnum get ég fengið bullandi samviskubit því þá er ég að bræða Grænlandsjök- ul og stefna framtíð mannkynsins í tvísýnu. betur fer er verið að finna upp leiðir til að lækna mann af samviskubitinu. Að kolefnisjafna sig er það nýjasta nýtt og fyrir fimm þúsund kall á ári er sam- viskubitið í bílnum jafnað út með gróðursetningu á þrjátíu og fimm trjám. Sniðugt. er eflaust bara byrjun- in. Að „lífsgæðajafna sig hnatt- rænt“ hlýtur að vera á leiðinni. Á vandaðri heimasíðu verður reikni- vél þar sem maður slær inn bmi- líkamsstuðul, árstekjur og sam- tölu þess sem maður eyddi í bruðl, til að sjá hversu mikið maður þarf að borga til fátæku land- anna. Geri maður þetta er hægt að halda áfram að lifa í vellysting- um án samviskubits. Sé maður til dæmis ofalinn með tíu millur á ári og hafi spreðað í þrjár utanlands- ferðir, húsbíl og flatskjá, kemur út úr reiknivélinni að maður eigi að láta taka út af kortinu fyrir þrem- ur skóflum og einni hjólböru til að senda til Síerra Leóne. yrði samt örugglega ekki eins vin- sæl og kolefnisjöfnunin því ólíkt „hlýnun jarðar“ kemur fátækt þriðja heimsins okkur ekki beint við, nema maður leggi sig fram í góðmennskunni eða sé þess við- kvæmari fyrir samviskubitinu. Kannski Bono yrði eini maðurinn sem færi á Lifsvidur punktur is. Samviskubit

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.