Fréttablaðið - 22.06.2007, Page 10

Fréttablaðið - 22.06.2007, Page 10
 22. júní 2007 FÖSTUDAGUR >>Kennaraháskóli Íslands sími 563 3800 > www.khi.is Kennaraháskóli Íslands auglýsir diplómunám á þroskaþjálfa- og tómstundabraut sem miðar að því að veita fólki með þroskahömlun möguleika til fullgildrar samfélagsþátttöku með því að gefa hópnum alþjóðlega stefnu hagsmunasamtaka fólks með þroskahömlun, mannréttindasáttmála sem og stefnu Kennaraháskóla Íslands. Meginmarkmið námsins er að undirbúa nemendur til afmarkaðra starfa á starfsvettvangi þroskaþjálfa heimilum, félagsmiðstöðvum og á þeim vettvangi sem fólk með þroskahömlun sækir þjónustu. við hvern nemanda þar sem tilgreind verða markmið einstakra námskeiða, starfstengd markmið sem og leiðir að settu marki. Inntökuskilyrði sambærileg menntun og starfsreynsla. Umsóknir skulu ritaðar á þar til gerð eyðublöð sem fást afhent á skrifstofu Kennaraháskóla Íslands. Nauðsynlegt er að staðfestingar á fyrra námi og meðmæli fylgi umsókn. Skrásetningargjald við Kennaraháskóla Íslands eru 45.000 kr. fyrir skólaárið. Kynningarfundur verður haldinn mánudaginn 25. júní kl. 17.00 í Skriðu, fyrirlestrasal Kennaraháskóla Íslands. Nánari upplýsingar veita ábyrgðarmenn námsins Guðrún V. Stefánsdóttir, lektor, sími: 5633965 og Vilborg Jóhannsdóttir, lektor, sími: 563800 Umsóknarfrestur er til 29. júní Starfstengt diplómunám fyrir fólk með þroskahömlun > > > > IÐNAÐUR Ódýr vistvæn orka og kuldi eru meðal þess sem gera Ísland mjög samkeppnishæft fyrir staðsetningu netþjónabúa alþjóðlegra stórfyrirtækja. Haustið 2008 verður nýr sæstrengur, sem tengir Ísland við meginlandið, tilbúinn. Þá er orðið raunhæft fyrir fyrirtæki að starf- rækja netþjónabú á Íslandi. „Hér erum við í fyrsta skiptið að selja kulda,“ sagði Össur Skarphéðins- son iðnaðarráðherra. Fjárfestingarstofa, sem heyrir undir viðskiptaráðuneytið og aðstoðar erlenda fjárfesta við fjárfestingar, átti frumkvæðið að athugun á samkeppnishæfi Íslands fyrir staðsetningu net- þjóna á landinu. Niðurstöðurnar, sem voru kynntar í gær, voru að Ísland væri mjög samkeppnis- hæft þegar búið væri að leggja nýjan sæstreng og tryggja með því stöðugt samband við útlönd. Orka á Íslandi er ódýrari en í helstu samkeppnislöndunum sem eru Bandaríkin, Bretland og Ind- land. Ásamt því að vera ódýrari er orkan vistvæn sem gerir hana eftirsóknarverðari og sleppa eig- endur netþjónanna við kolefnis- gjald sem er víða farið að inn- heimta vegna brennsluorku. Um fimmtíu prósent af rekstr- arkostnaði netþjónabúa er kostn- aður vegna orku. „Helmingurinn af þessari orkunotkun fer til kæl- ingar hjá þessum fyrirtækjum venjulega. Ef litið er til íslenskra aðstæðna þá mundi það muna tugum milljóna á ári í minni orku- kostnað hjá þessum fyrirtækjum,“ sagði Þórður H. Hilmarsson, fram- kvæmdastjóri Fjárfestingastofu. „Það er mikil eftirspurn eftir orku af þessu tagi,“ sagði Össur. Hann sagði að það væri ákaflega brýnt að fara varlega með þær takmörkuðu orkulindir sem við eigum þannig að skammsýni fengi ekki að útiloka uppbyggingu á þessari starfsemi. andriv@frettabladid.is Ísland talið henta vel fyr- ir netþjónabú Mikil eftirspurn er eftir grænni orku í heiminum. Með nýjum sæstreng haustið 2008 verður Ísland samkeppnishæft um staðsetningu netþjónabúa. FRÁ FUNDINUM Þórólfur Árnason forstjóri Skýrr, Þórður H. Hilmarsson, fram- kvæmdastjóri Fjárfestingarstofu, Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra og Kristján Möller samgönguráherra. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR ■ Netþjónabú eru rafrænar gagna- geymslur og miðlarar. ■ Eitt netþjónabú tekur pláss á við sjö til tíu fótboltavelli og notar allt að fimmtíu megavött af orku. Til saman- burðar kemur Kárahnjúkavirkjun til með að framleiða 690 megavött. ■ Í netþjónabúi af þessari stærðar- gráðu starfa um fimmtíu sérfræð- ingar. ■ Meðal fyrirtækja sem hafa sýnt áhuga á að byggja netþjónabú á Ís- landi eru Microsoft og Yahoo. ■ Talið er að magn upplýsinga sem geyma þarf á rafrænu formi aukist um fimmtíu prósent á ári. ■ Netþjónabú nýta um eitt pró- sent af allri orku sem er framleidd í heiminum. ■ Orkukostnaður er fimmtíu pró- sent rekstrarkostnaðar netþjónabúa. Helmingur orkukostnaðarins, fjórð- ungur rekstrarkostnaðar, er vegna kælingar á tölvubúnaði. NETÞJÓNABÚ ÚTIVIST Miðnæturhlaup á Jóns- messu verður haldið laugardaginn 23. júní. Hlaupið hentar fólki á öllum aldri, byrjendum og lengra komnum. Hægt er að velja um þrjár vegalengdir: 3 km skemmti- skokk sem er án tímatöku, og 5 km eða 10 km sem eru með tímatöku. Hlaupið hefst klukkan 22.00 við sundlaugarnar í Laugardal og lýkur á sama stað. Forskráning í hlaupið fer fram á vef maraþonsins, www.marathon. is, og er netskráning opin til klukk- an 18.00 í dag. Einnig er hægt að skrá sig í hlaupið frá klukkan 18.00-21.30 á morgun í anddyri sundlauganna í Laugardalnum. Allir sem taka þátt fá stutterma- bol og verðlaunapening auk þess sem það er frítt í Laugardalslaug- ina eftir hlaupið fyrir hlaupara. - pal Miðnæturhlaup á Jónsmessu á morgun: Hlaupið í Laugardal KEPPENDUR Í MIÐNÆTURHLAUPI Miðnæturhlaup á Jónsmessu verður haldið í fimmtánda sinn á morgun.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.