Fréttablaðið - 22.06.2007, Page 30
BLS. 2 | sirkus | 22. JÚNÍ 2007
J ón Ásgeir Jóhannesson, stjórnar-formaður Baugs Group, mun fá
einkaþotu af gerðinni Falcon 2000
afhenta í október næstkomandi. Jón
Ásgeir hefur hingað til notast við
bandarísku einkaþotuleiguna NetJets
sem býður upp á sömu þotur líkt og
kemur fram í einkaþotuúttekt Sirkuss
á bls. 10. Hann ætti þannig að vita
hvað hann er að fá. Falcon 2000-vélin
er stórglæsileg og herma heimildir
Sirkuss að verðið á vélinni sem Jón
Ásgeir keypti sé vel yfir einn milljarð.
Falcon-vélarnar þykja afar góðar,
hraðskreiðar og mikið er lagt upp úr
huggulegheitum um borð. Þær geta
ekki flogið jafnlangt og Challenger-
vélarnar sem aðrir íslenskir auðkýf-
ingar eiga en „duga“ rúmlega á flesta
þá áfangastaði í Evrópu sem hugur-
inn girnist. Eða eins og segir auglýs-
ingu frá framleiðandanum Dassault
Falcon: „Þægindi og fluggeta stórrar
vélar, snerpa og eldsneytisnýting
minni vélar.“ Fullvíst er að vélin komi
Jóni Ásgeiri að góðum notum enda
er það hans verkefni í dag að leiða
áframhaldandi vöxt Baugs um gjör-
vallan heim og ljóst að það verður
ekki gert frá Íslandi.
Jón Ásgeir fær einkaþotu í október
G rétar Sigurðarson, sem stund-um var kallaður Líkmaðurinn í tengslum við sakamál sem
nefnt var Líkfundamálið í fjölmiðlum,
hefur snúið baki við ruglinu sem hann
var í og hafið nýtt líf. Hann fékk
tveggja og hálfs árs dóm fyrir aðkomu
sína að dauða Litháans Vaidarar
Juskeviciusar árið 2004. Hann lauk
afplánun á Vernd í febrúar og vinnur
nú í byggingavinnu á daginn. Um
helgina tók hann í fyrsta sinn þátt í
keppninni Sterkasti maður Íslands og
þótt Grétar sé hraustur maður þá er
ekki auðvelt að draga fimmtán tonna
steypubíl.
„Þetta er bara enn ein geggjunin.
Ég er öfgamaður og hef gaman að því
að gera eitthvað geggjað,“ segir Grétar
í samtali við Sirkus. Hann hefur alltaf
verið hraustur maður en augljóst er
að hann hefur notað tímann í afplán-
uninni á Kvíabryggju vel til að byggja
sig upp. „Ég er búinn að æfa mikið og
hef gert það í þrjú ár. Ég hafði reyndar
ekki nema fimm vikna fyrirvara til að
byggja mig upp fyrir þetta mót en mér
tókst að þyngja mig um sextán kíló á
þeim tíma. Ég vann hins vegar eins og
skepna fram á kvöld alla dagana fyrir
mótið og það er ekki leiðin að toppár-
angri,“ segir Grétar sem getur þó unað
sáttur við sitt á mótinu um helgina.
Hann hafnaði í sjöunda sæti af átta
keppendum og sagði Hjalti Úrsus
Árnason, skipuleggjandi mótsins að
Grétar hefði staðið sig býsna vel.
„Þetta er gríðarlega erfitt mót og hann
sýndi mikla keppnishörku með því að
klára allar greinarnar. Hann er efni í
alvörumann ef hann hefur metnað-
inn til að þroska hæfileikana. Það er
ákveðið afrek að vera lifandi eftir
svona mót og ég tala nú ekki um í
heilu lagi,“ segir Hjalti og hlær.
Og metnaðinn vantar ekki hjá Grét-
ari. Ég er kominn til að vera í þessum
heimi og ætla mér að ná langt. Ég hef
snúið baki við ruglinu, sagt skilið við
þennan heim fíkniefna og einbeiti
mér nú að aflraununum. Það er pró-
gramm allan sólarhringinn alla vik-
una að komast í toppform og það
verður að huga að öllu, æfingum,
hvíld og mataræði. Næsta mót, Sterk-
asti maður Suðurlands, er eftir mánuð
og þar ætla ég að koma sterkur inn. Ég
ætla mér að hvíla betur fyrir þá keppni
og bæta mig verulega.“
oskar@frettabladid.is
GRÉTAR SIGURÐARSON, STUNDUM NEFNDUR LÍKMAÐURINN, ER KOMINN Í AFLRAUNIRNAR
„BARA ENN EIN GEGGJUNIN“
JESÚS MEÐ Í FÖR Grétar er trúaður og veit sem er að honum eru allir vegir færir í
aflraununum með frelsarann sjálfan sem ferðafélaga. SIRKUSMYND/HÖRÐUR
HRIKALEGUR Grétar lét
sig ekki muna um að
vippa sér úr bolnum og
taka nokkrar vel valdar
pósur fyrir ljósmyndara
Sirkuss. SIRKUSMYND/HÖRÐUR
LIPUR OG LÉTT Falcon-vélin er snör í
snúningum og þægindin innanborðs eru að
sjálfsögðu fyrsta flokks.
Dansflokkurinn djammaði
með landsliðinu
Leikmenn íslenska landsliðsins í
handbolta fögnuðu því vel og innilega að
hafa borið sigurorð af Serbum, 42-40, í
leik liðanna í Laugardalshöll á sjálfan
þjóðhátíðardaginn og tryggðu sér þar
með sæti í EM í Noregi á næsta ári.
Landsliðsmennirnir fóru á Vegamót eftir
leikinn og slettu úr klaufunum. Eftir að
staðnum var lokað var síðan haldið heim
til hetjunnar Ólafs Stefánssonar, sem á
íbúð á Hverfisgötu, þar sem leik-
mennirnir skemmtu sér fram undir
morgun með meðlimum íslenska
dansflokksins, leikmönnum íslenska
kvennalandsliðsins í handbolta og
nokkrum valinkunnum leikurum. Herma
fregnir að Queen-lagið We Are the
Champions hafi verið vinsælt heima hjá
Ólafi aðfaranótt mánudags.
Leggðu sumarlaunin þín inn á XY reikning og þú
getur unnið Playstation 3 leikjatölvu eða 10.000 kr.!
Allir fá 4 bíómiða og ef þú ert að stofna XY reikning
í fyrsta skipti færðu líka flottan XY Ósómabol.
Þeir sem leggja laun inn á XY reikning í júní fá 4 bíómiða senda heim til
sín í byrjun júlí. Aðalvinningarnir verða dregnir út 6. ágúst.
Málaferli gegn forsetanum
ekki útilokuð
Mikil og hatrömm nágrannadeilda geisar
nú á Laufásveginum á milli þriggja
húseigenda annars vegar og embætti
forseta Íslands hins vegar. Húseigend-
urnir Þorsteinn M. Jónsson á Laufásvegi
73, Einar Eiríksson á Laufásvegi 74 og
Stefán Matthíasson á Smáragötu 13
hafa ekki fengið að byggja svo mikið
sem sandkassa á lóðum sínum þar sem
húsin eru öll í næsta nágrenni við
forsetabústaðinn á Laufásvegi 72.
Embætti forsetans hefur, með hjálp frá
Ríkislögreglustjóra, kæft allar fram-
kvæmdir í fæðingu af þeirri ástæðu að
öryggi gesta forsetans yrði
ógnað við slíkar
aðstæður. Húseigendurnir
eru afar ósáttir, telja rökin
ekki halda vatni og
íhuga nú að draga
forsetann og
embætti hans fyrir
dóm til að fá úr því
skorið hvort þeir
eigi engan rétt á
sinni eigin lóð.