Fréttablaðið - 22.06.2007, Qupperneq 38
22. JÚNÍ 2007 FÖSTUDAGUR2 fréttablaðið suðurland
Á Hellishólum í Fljótshlíð er
rekin vinsæl ferðamannaþjón-
usta. Aðsóknin á tjaldsvæðið
hefur sjaldan verið meiri en nú,
þar sem á bilinu 1.500 til 2.000
manns leggja leið sína þangað
um hverja helgi.
„Ætli það megi ekki helst þakka
afþreyingunni hérna allan þennan
fólksfjölda,“ segir Laila Ingvars-
dóttir hress í bragði, en hún rekur
fjölsótta ferðamannaþjónustu á
Hellishólum í Fljótshlíð, ásamt
eiginmanni sínum Víði Jóhanns-
syni.
„Hérna er til dæmis níu holu
golfvöllur, ásamt níu holu par
þrjú golfvelli, golfnámskeið sem
hefjast næsta mánudag, veiði-
vatn og hestaleiga skammt frá,“
bendir Laila á máli sínu til stuðn-
ings. „Þeir sem bregða sér á bak
fá síðan Njálssögu beint í æð, þar
sem við erum staðsett mitt í sögu-
sviði Njálssögu. Svo er hægt að
skreppa á Njálusýningu á Sögu-
setrinu á Hvolsvelli. Auk þess er
ýmislegt í boði fyrir yngstu ferða-
langana, þar á meðal leiksvæði og
-tæki, klifurkastali, rólur, fótbolta-
mark hinum megin á leikvellinum
og trampólín, sem nýtur ómældra
vinsælda.“
Að sögn Lailu er síðan allt til
alls á tjaldsvæðinu. „Sem dæmi
var glæsilegt baðhús, með sturt-
um, salernum, þvottavélum,
þurrkurum og heitum pottum ný-
lega tekið í notkun,“ bendir hún á.
„Rafmagnstenglar fyrir húsbíla,
felli- og hjólhýsi eru á svæðinu, en
tengi samkvæmt evrópskum stöðl-
um þarf til að tengja í rafmagn.“
Laila tekur fram að engin eld-
unaraðstaða sé á svæðinu, en
það komi þó ekki að sök þar sem
glæsilegur veitingaskáli sé til
staðar. Boðið er upp á rétt dags-
ins í hádeginu og á kvöldin,“ segir
hún. „Annars er „a la carte“ mat-
seðill í gildi og hægt að panta af
honum nánast allt á milli himins
og jarðar, lambakjöt, fisk, ham-
borgara og kökur. Svo rekum við
hérna veisluþjónustu, skipuleggj-
um bæði stærri og smærri veislur
fyrir nágrennið í kring og höfuð-
borgarsvæðið.“
Fyrir utan tjaldsvæðið gefst
ferðamönnum kostur á að leigja
sér sumarhús á Hellishólum, þar
sem 24 hús standa til boða. Níu
fimmtán fermetra stór hús, sem
taka þrjá til fimm, tíu 23 fermetra
hús, þar sem allt að sex manns
geta sofið og svo fimm fjörutíu
fermetra lúxusbústaðir. Öll búin
helstu nútímaþægindum. Laila
mælir með að fólki panti sér sum-
arhús með góðum fyrirvara, þótt
það sé yfirleitt alltaf pláss á tjald-
svæðinu. „Enda alveg brjálað að
gera,“ eins og hún kemst sjálf að
orði. roald@frettabladid.is
Mitt í sögusviði Njálu
Hægt er að gista á tjaldsvæði eða leigja sér sumarhús á Hellishólum í Fljótshlíð.
Hestaleiga er skammt frá svæðinu, þar sem farið er á slóðir Brennu-Njálssögu.
Bleikja, lambakjöt, súpa og
salat er aðalsmerki veitinga-
sölunnar sem sett hefur verið
upp í söluskála Skeljungs í
Freysnesi í Öræfum.
„Við bjóðum uppá ýmis-
konar góðmeti úr kjöti og
fiski, til dæmis rétti úr lamba-
kjöti, bleikju og þorski og
einnig vil ég benda á folalda-
piparsteik sem við erum með
á matseðlinum. Við erum sem
sagt með matseðla, bæði í há-
deginu og kvöldin og svo súpu
og salatbar, kaffi, brauð og
kökur allan daginn. Því er allt-
af hægt að fá eitthvað gott í
svanginn,“ segir Hafdís Gunn-
arsdóttir, veitingastjóri í hinni
nýju greiðasölu í Freysnesi.
„Við erum samt ekki með ham-
borgara heldur leggjum meiri
áherslu á heimilismat.“
Anna María Ragnarsdóttir
hótelstjóri Hótels Skaftafells
sem stendur bak við rekstur-
inn tekur undir það. „Þetta
fyrirkomulag hefur fengið af-
skaplega góðar undirtektir.
Eiginlega betri en ég þorði að
vona. Það virðist vera að fólk
sé farið að leita mikið eftir al-
vöru mat og svo sýnir það salat-
barnum líka áhuga. Ég sé fyrir
mér að það geti verið þægilegt
fyrir tjaldgesti að fá sér salat
og fara með út í tjald.“
Um 60 manns komast til
borðs í sal söluskálans. „Við
byggðum húsnæðið í fyrra
en okkur vannst ekki tími til
að koma upp veitingasölunni
fyrir sumarið þá,“ útskýrir
Anna María. Sjálf hefur hún
nóg að gera á Hótel Skaftafelli
sem er vel bókað fyrir sumar-
ið og reyndar 2008 líka. „Við
erum auðvitað með veitingar
á hótelinu líka en það er þægi-
legt fyrir vegfarendur að eiga
þess kost að kaupa sér mat hér
í skálanum.“ gun@frettabladid.is
Heimilismatur í öndvegi
Veitingaskáli Skeljungs við Hótel
Skaftafell er vinsæll viðkomustaður.
Hafdís Gunnarsdóttir veitingastjóri og Anna María Ragnarsdóttir hótelstjóri.
JÓNSMESSA Í ÚTHLÍÐ Í BISKUPSTUNGUM
Mikil skemmtidagskrá er á morgun í tilefni af Jónsmessunni
og hefst dagskráin klukkan ellefu að morgni þegar skokk-
hópur Ingu skokkar af stað frá Hlíðarlaug. Jónsmessumót GÚ
hefst síðan á Úthlíðarvelli klukkan fimm og verður mótið með
léttu sniði þar sem vanir og óvanir kylfingar spila saman í
liðakeppni.
Að lokum verður grillhlaðborð og verðlaunaafhending í
Réttinni og ball með hljómsveitinni Blek og Byttur auk þess
sem íslensk poppstjarna verður leynigestur kvöldsins. Ballið er
haldið til styrktar Kammerkór Suðurlands sem er nýkominn úr
tónleikaferðalagi um Frakkland og eru allir velkomnir. - sig